Jóhannes Geir Sigurgeirsson:
Hæstv. forseti. Ég mun ekki fara hér út í efnislega umræðu um mál sem ekki er á dagskrá. Ég mun halda mig við umræðu hér um þingsköp. En eitt get ég sagt hv. 2. þm. Norðurl. e. að eins og hans framganga hefur hér því miður verið í þessari hv. deild síðustu daga hljóma orð úr hans munni í minn garð um aumingjaskap og ræfildóm sem ljúfustu hrósyrði. Ég er tilbúinn til að taka upp umræðu við hann hvenær sem er og þegar kemur að umræðu um orkumálin, um orkuskattinn, en ég ætla ekki að fara út í það hér í umræðum um þingsköp.
En eitt ætla ég að segja honum: Lái mér hver sem er þó að mér blöskraði áðan þegar hv. 14. þm. Reykv. gerði kröfu til þess að orkuskattsfrv. yrði tekið hér til umræðu á þeim forsendum sem hv. 2. þm. Norðurl. e. hafnaði algjörlega fyrir viku síðan. Lái mér það hver sem vill.