Kristín Einarsdóttir:
Virðulegur forseti. Kvennalistinn hefur frá upphafi haft það á stefnuskrá sinni að sameina beri öll verkefni á sviði umhverfismála undir eitt ráðuneyti til virkari og hagkvæmari stjórnunar og markvissrar umhverfisverndar. Mig langar til þess, með leyfi forseta, að lesa smákafla úr stefnuskrá Kvennalistans sem fjallar um umhverfismál:
,,Framtíð mannkyns veltur á því hvernig við umgöngumst náttúruna, hvernig við nýtum gögn hennar og gæði og hvort við berum gæfu til að bæta úr þeim spjöllum sem við höfum valdið henni. Móðir jörð setur ákveðin lögmál. Maðurinn gengur þvert á mörg þeirra á leið sinni að hámarks skammtímagróða og tekur hvorki tillit til hagsmuna heildarinnar, jarðar né framtíðar. Umhverfisvernd er að ganga um hverja auðlind með virðingu og nærgætni og taka aðeins vextina en láta höfuðstólinn óskertan til að afkomendur okkar fái notið sömu náttúrugæða og núlifandi kynslóðir. Umhverfismál á Íslandi falla að einhverju leyti undir flestöll ráðuneytin. Afleiðingin er óstjórn og skörun. Sameina ætti öll verkefni á sviði umhverfismála undir eitt ráðuneyti til virkari og hagkvæmari stjórnunar og markvissrar umhverfisverndar.``
Þetta var tilvitnun í stefnuskrá Kvennalistans. Í samræmi við þessa stefnu fluttu þingkonur Kvennalistans á 111. löggjafarþingi till. til þál. þar sem lagt var til að stofnað yrði sérstakt ráðuneyti umhverfismála með ákveðnum verkefnum sem voru rannsóknir og stjórnun náttúruauðlinda, náttúruvernd, umhverfisfræðsla, skipulagsmál, mengunarvarnir og alþjóðleg samskipti um umhverfismál. Undir þetta ráðuneyti átti síðan að flytja stofnanir eða deildir sem nú starfa á þessum sviðum undir stjórn ýmissa ráðuneyta.
Umhverfismál eru stór og viðamikill málaflokkur sem nauðsynlegt er að skipi verðugan sess í stjórnkerfi landsins. Umhverfismál á Íslandi falla að
einhverju leyti undir flestöll ráðuneytin eins og ég sagði áðan og það hefur orðið til þess að um mikla óstjórn og skörun er að ræða. Þess vegna teljum við mjög aðkallandi að öll þessi verkefni falli undir eitt ráðuneyti. Við höfum líka lagt mjög mikla áherslu á það að aðskilja beri mat og eftirlit með auðlindum landsins annars vegar og hagnýtingu auðlindanna hins vegar. Hið síðarnefnda á heima í ráðuneyti eða ráðuneytum atvinnumála en hið fyrrnefnda í sérstöku ráðuneyti umhverfismála. Á þann hátt verður umfjöllun og ákvarðanataka um nýtingu auðlindanna opin og síður hætta á hagsmunatengslum við eftirlit. Þetta þýðir þó ekki að ábyrgðin sé tekin af þeim sem nýta auðlindina sjálfa. Það er fráleitt að túlka þetta þannig, eins og oft hefur verið gert, að með því að aðskilja eftirlit og nýtingu séu þeir firrtir allri ábyrgð sem nýta auðlindina.
Í tillögu Kvennalistans frá 111. löggjafarþingi, sem er 150. mál þess þings, er greint frá því hvernig við höfum hugsað okkur breytingu á skipan umhverfismála
sem ég ætla ekki að tíunda hér í smáatriðum. Þessar breytingar voru mjög róttækar en þó gerðu þær ekki ráð fyrir nýju bákni, eins og það er stundum kallað, heldur var fyrst og fremst talað um tilflutning og samræmingu málaflokksins. Því er þó ekki að leyna að þörf er á átaki til úrbóta á mörgum sviðum umhverfismála. Auðvitað kostar það fé að bæta þar úr. Ekki er nóg að samræma eingöngu yfirstjórnina heldur verður líka að veita auknu fé til umhverfismála. Það hefur verið allt of lítið og knappt hingað til. En það er trú okkar kvennalistakvenna að með þeirri skipan mála sem við stungum upp á með tillöguflutningi okkar verði þessi mikilvægi málaflokkur ekki sama hornreka og hann er núna í flestum ráðuneytum, honum verði gert hærra undir höfði. Einnig teljum við að þetta sé miklu hagkvæmara en að dreifa málaflokknum um allt í stjórnkerfinu eins og á sér stað núna.
