Forseti (Salome Þorkelsdóttir):
Áður en þessi þingskapaumræða heldur áfram, en hæstv. iðnrh. hefur beðið um orðið, vill forseti taka það fram að mér hafa ekki borist skilaboð um að forseti Ed. neiti að koma hér. Það var forseti sá sem hér stendur sjálfur sem taldi að hæpið væri að gera þá kröfu á þessum vettvangi að forseti Ed. svaraði sem slíkur. Einnig vil ég taka það fram að ég veit ekki annað en að honum hafi borist orð um að nærveru hans væri óskað hér. Það hafa hins vegar ekki komið nein skilaboð um að hann neiti að mæta hér á þessum fundi.
Einnig vill forseti geta þess, vegna þeirra orða sem hér hafa fallið um að fundir forseta standi yfir á meðan þingfundur sé hér, að þetta er ekkert einsdæmi og það veit ég að hv. þm. er vel kunnugt um. Til þess eru varaforsetar að geta hlaupið í skarðið þegar aðalforsetar þurfa á því að halda, m.a. þegar, eins og oft kemur fyrir, haldnir eru stuttir fundir um einhver mál sem talið er að geti ekki beðið. Þannig stendur forsetafundur yfir nú og vonandi kemur það að nægilegu gagni að varaforseti hefur þess vegna hlaupið í skarðið.