Fyrirspurn um atvinnulíf í Rangárvallasýslu
Fimmtudaginn 01. febrúar 1990


     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Forseta er alveg ljóst að hann á ekki aðra kosti en að fara að núgildandi lögum um þingsköp. Forseti hefur hins vegar nú þegar beitt sér fyrir því að þingskapalög verði endurskoðuð eins og hv. þm. veit, því að bréf hafa borist þingflokkum þar sem beðið er um tilnefningu í nefnd sem síðan verður kosin hér á hinu háa Alþingi. Athugasemd sem þessi er því harla ónauðsynleg.