Við gerðum okkur hins vegar grein fyrir því að erfitt gæti verið að gera slíka breytingu á stjórnkerfinu og þá sem við lögðum til í einu vetfangi. Þess vegna töldum við að sá verkefnaflutningur sem lagður er til með 128. máli, sem flutt var samhliða því máli sem við ræðum nú, væri þó alla vega fyrsta skrefið. Þó við værum svo sannarlega ekkert ánægðar með niðurstöðuna og hvernig það frv. var á endanum töldum við það þó vera eitt skref í áttina. Þess ber að geta að margar umsagnir bárust um tillögu Kvennalistans og þótti mörgum hún ganga nokkuð langt. Mig langar aðeins til að vitna í eina af umsögnunum, frá Náttúruverndarráði, en þar segir, með leyfi forseta:
,,Í þeirri tillögu er gengið mun lengra í samræmingu umhverfismála en Náttúruverndarráð hefur gert í sínum tillögum og m.a. lagt til að fleiri stofnanir og svið verði flutt til væntanlegs umhverfisráðuneytis.``
Þetta er úr umsögn Náttúruverndarráðs þannig að þessi tillaga okkar þótti ganga nokkuð langt. Þó voru mjög margar umsagnir sem töldu að meginefni þessarar tillögu sem við fluttum væri mjög til bóta. Svo eru margar stofnanir, við getum tekið Landgræðslu og Skógrækt og fleiri, sem segja: Við viljum gjarna koma upp umhverfisráðuneyti og koma betri skikk á þessi mál en við viljum ekki fara frá því ráðuneyti sem við erum í. Þetta kom fram þá eins og nú. Einkennileg íhaldssemi sem þarna er á ferðinni.
En mig langar til að vitna aðeins í þá umsögn sem Náttúruverndarráð gaf og sendi allshn. Sþ. sem fékk þessa tillögu til umfjöllunar. Náttúruverndarráð sendi tillögur um hvernig það vill haga þessum málum og mig langar til að vitna í þær, með leyfi forseta, en þar segir:
,,Við samræmingu umhverfismála lítur Náttúruverndarráð svo á að mikilvægt sé að stofnað verði sérstakt umhverfisráðuneyti. Samhliða sameiningu stjórnar sem flestra mála á þessu sviði undir sama ráðuneyti þarf að ákveða hvernig hlutverk ýmissa stofnana breytist og tryggja samvinnu milli hins nýja ráðuneytis og stofnana annarra ráðuneyta
sem tengjast málefnunum beint.``
Skipurit fylgir með um það hvernig þeir hugsi sér þetta. Þeir rekja síðan hvernig þeir vilja láta þetta fara og mig langar til að lesa aðeins áfram, en þeir leggja til að í fyrsta lagi verði sett á stofn umhverfisráðuneyti og ráðuneytið fari með stjórn umhverfismála og tengsl við önnur ráðuneyti, fræðslustarf um umhverfismál verði þar mikilvægur þáttur, svo og alþjóðasamstarf. Þetta er alveg í samræmi við það sem við höfum lagt til.
