Ólafur Þ. Þórðarson:
    Herra forseti. Ég hef hvorki lagt til að virkjað verði ótakmarkað í landinu né að keypt sé af öðrum ríkisstofnunum á hvaða verði sem er vegna þess að það sé önnur ríkisstofnun.
    Ég tel að það hafi komið skýrt fram í mínu máli að mesti sparnaðurinn liggur í því að leggja niður snjóbræðslukerfið. Ég óskaði eftir því hvort það ætti að koma fram á þann veg, fá svör við því hvort menn vildu minni þjónustu. Ég hef fengið svarið. Menn vilja minni þjónustu.