Forsætisráðherra (Steingrímur Hermannsson):
    Herra forseti. Að svara slíkum efnislegum spurningum um mál sem er hér á dagskrá getur ekki fallið undir þingsköp. Ég vona að menn hafi tekið eftir því að ég hef aldrei notað mér ákvæði um þingsköp til að ræða slíkt mál og mun ekki gera það núna. Ég er tilbúinn að svara þessum spurningum þegar málið er tekið á dagskrá.