Síðan eru það gróðurverndarmál. Gróðurvernd, þar með talin skógvernd, beitarstjórnun og friðun gróðurlenda til lengri eða skemmri tíma falli undir umhverfismálaráðuneyti. Þetta er því miður ekki alveg í samræmi við það sem 128. mál gerir ráð fyrir, en þó miklu nær því sem við vildum gera. Skipulagsmál falli undir umhverfisráðuneytið. Hlutverk Skipulags ríkisins verði óbreytt. Þar sem starfsemi Skipulags ríkisins, Náttúruverndarráðs og Hollustuverndar ríkisins skarast víða þarf að gera meðferð mála einfaldari og skilvirkari. Mengunarmál falli undir umhverfisráðuneyti. Hér er um að ræða mengunarvarnir, eftirlit Hollustuverndar ríkisins, eftirlit með eiturefnum og öðrum hættulegum efnum sem ekki falla undir matvælaframleiðslu og lyfjagerð, mengunarvarnir, Siglingamálastofnun, eftirlit og mælingar á mengun í sjó og lofti og fyrirbyggjandi aðgerðir. Þeir vilja að náttúruverndarmál falli að sjálfsögðu undir umhverfisráðuneyti, friðlýsing lands og framkvæmd á friðlýstum svæðum og einnig almannaréttur, útivistar- og ferðamál og almenn umgengni um landið.
Ég ætla ekki að taka fleira úr þessum tillögum en þær eru mjög margar í sömu átt og tillögur Kvennalistans. Margar þeirra eru einnig í samræmi við 128. mál þar sem talað er um þær breytingar á lögum sem þurfi að gera til þess að einhver verkefni flytjist nú yfir til umhverfisráðuneytisins. Þó að við höfum ekki fengið allt það sem við vildum höfum við samt talið eðlilegt að líta á allar þær tillögur sem komið hafa fram og reynt að sameinast um eina tillögu um hvernig þessum málum skuli best fyrir komið. Það er því augljóst að kvennalistakonur telja að umhverfismálin eigi að skipa verðugan sess í stjórnkerfi landsins og í samræmi við það tókum við þátt í starfi nefndar sem fjallaði um þessi mál þar sem kvennalistakonur voru eini stjórnarandstöðuþingflokkurinn sem tilnefndi í þá nefnd. Það sýndi að við vildum reyna að koma til móts við þær hugmyndir aðrar sem uppi voru í tengslum við stofnun umhverfisráðuneytis.
Í því frv. sem hér liggur fyrir er ekki gert ráð fyrir neinum breytingum á skipan umhverfismála innan stjórnkerfisins heldur er aðeins gert ráð fyrir að stofna umhverfisráðuneyti án þess að það fái samtímis nokkur verkefni. Ekki hafa verið færð nein rök fyrir þessari ráðstöfun. Ég vil benda á það að á bls. 7 í aths. við það frv. sem við ræðum stendur, með leyfi forseta, þar sem talað er um verkefni umhverfisráðuneytis:
,,Nauðsynlegt er að Alþingi taki afstöðu til þess hvort stofna skuli umhverfisráðuneyti svo og hvaða málefni og málaflokka fella skuli undir heildarstjórn umhverfismála ef til kemur.
Í þeim frumvörpum, sem samin hafa verið um umhverfismál að undanskildu frumvarpi um umhverfismál sem lagt var fram á síðasta þingi, var ekki greinilega tiltekið hvaða viðfangsefni ættu að falla undir heildarstjórn umhverfismála. Slík lög hefðu leitt af sér töluverða réttaróvissu.``
Hvað þýðir þetta? Virðulegi forseti. Nú hef ég enga ráðherra hér til að spyrja. Mig langar til að spyrja hvað þetta þýðir hér í grg. með frv. Forsrh. mælti fyrir þessu frv. þannig að það er eðlilegt að óska eftir því að hann komi hér og skýri þetta út en ef einhverjir aðrir geta skýrt það út þætti mér vænt um það. ( Forseti: Forseti vill upplýsa að gerðar hafa verið ráðstafanir til að fá forsrh. hingað til fundar, hann mun vera í húsinu.) Já, en ég ætla samt að halda áfram máli mínu og mun þá taka þetta upp aftur þegar forsrh. getur hlýtt á mál mitt.
Eins og kemur greinilega fram er það mat þeirra sem þetta frv. semja að það muni skapa töluverða réttaróvissu ef stofnað verður umhverfisráðuneyti án þess að tilgreina hvaða verkefni þar muni falla undir. Mér finnst eðlilegt að við fáum skýringar á þessu þar sem ég tel að við eigum að samþykkja þessi tvö frumvörp saman en ekki að stofna umhverfisráðuneyti án allra verkefna.
