Fyrirspyrjandi (Danfríður Skarphéðinsdóttir):
Virðulegi forseti. Sparnaður og hagræðing eru hugtök sem stöðugt eru í umræðunni. Á erfiðum tímum eins og nú reyna fyrirtæki að leita allra leiða til að draga úr rekstrarkostnaði sínum. Þannig hafa t.d. fiskvinnslufyrirtæki eitt af öðru sýnt mikla viðleitni í þá átt að reyna með öllum tiltækum ráðum að hagræða og spara í öllum sínum rekstri. Það sama ætti auðvitað að gilda um stofnanir ríkisins.
Nú síðari mánuðina hefur mikið verið rætt um sparnað í heilbrigðiskerfinu. Hafa hugmyndir um sparnað einkum beinst að þjónustuþáttum eins og t.d. að fækka stöðugildum og lækka kostnað við lyf og sérfræðiaðstoð. Í öllum þessum sparnaðarhugleiðingum mætti e.t.v. líta til fleiri þátta en þess sem snýr beint að sjúklingnum og þjónustu við hann.
Raforkukostnaður og orkunotkun er stór þáttur í rekstri margra stofnana, ekki síst sjúkrahúsa. Vegna mikils orkukostnaðar í nýbyggingu sjúkrahússins á Ísafirði gerðu starfsmenn Verkfræðistofunnar Vistu úttekt á orkunotkun og kostnaði við orkukaup stofnunarinnar á vegum heilbrrn. sl. sumar. Vettvangskönnun fór fram í byrjun maí og var raforkunotkun sírituð um svipað leyti. Niðurstaða verkfræðistofunnar er sú að með ýmsum aðgerðum mætti lækka raforkukostnað fyrir árið 1989 úr 10,2 millj. í 5,5 millj. eða um 46%.
Tillögur um leiðir til að ná fram þessum mikla sparnaði er að finna í allítarlegri og vandaðri skýrslu Verkfræðistofunnar Vista. Mögulegar leiðir eru allt frá einföldum og sjálfsögðum atriðum eins og að halda fundi með starfsfólki og ræða um hagnýtt gildi orkusparnaðar til ýmissa tæknilegra atriða sem varða t.d. loftræstikerfi og vatnsrennsli. Þar sem hér sýnist vera
um vænlega sparnaðarleið að ræða til rekstrar þessarar tilteknu stofnunar hef ég leyft mér á þskj. 503 að beina eftirfarandi fsp. til hæstv. heilbrrh. og les ég hana hér, með leyfi forseta:
,,1. Með hvaða hætti hefur athugun og skýrslu Verkfræðistofunnar Vistu, sem gerð var sl. sumar á vegum heilbrrn., um mögulegar leiðir til sparnaðar í orkunotkun og orkukaupum Fjórðungssjúkrahússins á Ísafirði verið fylgt eftir?
2. Hefur heilbrrh. í hyggju að láta gera sams konar athuganir á orkunotkun annarra sjúkrahúsa í landinu?``