Fyrirspurn um kennsluefni í íslenskum bókmenntum
Miðvikudaginn 31. janúar 1990


     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Áður en hv. 2. þm. Norðurl. e. tekur til máls um þingsköp vill forseti leita samstarfs við hv. þm. um að hér verði hægt að taka á dagskrá dagskrármál þennan stutta tíma sem við eigum eftir. Mælist forseti til að menn sýni þann samstarfsvilja að stytta heldur mál sitt í umræðum um þingsköp.