Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Ég vil benda hv. 2. þm. Vestf. á að þetta hefði nú að öllum venjulegum þingsköpum átt að vera umræða um þingsköp.
    Varðandi athugasemdir hv. 2. þm. Vestf. má vel fallast á að auðvitað er skylda forseta að reyna að sjá svo til að hér sé fyrirspurnum svarað. Forseti hefur reynt að hafa nokkurn hemil á að þessi umræða í fyrirspurnatímum fari út um víðan völl. En það vill nú vera allerfitt stundum að hafa hemil á hv. þm. Forseti vill því biðja þá um að sýna samvinnuvilja, og við reynum öll að takmarka þessa umræðu við spurningar og svör.