Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir:
Herra forseti. Ég studdi þetta mál af því að mér finnst það réttlætismál. Það er vitaskuld óréttlæti að einhver starfsstétt skuli geta samið um það í samningum að fá full laun í fæðingarorlofi en annarri sé ekki leyft að semja við atvinnurekanda sinn ef hann er svo almennilegur að hann vill borga. Mér finnst að hérna gangi tryggingaráð eiginlega lengra en það ætti að gera. Í sjálfu sér finnst mér tryggingaráði ekki koma þetta mikið við. Það er ekkert verið að sækja í tryggingarnar. Það er verið að sækja í vasa vinnuveitandans svo að ég sé eiginlega ekki hvers vegna það tekur þessa afstöðu.
Það er ekki mjög langt síðan konur á þessum almenna vinnumarkaði fóru að fá fæðingarorlof. Mig minnir að það hafi verið í sólstöðusamningunum svokölluðu, árið 1977. Það var til umræðu að það voru stórar starfsstéttir hér á almennum vinnumarkaði þar sem konur höfðu aðeins hálfan mánuð í fæðingarorlof. Það var eitthvað um það leyti sem þau lög tóku gildi að konur fengu fæðingarorlof ef þær voru úti á vinnumarkaði en þá í gegnum Atvinnuleysistryggingasjóðinn. Þetta mæltist náttúrlega mjög illa fyrir hjá karlmönnum í verkalýðshreyfingunni því að sá hugsunarháttur var og er mjög gegnumgangandi að það sé eiginlega mál konunnar að eiga börn. Smátt og smátt hefur orðið breyting á þessu og smátt og smátt hefur fæðingarorlof lengst og greiðslurnar hækkað, en meðan ég hafði afskipti af þessu í mínu fagfélagi fannst mér atvinnurekendur, hverjir sem það voru, hvort sem það voru einstaklingar eða það opinbera, reyna að komast hjá því að greiða yfirleitt nokkurn skapaðan hlut ef þeir gátu. Mér finnst það þess vegna afskaplega virðingarvert ef einhverjir eru komnir með þann hugsunarhátt að gera jafnvel betur en þeir eru skyldir til samkvæmt lögum. Ég vil bara alls ekki taka þetta frá fólki, ekki fyrir nokkurn mun.
Ég vek athygli á því sem hv. 9. þm. Reykn. sagði áðan --- gott er að hér situr eftir aðstoðarmaður heilbrrh. því að þetta þarf nauðsynlega að taka til athugunar í lögum einhvers staðar --- að það er ekki greitt í lífeyrissjóðina á meðan foreldri þiggur fæðingarorlof. Nú er fæðingarorlof orðið sex mánuðir. Ef við gefum okkur það að það sé konan sem taki fæðingarorlofið, sem er í nærri því öllum tilfellum, þá er hún í ýmsum lífeyrissjóðum bara gjörsamlega búin að tapa lífeyrisréttindum. Ef ekki er greitt af launþega í lífeyrissjóði, a.m.k. eru lögin svona sums staðar, í sex mánuði, er rétturinn glataður. Hann verður að vinna sig upp aftur. Það er ekkert langt síðan kona leitaði til mín sem ætlaði sér að sækja um húsnæðislán og hafði einmitt glatað lífeyrisrétti á þennan hátt. Þetta þarf náttúrlega að taka til athugunar, annaðhvort ef þessi nýju lög um lífeyrissjóðina koma einhvern tíma upp á borðið eða einmitt í þessum lögum um fæðingarorlofsgreiðslur.
Ég get ómögulega séð hætturnar sem stafa af því að þetta frv. komist í gegn eins og það er. Ég get
ekki séð að það þyrfti að stangast á við eitthvað annað, og ég vona bara að það verði að lögum sem allra fyrst.