Skýrsla um kaup hlutabréfa í Samvinnubanka.
Fimmtudaginn 01. febrúar 1990


     Þorsteinn Pálsson:
    Frú forseti. Hið góða minni hæstv. iðnrh. bregst honum nú í hverri ræðunni á fætur annarri þegar hann þarf að finna fordæmi fyrir því hvernig stjfrv. eru lögð fram. Nú þegar hefur hann sjálfur og hv. 1. þm. Reykv. gert grein fyrir því að dæmið um Sementsverksmiðju ríkisins úr tíð fyrri ríkisstjórnar hafði ekki við rök að styðjast.
    Vegna þess dæmis sem hæstv. iðnrh. tók um frv. sem hér var lagt fram um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri hér á landi er rétt að taka þetta fram: Það frv. var rætt innan þáverandi stjórnarflokka. Það kom mjög skýrt fram að Framsfl. gat ekki og vildi ekki fallast á frv. en bæði Alþfl. og Sjálfstfl. voru tilbúnir að styðja það. Það var að fenginni þessari niðurstöðu lagt hér fram undir lok þinghalds til kynningar með þeirri yfirlýsingu að þáv. ríkisstjórn stæði ekki að baki frv. og af þeim sökum kæmi það ekki til umræðu á hinu háa Alþingi heldur yrði fyrst og fremst kynnt sú niðurstaða sem tveir af þáv. stjórnarflokkum höfðu komist að í þessu máli en ekki var þingmeirihluti fyrir. Þar af leiðandi er ekki heldur hægt að nota þetta dæmi sem fordæmi í þessu efni.
    Kjarni málsins er auðvitað sá að stjfrv. eru ekki lögð fram á Alþingi nema fyrir liggi samþykki ríkisstjórnar fyrir því að þau séu lögð fram. Og samkvæmgt langri venju er samþykki ríkisstjórnar í því fólgið að þeir flokkar sem að viðkomandi ríkisstjórn standa heimili framlagningu frv. Frv. sem hér er til umræðu í þingskapaumræðu hefði með öðrum orðum ekki verið lagt fram hér á hinu háa Alþingi nema Alþfl. hefði gefið samþykki sitt til þess. Það er ekki unnt að leggja fram stjfrv. nema ríkisstjórnin, og þar á meðal allir flokkar ríkisstjórnarinnar, heimili að það sé lagt fram sem stjfrv. Hitt er svo annað mál og reyndar fagnaðarefni að hér hefur komið fram að Alþfl. er andvígur efnisatriðum frv. sem hann hefur heimilað að leggja fram sem stjfrv.
Það er út af fyrir sig fagnaðarefni. Og það er auðvitað rökrétt niðurstaða, í ljósi þeirra upplýsinga sem hér hafa komið fram, að ríkisstjórnin komi nú saman til fundar og afturkalli frv. og vinni sína heimavinnu.
    Hitt er svo ástæða til að ræða hér, hvernig forusta stjórnarflokkanna hér í þinginu hefur haldið á þessu máli. Það var gagnrýnt af hálfu stjórnarflokkanna þegar farið var fram á frestun málsins, ekki síst af forseta Ed. Nú hagar svo til að hæstv. iðnrh. hefur lýst því yfir að hann sé meira en reiðubúinn að taka þátt í umræðum um þetta mál í Ed. í dag. Það gefst tími til slíkra umræðna með því að ákveðnir hafa verið fundir í Nd., en þá neitar forseti Ed. að koma til fundar hér í Sþ. og svara fyrir það hvers vegna ekki er haldinn á sama tíma og neðrideildarfundurinn verður haldinn í dag fundur í Ed. Alþingis til þess að fjalla um þetta mál. Það lýsir mjög einkennilegri afstöðu af hálfu forseta Ed., einkennilegri virðingu fyrir Alþingi og einkennilegum skilningi á skyldum sínum sem forseti Ed. Alþingis að neita að koma til

þessarar umræðu hér í Sþ. og gera grein fyrir því hvers vegna ekki var efnt til þessara umræðna. Augljóst er auðvitað öllum að ástæðan er ágreiningur innan stjórnarflokkanna og þess vegna hefði auðvitað verið skynsamlegast, eins og hér hefur verið bent á, að ráðherrarnir lýstu því yfir að frv. yrði dregið til baka og að ríkisstjórnin ynni sína heimavinnu. Ella verður að ítreka þá eðlilegu kröfu um málsmeðferð, sem ég fagna að hæstv. iðnrh. styður, að Ed. komi saman til fundar í dag til þess að ræða stöðu málsins.