Við 1. umr. málsins lýsti ég því yfir að ég væri ósátt við margt sem fram kemur í frv. varðandi tilflutning á verkefnum. Bryndís Brandsdóttir var fulltrúi Kvennalistans í nefndinni sem samdi frv. Nefndin klofnaði í tvennt,
jafna parta, og það álit sem Bryndís stóð að fól í sér að Landgræðsla ríkisins og Skógrækt ríkisins flyttust til umhverfisráðuneytis frá landbrn. en þó þannig að landbrn. færi áfram með mál er varða ræktun skjólbelta og nytjaskóga á bújörðum. Ég er enn þá þessarar sömu skoðunar, hún hefur ekkert breyst, enda höfum við því miður ekki haft tækifæri til þess í allshn. að fjalla neitt verulega um þessi mál og það hefur ekkert verið farið ofan í umsagnir með frv. að því er varðar Skógrækt og Landgræðslu.
Það breytir þó ekki því að þingkonur Kvennalistans telja að það frv. sé skref í rétta átt. Við höfðum lýst okkur samþykkar því að taka það skref sem þar var lagt til þó að við teldum það skref allt of lítið og allt of stutt farið með því frv. Við höfum verið því fylgjandi að stofna umhverfisráðuneyti með ákveðnum verkefnum. Það sama gildir ekki um að taka þátt í því sem hér er verið að gera núna, að setja á stofn umhverfisráðuneyti í þeim eina sjáanlega tilgangi að einn ráðherra í ríkisstjórninni geti kallað sig umhverfisráðherra nokkrum vikum fyrr en ella.
Það kom fram í máli hv. 2. þm. Reykn. Ólafs G. Einarssonar hér áðan, og hann hefur reyndar einnig sagt það á fundum allshn., að Sjálfstfl. sem þó hefur lýst sig mest andsnúinn því að stofnað verði umhverfisráðuneyti hefði verið tilbúinn til að vinna að
þessum málum, þ.e. hvaða verkefni flyttust yfir í umhverfisráðuneytið, og að unnið yrði að þeim málum eins hratt og unnt væri með svo viðamikinn málaflokk. Þannig að ef þessi mál hefðu fylgst að hefði hugsanlega fengist, vonandi í næsta mánuði en alla vega fyrir þinglok, umhverfisráðuneyti með einhverjum verkefnum. En það sem við sitjum uppi með núna er umhverfisráðherra og lítið annað. Meiri hl. allshn. og raunar ríkisstjórnin öll með sínu stuðningsliði hefur því, að því er virðist, misst sjónar á því sem er aðaltilgangurinn með stofnun umhverfisráðuneytis, þ.e. að koma betra skipulagi á stjórn umhverfismála með markvissa umhverfisvernd í huga. Ég hef því verulegar áhyggjur af því að ef við afgreiðum þetta mál með þeim hætti sem verið er að leggja til núna, þ.e. að við setjum á stofn umhverfisráðuneyti án verkefna, munum við sitja uppi með umhverfisráðuneyti án verkefna þegar þingi lýkur í vor. Það má spyrja sjálfan sig hversu lengi það muni þá dragast yfirleitt að einhver verkefni komi til umhverfisráðuneytis frá öðrum ráðuneytum.
