Mengunvarnir á Gunnólfsvíkurfjalli
Fimmtudaginn 01. febrúar 1990


     Utanríkisráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson):
    Virðulegi forseti. Svör mín við þessum þremur spurningum komu reyndar skýrt fram í máli mínu og greinargerð sem dreift var hér á Alþingi við umræður utan dagskrár 23. nóv. sl., en þær umræður fóru fram fyrir atbeina hv. 18. þm. Reykv., samþingflokksmanns fyrirspyrjanda. Þessar umræður eru prentaðar á bls. 1171--1181 í þingtíðindum.
    Svo sem ég greindi þá frá var olía sett á olíugeyma ratsjárstöðvanna bæði á Bolafjalli og Gunnólfsvíkurfjalli án heimildar og án samráðs við íslensk stjórnvöld. Eins og einnig var þá frá greint höfðu teikningar af ratsjárstöðvunum, þar með talið olíugeymum, fengið umfjöllun í skipulags- og byggingarnefnd varnarsvæða árið 1986 og var þá leitað umsagnar Heilbrigðiseftirlits á varnarsvæðum og Vinnueftirlits ríkisins. Ráðgert var að Heilbrigðiseftirlit varnarsvæða, en þar starfar nú fastráðinn sérfræðingur í mengunarvörnum, svo og Siglingamálastofnun ríkisins mundu gera úttekt á olíukerfum stöðvanna áður en notkun þeirra hæfist. En svo sem ég gerði þingheimi grein fyrir 23. nóv. sl. var engin starfræksla fyrirhuguð á stöðvunum eða olíukerfunum á næstunni.
    Þegar eftir að vitneskja barst um að olía hefði verið sett á olíugeyminn á Gunnólfsvíkurfjalli var gengið úr skugga um að frágangur þar væri tryggilegur og síðan hafa Heilbrigðiseftirlit á varnarsvæðum og Siglingamálastofnun ríkisins unnið að úttekt á olíugeymum, olíukerfum og mengunarvarnaþáttum þar að lútandi. Verður farið að kröfum þessara aðila um lokafrágang.
    Reglulegt eftirlit, eins og spurt er um í þriðju spurningu, er með stöðvunum og stöðugt fjareftirlit hefur verið undirbúið og verður sett upp á næstunni.
    Ég vil, virðulegi forseti, að lokum, vegna þess að af fyrirspurn þeirri sem hér er til umræðu, svo og vegna fréttaflutnings Ríkissjónvarps í fréttatíma 23. jan. sl. sem byggðist á skýrslu um vettvangskönnun Siglingamálastofnunar
ríkisins í lok nóv. sl., mætti draga þá ályktun að kastað hafi verið til höndum við hönnun og byggingu olíugeymanna og olíukerfanna leyfa mér að lesa hér úr skýrslu sem Verkfræðistofa Stanleys Pálssonar vann að beiðni Ratsjárstofnunar, dags. 6. nóv. sl., en þar eru helstu niðurstöður dregnar saman sem hér segir, með leyfi forseta:
,,1. Samkvæmt framangreindu þá gera hönnunarforsendur fyrir olíugeyminn og neyslulögnina á Gunnólfsvíkurfjalli ráð fyrir tvö- til þreföldu álagi miðað við þær álagsforsendur sem íslenskir staðlar og reglur um olíumengun gera ráð fyrir.
    2. Olíugeymir og neyslulögn eru því efnismeiri og sterkari en kveðið er á um samkvæmt íslenskum stöðlum og reglum.
    3. Varnarþróin er það stór að ekki verður séð að mengunarhætta sé fyrir hendi vegna ónógs rýmis í henni þótt svo ólíklega vildi til að geymir rifnaði.
    4. Fullyrðingar um að þróin verði óvirk þegar hún fyllist af snjó virðast ekki á rökum reistar né heldur

að frágangur neyslulagnar sé óvandaður.
    5. Við þetta má svo bæta að olíumannvirki sem byggjast á sömu hönnunarforsendum hafa verið í rekstri víða um heim í langan tíma og við svipaðar aðstæður og á Gunnólfsvíkurfjalli.``
    Þess skal og getið að af hálfu varnarliðsins hafði íslensk verkfræðistofa, Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen, með höndum byggingareftirlit með ratsjárstöðvunum á Gunnólfsvíkurfjalli sem og á Bolafjalli. Framkvæmdin sjálf var hins vegar í höndum Íslenskra aðalverktaka.
    Að því er varðar viðbótarspurningu um það að bréfum hafi ekki verið svarað, sem að sjálfsögðu ber að gera, þá er mér ekki kunnugt um það. Sé svo biðst ég velvirðingar á því en mun gera ráðstafanir til þess að þeim verði svarað svo sem efni standa til.