Orkuskattur og kjarasamningar
Þriðjudaginn 30. janúar 1990


     Halldór Blöndal:
    Hæstv. forseti. Þegar ég sá hv. 5. þm. Norðurl. e. fara að hlæja út af skattheimtunni, þá hélt ég að hann væri að hlæja að aumingjadómnum í sjálfum sér þegar hann þóttist hafa skoðun á virðisaukaskattsmálinu og þegar þessi hv. þm. þóttist ætla að beita sér fyrir því í Framsfl. og á Alþingi að tvö þrep yrðu í virðisaukaskatti. Það stóð ekki lengi það þrek sem hann hafði í því máli. Og ég hélt satt að segja að þegar hann skellti upp úr áðan væri hann að hlæja að barnaskapnum í sjálfum sér, að halda að hann skipti einhverju máli í sambandi við þær umræður sem eru hér á Alþingi um skattheimtu og yfirleitt um stefnu þessarar ríkisstjórnar. Og honum fannst hann bara hafa góðan húmor. En svo kom í ljós, eftir að hann hafði gefið sínar skýringar, að honum finnst það blátt áfram hlægilegt að nokkur skuli amast við því að nú standi til að hækka rafmagnsverð í landinu um 30% þegar launþegar standa frammi fyrir þeim nöturlegu staðreyndum að ekki er hægt að hækka laun þeirra um nokkurn skapaðan hlut. Ég kalla ekki 1,5% launahækkun nokkurn skapaðan hlut nú. Það er bara rétt fyrir hækkuninni á tekjuskattinum sem hv. 5. þm. Norðurl. e. samþykkti nú um áramótin þegar hann samþykkti það að tekjuskatturinn skyldi fara úr 38 í 40%. Þessi litla hækkun sem nú er verið að tala um, 1,5%, er svona rétt fyrir þessum 2% sem meiri hlutinn samþykkti að hækka tekjuskattinn um um áramótin. Það er von að framsóknarmenn hlæi að skattheimtunni, nema framsóknarmenn hafi verið að hlæja að þeim mönnum sem nú eru að reyna að koma sér saman um einhverjar aðgerðir til þess að koma í veg fyrir frekari kjararýrnun. Þessi mál eru ekkert skemmtileg.
    Ég var staddur á fundi Byggðastofnunar nú um hádegið. Þar kom fram að einungis varðandi þau útgerðarfyrirtæki og fiskvinnslufyrirtæki úti á landi sem eru verst stödd sé nauðsynlegt að leggja fram hundruð milljóna, ýmist með beinum framlögum eða í gegnum A-deild Hlutafjársjóðs. Hæstv. forsrh. lýsti því yfir í áramótaávarpi sínu til ríkisstjórnarinnar að björgunaraðgerðum ríkisstjórnarinnar væri lokið. Nú þyrfti ekki meira um fyrirtækin að hugsa, þau væru sjálfbjarga. Það var sagt hér í deildinni og það var sagt í fjh.- og viðskn. á sl. ári að ekki þyrfti til þess að koma að Hlutabréfasjóður fengi frekari heimildir í A-deildinni með ríkisábyrgð. Það er ekki liðinn mánuður og samt er farið að tala um að auka þurfi nýjar heimildir af þessu tagi um hundruð milljóna og við horfum upp á það að ýmis atvinnufyrirtæki úti á landi eru að missa skipin sín, fólkið atvinnuna, fólkið húsin sín og þorpin standa eftir dauð. Og þá er hlegið á Alþingi þegar til stendur að hækka skatta og menn eru að undrast það að það skuli vera hækkaðir skattar á þjóðinni undir þessum kringumstæðum.
    Þessi hv. þm. var að finna að því að ég hefði neitað að taka þátt í umræðum fyrir viku um frv. um skatt á orkufyrirtæki nema viðskrh. Alþfl., Jón Sigurðsson, væri við. Nú er komið í ljós, ef menn

lesa blöðin, ef menn lásu Morgunblaðið á föstudaginn var, að þessi ágæti orkumálaráðherra telur að frv. um skattlagningu á orkufyrirtæki sé afskaplega illa unnið, á því séu ýmsir agnúar og ýmsir gallar sem nauðsynlegt sé að laga í meðferð þingsins, væntanlegir margvíslegir agnúar sem hinir ráðherrarnir í ríkisstjórninni vildu ekki hlusta á, eða hvað, og treystir nú okkur þm. best til þess að kippa í lag. Það var þess vegna auðvitað fullkomin ástæða til þess, hæstv. forseti, að við gæfum ráðherranum kost á að segja aðeins frá því sem honum fannst og ég hygg að þm. Framsfl. megi vera mér þakklátur fyrir að ég skyldi hafa gefið ráðherra hans tækifæri til að koma hér upp í stólinn og skýra frá því sem honum finnst að í sambandi við orkuskattinn. Nema það sé kannski þannig að Framsfl. finnist þetta allt í lagi.
    Nú sé ég, hæstv. forseti, að ráðherrum er að fjölga. Það er kannski svo að ríkisstjórnarfundinum sem átti að byrja kl. 2 sé lokið og þrátt fyrir allt sé þá hægt að hafa umræður um orkuskattinn og þeir séu þá kannski viðlátnir, bæði orkumálaráðherrann og fjmrh. Ekki mundi skaða að fá utanrrh. hingað líka. Hann er vanur að hafa sínar skoðanir og það er auðvitað miklu skemmtilegra fyrir okkur sjálfstæðismenn í deildinni að fá hann hingað inn til okkar þannig að hann fái tækifæri til að standa fyrir máli sínu en þurfi ekki alltaf að tala bara prívat svona undir dimmu ljósi og dökku eða þegar hann fer í prívatviðtal hjá blaðamönnunum sem hafa óskaplega gaman af því að spyrja hann út úr. Hæstv. utanrrh. er afskaplega mælskur maður, hugrakkur maður, kjarkmikill, svo að það væri afskaplega skemmtilegt að fá hann hingað í deildina og heyra hann gaspra. Svo væri líka gott að fá hæstv. forsrh. því að kominn er upp alvarlegur ágreiningur. En mest gaman þætti mér að vita hvað hv. 5. þm. Norðurl. e. segir um orkuskattinn. Hann samþykkti orkuskattinn daginn sem vantraustið var til umræðu hér í þinginu. Hann gumaði af því fyrir norðan að við sjálfstæðismenn hefðum ekki haft rök fyrir því að bera fram vantraust á ríkisstjórnina. Nú hefur hann tækifærið til að sýna fram á að hann hafi greitt atkvæði á móti vantraustinu á réttum forsendum. Skyldi hv. 5. þm. Norðurl. e. hafa kjark í sér til að standa hér upp og segja: Ég styð frv. um skattlagningu
orkufyrirtækja eins og það liggur fyrir? Er þetta frv. eins og hann vill hafa það? Vill hann láta skattleggja Hitaveitu Akureyrar eins og gert er ráð fyrir í frv.? Vill hann láta leggjast á Hitaveitu Dalvíkur, Ólafsfjarðar og Húsavíkur? Vill hann hækka um 30% rafmagnið hjá þeim á Raufarhöfn og Þórshöfn? Ég hlakka til að heyra hv. 5. þm. Norðurl. e. koma hér upp og segja það hlæjandi að þeir hafi gott af því fyrir norðan að borga þennan skattviðauka til ríkisstjórnarinnar eins og nú stendur á.