Það hefur líka komið fram að ekki virðist vera samkomulag innan stjórnarflokkanna um frv. sem þó er stjfrv., 128. mál. Ég á ákaflega erfitt með að skilja af hverju þessi tvö mál eru ekki samhliða ef jafnframt er samkomulag innan ríkisstjórnarflokkanna um hvaða verkefni ráðuneytið sem verið er að setja á stofn fái. Ef svo er, sem kemur mér á óvart, vildi ég vita hvers konar ósamræmi þarna er á milli, hvaða málaflokkar það eru helst sem ríkisstjórnarflokkarnir eru ósáttir um. Nú vantar mig enn þá einu sinni einhvern til að taka við spurningum frá mér, virðulegi forseti. ( Forseti: Þeirri spurningu er svarað af sjálfu sér því forsrh. gengur í salinn.) Ég var að beina spurningu minni til hæstv. forsrh. sem er flm. þessa frv. fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Það hefur ítrekað komið fram að hugsanlega sé einhver óánægja eða ósamkomulag varðandi 128. mál sem fjallar um verkefni þau sem eiga að flytjast til umhverfisráðuneytis. Það hefur heyrst hér oftar en einu sinni, kannski ekki úr þessum ræðustól en ítrekað annars staðar, að ein af ástæðunum fyrir því að skilja þurfi þessi tvö mál að sé sú að ekki sé samkomulag innan ríkisstjórnarflokkanna um þau verkefni sem flytja eigi yfir til umhverfisráðuneytis. Ef ég heyrði rétt minntist hv. 3. þm. Austurl. Jón Kristjánsson, sem var frsm. meiri hl., eitthvað á það hér. Það kom mér á óvart, ég hafði ekki heyrt það þó einhverjir væru kannski óánægðir. Ég er á vissan hátt óánægð með þetta frv., ég vildi láta það ganga miklu lengra, en ég hafði þó ákveðið að sættast á það sem hér var lagt til. Ég vildi því inna hæstv. forsrh. eftir því hvort einhver afturkippur sé kominn í það samkomulag sem ég hélt að væri orðið um þau verkefni sem flyttust á milli ráðuneyta, þ.e. frá öðrum ráðuneytum yfir til umhverfisráðuneytis. Þetta gerði mig órólega. Ég hugsaði með mér að e.t.v. yrði þetta þá til þess að við sætum uppi með umhverfisráðuneyti í vor án allra verkefna. Við verðum þá bara með umhverfisráðherra, skrifborð og bíl og ekkert annað. Það þykir mér mjög
illa af stað farið ef svo er og vona að þetta sé einhver misskilningur og ætlun stjórnarliða sé að þetta verði afgreitt fljótt og vel eins og við í stjórnarandstöðunni vorum búin að lýsa okkur samþykk. Að vísu hefur Sjálfstfl. lýst því yfir að það gegni að sjálfsögðu öðru máli þegar verið er að kljúfa þessi mál tvö í sundur. Ég skora því á ríkisstjórnina og allt hennar stuðningslið að fresta afgreiðslu þessa máls og afgreiða það um leið og 128. mál sem fjallar um verkefni umhverfisráðuneytis því að þá tel ég að það sé a.m.k. von um að við fáum umhverfisráðuneytinu einhver verkefni fyrir vorið.
Það var annað atriði sem ég vildi inna hæstv. forsrh. eftir sem ég hafði reyndar gert fyrr í ræðu minni. Ég gerði mér ekki grein fyrir að hann hlýddi ekki á mál mitt þá. Á bls. 7 í athugasemdum með frv. sem við ræðum hér, 129. máli, stendur, og vil ég endurtaka það hér til að forsrh. heyri hvað ég er að
ræða um, en þar stendur, með leyfi forseta:
,,Nauðsynlegt er að Alþingi taki afstöðu til þess hvort stofna skuli umhverfisráðuneyti svo og hvaða málefni og málaflokka fella skuli undir heildarstjórn umhverfismála ef til kemur.
Í þeim frumvörpum, sem samin hafa verið um umhverfismál að undanskildu frumvarpi um umhverfismál sem lagt var fram á síðasta þingi, var ekki greinilega tiltekið hvaða viðfangsefni ættu að falla undir heildarstjórn umhverfismála.`` --- Og síðan kemur það sem ég vildi spyrja sérstaklega um: ,,Slík lög hefðu leitt af sér töluverða réttaróvissu.``
Nú sýnist mér að við séum að gera það sem verið er að vara við í þessu sama frv. Ef ætlan ríkisstjórnarinnar og stuðningsmanna hennar er sú að afgreiða þetta mál eitt og sér, þá sýnist mér að komið sé þetta sem þarna er varað við. Ég verð hins vegar að viðurkenna að ég átta mig ekki alveg á í hverju þessi réttaróvissa er fólgin. Vildi ég gjarnan fá varpað ljósi á þetta atriði hér við þessa umræðu. Með því að samþykkja þetta frv. sem við erum hér að fjalla um er verið að samþykkja umhverfisráðuneyti sem er aðeins umbúðirnar og það þykir mér mjög slæmt að þurfa að sitja uppi með.
