Guðmundur Ágústsson:
Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að tefja þessa umræðu öllu frekar en vegna orða hv. þm. Guðmundar H. Garðarssonar um að ég fari að gefa einhverjar yfirlýsingar svona við 1. umr., tel ég það ekki ráðlegt. Ég hef ekki tamið mér að fullyrða eitt né annað um hluti sem ég skal viðurkenna að ég er kannski ekki nógu vel að mér í. Hins vegar finnst mér mjög eðlilegt að þetta frv., sem önnur frv. sem fyrir fjh.- og viðskn. koma, fái efnislega meðferð. Þau orð sem hv. þm. hafði eftir mér um að það fengi sína meðferð má ekki túlka á þann hátt að ég ætli að sniðganga þetta frv. á einn eða annan hátt. Frv. í fjh.- og viðskn. hafa verið rædd á mjög svo málefnalegan hátt og ég held, eins og ég sagði hér í fyrri ræðu minni, að enginn hafi kvartað undan því að harðræði hafi verið beitt í meðferð mála. Hafi komið fram ósk um að eitt eða annað mál sé tekið á dagskrá þá hefur verið tekið vel í það og málið tekið á dagskrá.
Ég upplýsti það einnig að fyrir nefndinni liggja tvö ef ekki þrjú þmfrv. Sum þeirra hafa verið rædd. Eitt frv., sem mig minnir að hv. þm. Guðmundur H. Garðarsson hafi flutt, er fyrir nefndinni. Það sem stendur í vegi fyrir að það mál hafi fengið efnislega meðferð er að ég sem formaður nefndarinnar bað einn þm. Sjálfstfl. að spyrja hv. þm. Guðmund H. Garðarsson til hvaða aðila hann vildi senda málið til umsagnar. Sá féllst á það en hins vegar hefur svarið ekki komið.
Varðandi frv. sem slíkt þá get ég að vissu leyti tekið undir það að eignarskattar hér á Íslandi eru orðnir nokkuð háir og mín skoðun er sú að sem mest eigi að forðast að setja á eignarskatta. Hvort þetta frv. sem hér er hafi forgang í því efni vil ég ekki fullyrða um. Mér hefur fundist, og minn flokkur lagði höfuðáherslu á það þegar hann gekk til liðs við þessa ríkisstjórn, að svokallaður ekknaskattur yrði afnuminn og ég lít þannig á að að stórum hluta til hafi það tekist. En betur má ef duga skal og ég vænti þess að minn flokkur komi til með að berjast fyrir því að almennir eignarskattar, og þá sérstaklega stóreignarskattsþrepið, verði felldir niður.
Meira vildi ég ekki segja við þessa umræðu en ég vonast eftir því þegar þetta mál, sem önnur mál sem lúta að skattamálum, verður tekið fyrir í nefndinni verði umræður og það skal ekki standa á mér að takmarka tíma nefndarmanna í því. Ætlunin er sú að flest þau frv., ef ekki öll, sem fyrir nefndina hafa verið lögð komi til 2. umr.