Ólafur Þ. Þórðarson:
Herra forseti. Það er rétt að fram komi að offramleiðsla er á raforku í landinu í dag. Landsvirkjun hefur þá stefnu að greiða upp skuldir á 20 árum. Spari Íslendingar verulega raforkunotkun mun það einfaldlega þýða það að aðrir taxtar verða hækkaðir.
Það blasir jafnframt við að það snjóbræðslukerfi sem notað hefur verið vestra kostar verulega peninga og mestur sparnaðurinn liggur í að hætta að hafa snjóbræðslukerfið. Þeir sem hafa fylgst með veðurfréttum mættu hins vegar gjarnan gera sér grein fyrir því að þörf þeirra sem þurfa að fara og njóta endurhæfingar á sjúkrahúsinu fyrir það að komast eftir gangstéttum án þess að þær séu á kafi í snjó hlýtur einnig að vera nokkur. Mér þætti vænt um að fá afstöðu Kvennalistans til þess. Hver er þeirra stefna í þessum málum? Vilja þær að menn ferðist á skíðum eða á einhverjum öðrum verkfærum inn í sjúkrahúsið ef þær leggja til að hætt skuli að veita þessa þjónustu?