Kvennalistakonur hafa ætíð talið að stofnun umhverfisráðuneytis sé fyrsta skref í átt til þess að umhverfismál skipi verðugan sess í stjórnkerfi landsins. En umhverfisráðuneyti án verkefna er hins vegar umbúðirnar einar og munu því kvennalistakonur ekki geta tekið þátt í afgreiðslu þessa frv. Þykir okkur mjög miður að geta ekki stutt mál sem við erum þó búnar að hafa á stefnuskrá okkar í öll þessi ár. Þetta mál er unnið með þeim ósköpum að ég get ekki annað en lýst harmi mínum yfir því að þurfa að taka þá ákvörðun að geta ekki stutt þetta frv. þar sem það hefur ekki nokkurt einasta innihald, því miður.
Við kvennalistakonur höfum rætt þetta mál mjög mikið og á þingflokksfundi okkar í gær var samþykkt svohljóðandi yfirlýsing sem ég vil leyfa mér að lesa hér:
,,Kvennalistakonur geta ekki tekið þátt í afgreiðslu frv. um umhverfisráðuneyti sem núverandi
stjórnarflokkar hyggjast keyra í gegnum Alþingi á næstu dögum, að því er virðist í þeim eina tilgangi að koma á fót umhverfisráðherra. Frv. felur nefnilega það eitt í sér að orðinu ,,umhverfisráðuneyti`` verði bætt inn í upptalningu ráðuneyta í lögin um Stjórnarráð Íslands, en engin ákvörðun liggur fyrir um stöðu og starfssvið slíks ráðuneytis. Það fær í raun og veru ekki annað til umráða en ráðherrastól og mengunarvarða bifreið með skíðabogum því allir þeir málaflokkar sem með réttu ættu heima í slíku ráðuneyti heyra eftir sem áður undir sín gömlu ráðuneyti þar til annað hefur verið ákveðið og lög um það samþykkt á Alþingi.
Kvennalistakonur hafa frá upphafi lagt mikla áherslu á úrbætur í umhverfismálum og verið þeirrar skoðunar að nauðsyn beri til að hafa sérstakt ráðuneyti umhverfismála. Þær hafa alla tíð reynt að vinna því máli brautargengi á Alþingi og lögðu m.a. fram ítarlega tillögu um það efni á síðasta þingi þar sem fram kemur hvernig þær vilja sjá málum borgið í slíku ráðuneyti. Þegar svo loks kom fram stjfrv. undir lok síðasta þings um stofnun umhverfisráðuneytis og starfssvið þess lýstu þær stuðningi við það frv. enda þótt það væri í raun ófullburða og gengi miklu skemur en þær hefðu kosið. Málinu var síðan vísað til sérstakrar nefndar sem vann að því á milli þinga og áttu kvennalistakonur aðild að þeirri nefnd.
Niðurstaða nefndarinnar var að skipta málinu í tvennt, þ.e. frv. um einfalda breytingu á stjórnarráðslögunum og annað frv. sem skilgreindi verkefni umhverfisráðuneytis. Kvennalistakonur eru þeirrar skoðunar að ekki sé hægt að aðskilja þessi tvö mál.
Það eru kvennalistakonum mikil vonbrigði að geta ekki greitt stofnun umhverfisráðuneytis atkvæði sitt á Alþingi, svo mjög sem þær hafa borið það mál fyrir brjósti. Þær telja hins vegar þá afgreiðslu sem stjórnarflokkarnir vilja þröngva fram lýsa fullkomnu ábyrgðarleysi og vanvirðu við málefnið. Kvennalistakonur vilja koma á fót raunverulegu umhverfisráðuneyti málsins vegna en ekki ráðherrans vegna. Þess vegna geta þær ekki greitt atkvæði með frv. ríkisstjórnarinnar um stofnun umhverfisráðuneytis nema hún sjái að sér og vinni að málinu á verðugan hátt.``
Þetta er yfirlýsing frá kvennalistakonum þar sem við teljum mjög miður að málinu skuli nú vera komið þannig að málefnið, umhverfismál og umhverfisvernd, skuli í raun víkja fyrir umbúðunum en innihaldið skipti þar með ekki nokkru máli.
Ég ætla ekki, virðulegi forseti, að hafa mál mitt lengra að þessu sinni en vonast til þess að fá svör við þeim spurningum sem ég hef hér lagt fram.