Fyrirspurn um kennsluefni í íslenskum bókmenntum
Miðvikudaginn 31. janúar 1990


     Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson):
    Hæstv. forseti. Það er sérkennileg árátta sumra hv. þm. Sjálfstfl. að vilja fara að fá skýrslu um hvert viðvik í öllum grunnskólum landsins sem eru nú ekki nema 203. Það er útilokað að taka skýrslu af því tagi saman á þeim tíma sem ætlaður er til svara. Ég sé auk þess ekki að það þjóni nokkrum tilgangi. Embættismenn menntmrn., námsstjórinn í íslensku og framhaldsskóladeildin, hafa svarað þessari fsp. hv. þm. lið fyrir lið eins og kostur er. Gerð er grein fyrir grundvallaratriðum málsins og rakin öll þau bókmenntaverk sem lesin eru í framhaldsskólum landsins. Frá mér fær hv. 2. þm. Norðurl. e. ekki annað svar við þessari fsp. Hann getur reynt að bera fram aðrar ef honum sýnist svo. En svo verð ég því miður, hæstv. forseti, að óska eftir því að fá að fara á ríkisstjórnarfund og að ef nauðsynlegt er að halda áfram umræðu um þingsköp verði einnig gert hlé á henni. Er það hægt, hæstv. forseti?