Greiðsla kostnaðar á fundaferðum ráðherra
Fimmtudaginn 01. febrúar 1990


     Utanríkisráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson):
    Virðulegi forseti. Í tilefni af þessum umræðum vil ég taka fram eftirfarandi:
    Í fyrsta lagi er það sjálfsögð regla, að mínu mati, þó hún sé ekki skráð, að þegar ráðherrar, forustumenn stjórnmálaflokka, ferðast eða taka þátt í ráðstefnum alþjóðasamtaka, eins og t.d. Alþjóðasambands jafnaðarmanna sem hér hefur verið nefnt, á það að greiðast að öllu jöfnu af flokki viðkomandi flokksformanns eða forustumanns. Ég get þó nefnt tvö dæmi þar sem það kunni að vera álitamál. Hið fyrra var að á aðalfundi Alþjóðasambands jafnaðarmanna í Stokkhólmi á sl. sumri voru það samantekin ráð utanríkisviðskiptaráðherra Norðurlanda að nota tækifæri þess fundar til þess að ná sérstaklega fundi um Evrópumálefni við forsætisráðherra Frakka sem staddur var á þessu þingi. Annað dæmi er þegar formaður ráðherraráðs EFTA var beðinn um að flytja erindi og hafa framsögu um þessi mál á fundi samtaka jafnaðarmannaflokka og verkalýðshreyfinga á Norðurlöndum. Þegar um er að ræða að viðkomandi sækir fundi af þessu tagi af þessum sérstöku tilefnum þykir mér eðlilegt, svo að ég lýsi því skilmerkilega, að kostnaður sé greiddur vegna þess að hann er þarna í embættiserindum sínum.
    Annað mál varðar kynningu á ýmsum málum á vegum stjórnvalda og fyrir því eru auðvitað mörg fordæmi. Ég vil aðeins minna á að hér hefur verið til umfjöllunar sérstök þáltill. um nauðsyn þess að kynna EFTA/EB-mál betur en gert hefur verið og menn hafa kvartað undan því, reyndar fulltrúar allra flokka, að þeirri kynningu hafi verið ábótavant. Utanrrn. hefur efnt til nokkurra slíkra funda þar sem hlutverk utanrrh. hefur verið að leggja fram gögn á fundinum og hafa framsögu, mjög á grundvelli þeirrar skýrslu sem lögð hefur verið fyrir Alþingi. Að sjálfsögðu berst mikið af fyrirspurnum á slíkum fundum. Ekki hvað síst er það nú í tengslum við sjávarútvegsmál sem er snar þáttur í þessu, og við því er ósköp einfaldlega það að segja að
stjórnmálamaður sem staddur er á almennum fundi stýrir ekki spurningum og hann verður að meta það hverju sinni hvernig hann svarar spurningum.
    Þriðja atriðið varðar t.d. samskipti við stofnanir eins og skóla. Í tengslum við þessa fundi hef ég sótt heim framhaldsskóla og það gerist hvort tveggja að það er að minni ósk eða ósk framhaldsskóla. Það liggja fyrir óskir frá fjölmörgum framhaldsskólum um þetta, m.a. vegna þess að á sviði félagsfræðabrauta hefur verið um þessi mál fjallað, mikið legið á ráðuneytinu um að gefa upplýsingar, afhenda skýrslur, greinargerðir o.s.frv., og við því hefur að sjálfsögðu verið orðið. Ég tel það í alla staði eðlilegt að við reynum að halda þeirri fræðslustarfsemi áfram í skólum, ekki síst þegar ákveðinn undirbúningur hefur verið lagður í skólastarfinu sjálfu.
    Loks vil ég láta þess getið að af hálfu utanrrn. hefur frá sl. hausti verið unnið að undirbúningi á sérstökum kynningarþætti um þetta mál, þ.e. að gerð

vídeómyndar sem er ætluð til almennra nota og almenningsnota og upplýsingadeild utanrrn. hefur unnið að undirbúningi að, m.a. vegna þrálátra og ítrekaðra beiðna framhaldsskóla um það að fá aukið upplýsingaefni af þessu tagi.