Geir H. Haarde:
    Virðulegi forseti. Það liggur hér fyrir að lokinni þessari umræðu að svarið við spurningu fyrirspyrjanda um það hvort afstöðu ríkisstjórnarinnar hafi verið breytt frá því sem kemur fram í umræddri fréttatilkynningu er nei. Henni hefur ekki verið breytt. Það er vitaskuld kjarni málsins. Hvað sem líður einhverju rabbi eða spjalli manna á ríkisstjórnarfundum öðru hvoru megin við áramótin liggur ekki annað fyrir skjalfest opinberlega í málinu en margumrædd fréttatilkynning og hún er þess vegna síðasta orðið í málinu af hálfu ríkisstjórnarinnar.