Forsætisráðherra (Steingrímur Hermannsson):
Virðulegi forseti. Ég verð að ítreka það sem ég sagði áðan að ég greini hér ekki frá umræðu í ríkisstjórninni þannig að það mátti ekki skilja af mínum orðum að einhver hefði fallið frá fyrri athugasemdum. Raunar tók ég fram að mönnum væri kunnugt um mismunandi áherslur stjórnarflokkanna, en rétt væri að spyrja talsmenn þeirra sjálfa um það atriði.