Forseti (Árni Gunnarsson):
Forseti vill nú taka fram að hann telur einsýnt að umræður um það hvernig fara skuli með lagafrumvörp í umræðu á Alþingi eigi heima innan ramma þingskapaumræðu. Hann óskar þess hins vegar að þingmenn gæti þess að fara ekki út um víðan völl í þeirri þingskapaumræðu sem nú er hafin.