Salome Þorkelsdóttir:
Hæstv. forseti. Ég er meðflm. að þessu frv. og ætla ekki að fara efnislega í það hér við 1. umr., enda hefur frsm. og 1. flm. frv., hv. 14. þm. Reykv., gert því það góð efnisleg skil. En vegna þess sem kom fram í máli hans þar sem hann vakti athygli á því hversu fáir hv. þm. væru staddir í þingdeildinni þegar þessi umræða fer fram, og þá ekki síst stjórnarandstöðuþm., þótti mér rétt að taka undir það. ( GHG: Stjórnarþm.) Stjórnarþm., ætlaði ég að segja, ég þakka hv. 14. þm. Reykv. fyrir að leiðrétta mig því að ég ætlaði svo sannarlega fyrst og fremst að nefna að það er athyglisvert að þeir sjá ekki ástæðu til að taka þátt í þessari umræðu og láta í ljósi álit sitt á því þýðingarmikla máli sen hér er verið að flytja.
Það ber að harma að hæstv. fjmrh. hefur ekki haft tök á því að vera hér í dag en komið hafa skýringar á því hvers vegna svo er og auðvitað taka þm. tillit til þess. En það hefði verið mjög æskilegt að heyra viðhorf hans til þessa frv. og gefa honum kost á því að skýra mál sitt sem snýr að þessum mikilvæga þætti í skattamálum og hvaða viðhorf hann hefur til þess réttlætismáls sem hér er verið að flytja.
Ég ætlaði einnig að vekja athygli á því að hv. 5. þm. Reykv. hafði gefið sér tíma til að skjótast hér inn í deildina á þennan fund en var ekki hér inni í deildinni þegar þessi umræða fór fram. Hins vegar vissi ég ekki að hann sat hér í hliðarsal og ber að fagna því að hann hafði tækifæri til að fylgjast með þessari umræðu og tekur þá væntanlega til greina að þetta mál verði tekið til afgreiðslu í hv. fjh.- og viðskn. Hann kom hér upp áðan í þingskapaumræðu og lét heldur óviðurkvæmileg orð falla, eins og við var að búast, um Sjálfstfl. sem hann á ákaflega erfitt með að sætta sig við hvað er sterkt stjórnmálaafl í þessu þjóðfélagi. Fannst mér heldur lítið leggjast fyrir kappann í máli hans.
Ég gat ekki látið hjá líða að nefna þetta hér en vænti þess, þrátt fyrir að það eru þm. Sjálfstfl. sem flytja þetta mál, að hann gefi sér tíma til að boða til fundar í fjh.- og viðskn. og taka þetta mál til afgreiðslu þar.