Forseti (Guðrún Helgadóttir):
Vegna orða hv. 2. þm. Norðurl. e. vill forseti upplýsa eftirfarandi: Forseti las allítarlega svar hæstv. menntmrh. Hv. 2. þm. Norðurl. e. fékk samdægurs og svarið barst bréf frá forseta um að það væri komið og það var honum sent. Engar athugasemdir hafa frá honum komið hingað til svo að forseta var með öllu ókunnugt um að hann teldi svarið ekki fullnægjandi.
Nú hefur hæstv. ráðherra lýst því yfir að hann telji sig ekki geta svarað umræddri fsp. á annan veg en hann hefur gert og því hlýtur forseti að leggja til að hv. þm. beri fram nýja fsp. sem nákvæmlega tiltekur það sem hv. þm. fýsir að vita og forseti mun að sjálfsögðu veita því máli brautargengi. Þannig er saga þessa máls og forsetar hafa síður en svo reynt að leggjast í veginn fyrir því að hv. þm. fengi svör við þeim fsp. sem hann hefur fram borið.