Alþjóðaþingmannasambandið
Mánudaginn 05. febrúar 1990


     Hjörleifur Guttormsson:
    Virðulegi forseti. Ég hef aldrei tengst þessu samstarfi sem hér er rætt á vegum Íslandsdeildar Alþjóðaþingmannasambandsins og það er nú ekki vegna þess sem ég kveð mér hér hljóðs heldur til þess fyrst og fremst að þakka fyrir þessa skýrslu og það glögga yfirlit sem hér liggur fyrir um störf Íslandsdeildarinnar í þessu samstarfi. Mér þótti það líka til fyrirmyndar þegar hér var hafin kynning á því hvernig staðið væri að þátttöku flokka og notkun reglna um það hvernig hagað væri þátttöku Alþingis í þessu samstarfi og taldi það vera til fyrirmyndar að þannig væri staðið að málum. Ég nefni þetta m.a. vegna máls sem er síðar á dagskránni, sem er þátttaka Íslands í þingmannasamstarfi EFTA-ríkjanna. Þar sýnist mér að ekki hafi verið mörkuð nægilega skýr stefna eða reglur um þátttöku Alþingis í því samstarfi. Kann ég ekki að skýra hvernig á því stendur og ætla ekki að ræða það undir þessum dagskrárlið.
    En ég þykist sjá á þeim skýrslum sem fram hafa komið frá vettvangi Alþjóðaþingmannasambandsins að þar er verið að fjalla um þýðingarmikið mál sem mjög er gott að íslenskir alþingismenn kynnist og eigi hlutdeild í að ræða og taka ákvarðanir um eða standa að ályktunum um eins og greinilega er gert eftir því flókna kerfi sem notað er í sambandi við atkvæðagreiðslur á þessari stóru samkomu.
    Ég sé á þessari skýrslu að það er háð fjárveitingum m.a. til þessarar starfsemi hvernig þátttöku Íslands í starfi þingmannasambandsins er háttað og þannig hlýtur það auðvitað að vera. Ég tel hins vegar að gæta þurfi þess að skammta ekki of naumt í sambandi við þátttöku af þessu tagi. Auðvitað eigum við að vera sparsöm, það er engin spurning, og gæta þess í hvað krónunum er varið. En ég held að fyrir land eins og Ísland, sem er á sinn hátt dálítið einangrað landfræðilega en þó í þjóðbraut, skipti þátttaka í alþjóðasamstarfi afar miklu máli og við séum þar virk og raunverulega sé eitthvað á bak við þátttöku okkar í þessu samstarfi.
    Mér sýnist að þó að Alþjóðaþingmannasambandið sé ekki ákvarðandi samkoma, og ekki sé til þess ætlast, þá sé verið að fjalla þar um efni sem flytja boð inn á þjóðþing landanna, þeirra fjölmörgu landa sem þarna eiga fulltrúa. Það sem formaður Íslandsdeildarinnar nefndi hér um teiknin sem fram komu á fundi Alþjóðaþingmannasambandsins um breytingar í Austur-Evrópu ekki alls fyrir
löngu er mjög athyglisvert og gefur þingmönnum frá viðkomandi löndum færi á að flytja boð en einnig að sækja styrk yfir á alþjóðlegan vettvang í sambandi við breytingar sem þeir eiga hlutdeild að með einum eða öðrum hætti.
    Ég sé að varðandi framhald á starfsemi sambandsins er margt á dagskrá. Þar er m.a. fyrirhuguð ráðstefna í Genf í nóvember á þessu ári en tekið sérstaklega fram að Íslandsdeildin geri ekki ráð fyrir þátttöku af sinni hálfu í þessari ráðstefnu þar sem ræða á um þátttöku kvenna í stjórnmálum.

( Gripið fram í: Hún var á síðasta ári.) Fyrirgefið, ég áttaði mig ekki á þessu og ætlaði að spyrjast fyrir um það, ég hafði ekki áttað mig á dagsetningunni undir skýrslunni, hún er búin að liggja svona lengi fyrir. Hún er gefin út 1. nóvember, það er skýringin. Þannig að þessi ráðstefna er þá afstaðin.
    Ég sé það einnig hér í niðurlagi skýrslunnar að stjórn Íslandsdeildarinnar er þeirrar skoðunar að stefna beri að því að bjóða til þings hérlendis einhvern tímann á næstu árum og ég vil spyrja formann Íslandsdeildar eftir því hvort hann geri ráð fyrir því að af því geti orðið. Mér er ljóst að það er mikið fyrirtæki við okkar aðstæður að halda slíkt þing hér, en ég tel að mikill ávinningur væri í rauninni af því að fá samkomu sem þessa til að halda þing sitt hér. Ég vil hvetja til þess að það verði gert, ef mögulegt er, og spyr formann Íslandsdeildarinnar eftir því hvernig horfi með möguleika á þessu og undirbúning að því að svo geti orðið, um leið og ég þakka fyrir framsögn hans og fram komna skýrslu.