Skýrsla um kaup hlutabréfa í Samvinnubanka.
Fimmtudaginn 01. febrúar 1990


     Þorsteinn Pálsson:
    Frú forseti. Ég þakka hæstv. viðskrh. fyrir hans svör. Ég tek þau góð og gild og vænti þess að honum takist að leggja skýrsluna hér fram í næstu viku. Æskilegt væri, með tilliti til þess hversu langur tími er liðinn síðan beiðnin kom fram og með tilliti til eðlis málsins, að umræður geti farið fram um skýrsluna þegar í næstu viku og ég beini þeim tilmælum bæði til hæstv. ráðherra og til forseta að svo megi verða.