Skattskylda orkufyrirtækja
Þriðjudaginn 06. febrúar 1990


     Halldór Blöndal (um þingsköp) :
    Herra forseti. Ég hef mjög ýtt á að umræður gætu haldið áfram um orkuskattinn. Nú hefur það gerst síðan síðast var haldinn fundur í þessari hv. deild að hæstv. iðnrh. hefur þvegið hendur sínar af þessu frv. Hann lýsti því yfir á fundi sameinaðs þings að ráðherrar Alþfl. hefðu lýst sig andvíga því frv. sem hér liggur fyrir. Hann sagði jafnframt að þingflokkur Alþfl. hefði skrifað ríkisstjórninni bréf þar sem hann lýsti því yfir að hann væri andvígur þessu frv. sem hér liggur fyrir.
    Í grein í Morgunblaðinu í dag skrifar hæstv. viðskipta- og iðnaðarráðherra grein sem mér sýnist eiga að vera svargrein við því sem ég hafði áður skrifað um þennan skatt. Þar talar hann um að ég hafi verið með rangfærslur og aðdróttanir í sinn garð. Aðdróttanirnar voru þær að hæstv. iðnrh. stæði að stjfrv. Þegar hæstv. fjmrh. talaði fyrir þessu frv. hér í deildinni lét hann svo sem öll ríkisstjórnin stæði að þessu máli. Ef við lesum þá grg. sem frv. fylgir kemur hið sama í ljós, enginn fyrirvari er þar gerður um að Alþfl. hafi
frá öndverðu lýst sig andvígan þessu frv. og að það hafi komið fram í ríkisstjórninni að hæstv. iðnrh. hafi talið það byggt á röngum grunni, röngum forsendum og raunar á algjörum misskilningi, háð miklum annmörkum.
    Ég hygg að gömul þinghefð og þingvenja sé fyrir því þegar þannig stendur á að hæstv. forseta deildarinnar þyki eðlilegt að stjórnarandstaðan óski eftir því að hæstv. forsrh., verkstjóri ríkisstjórnarinnar, sé viðstaddur umræðurnar. Og því fremur, hæstv. forseti, sem hæstv. forsrh. lýsti því yfir hinn 30. nóv. 1989, í umræðum um vantraust á ríkisstjórnina, að full samstaða væri innan ríkisstjórnarinnar um það að skattleggja orkufyrirtækin í landinu sem næmi 250 millj. kr. Nú liggur á hinn bóginn fyrir að hæstv. viðskipta- og iðnaðarráðherra telur í sinni grein að hæstv. fjmrh. hafi haft frumkvæði að því, það sé uppástunga hæstv. fjmrh. að orkuskatturinn sé á lagður og telur að þær hugmyndir sem hæstv. fjmrh. sé með varðandi orkuskattinn séu miklum annmörkum háðar, séu byggðar á misskilningi á eðli orkufyrirtækja, því augljóst sé að ekki sé hægt að skattleggja þau með þeim hætti sem í þessu stjfrv. segir.
    Ég óska eftir því, hæstv. forseti, í fyrsta lagi að viðstaddur hér sé formaður Borgfl., hagstofuráðherra. Hann ber skynbragð á tölur. Í öðru lagi hæstv. forsrh. sem ber ábyrgð á störfum ríkisstjórnarinnar og hlýtur að geta upplýst okkur hér í deildinni um það hvernig á því standi að við höfum fengið misvísandi upplýsingar um það hverjir standi að þessu frv. og hvernig á því standi að þau ummæli sem hann lét sér um munn fara við vantraustsumræðurnar í endaðan nóvember eru ekki á rökum reistar. Annaðhvort algjör ósannindi eða hálfsannleikur. Og ég hygg að það sé enn fremur ljóst, hæstv. forseti, að við hljótum að óska þess að formaður Alþfl., sem sat fundi þann dag sem vantraustsumræðurnar fóru fram, hæstv. utanrrh.,

sé viðstaddur þessar umræður.
    Eins og við munum af blaðafréttum hittust formenn flokkanna þennan dag, formaður Framsfl., formaður Alþb., formaður Alþfl. og formaður Borgfl. og ræddu um það hvernig hægt væri að ná efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar saman. Er það ekki rétt munað? Og nú er nauðsynlegt að fá fram hvort það hafi komið fram á þeim fundi, sem formaður Alþfl. sat á þessum tíma með ráðherrum samstarfsflokka sinna, að Alþfl. væri andvígur því að þessi skattur yrði á lagður.
    Ég sé að hér er hæstv. forsrh. kominn í salinn og af þeim sökum er ekkert því til fyrirstöðu að ég geti haldið áfram umræðu minni um orkuskattinn. ( Forsrh.: Ég verð að vera í neðri deild, þar er mál sem ég er með sem er verið að taka fyrir, því miður.) Ég sé, hæstv. forseti, að þessi umræða er miklum annmörkum háð. En við getum þá tekið til við umræðuna um leið og umræðunni er lokið í neðri deild um nýtt umhverfisráðuneyti, án verkefna að vísu. Það getur ekki talist svo merkilegt mál að það liggi á því. Og ég veit að um leið og umræðunni í neðri deild verður lokið um það og á fundartíma okkar hér í efri deild mun hæstv. forseti sjá til þess að forsrh. sé viðstaddur umræðuna hér og skýri frá sínum bæjardyrum séð hvernig þessi ágreiningur, þessi djúpstæði ágreiningur sem er milli hæstv. fjmrh. og hæstv. viðskrh., er vaxinn. Og ég vil spyrja hvort hæstv. forsrh. hafi verið kunnugt um þessa hvössu gagnrýni, miskunnarlausu gagnrýni hæstv. viðskrh. á fjmrh., en viðskrh. segir að fjmrh. hafi engan skilning á eðli orkufyrirtækja og að frv. eins og það liggi fyrir sé á algjörum misskilningi reist. ( Forseti: Ég vil nú beina því til hv. ræðumanns, sem var í miðri ræðu sinni síðast þegar þetta var á dagskrá hér, hvort hann geti þá ekki haldið eitthvað áfram sinni ræðu þar sem hæstv. viðskrh. er hér mættur og sjá til hvort hæstv. forsrh. getur ekki komið hér þegar hann losnar úr Nd.)
    Herra forseti. Það liggur fyrir að stjórnarandstaðan er andvíg þessari skattheimtu. Það liggur líka fyrir að ríkisstjórnin er klofin í málinu. Forsendurnar fyrir því að halda umræðunni áfram á sömu nótum og áður eru ekki lengur fyrir hendi. Það sem nauðsynlegt er að fá upplýst nú er:
    Í fyrsta lagi hvort hæstv. forsrh. sagði vísvitandi ósatt í umræðum um vantraust hinn 30. nóv. sl.
    Í öðru lagi að fá upplýst hver voru viðbrögð formanns Alþfl. þegar formaður Alþb. gerði það að tillögu sinni í ríkisstjórninni að orkuskatturinn yrði á lagður. Hvort formaður Alþfl. hafi á þeim tíma skýrt sérstöðu Alþfl.
    Í þriðja lagi er náttúrlega nauðsynlegt að fá að vita hvorum megin hæstv. forsrh. stendur í málinu og svo Borgfl. Hvorki ráðherrar Framsfl. né Borgfl. hafa opnað sinn munn. Það getur verið að hæstv. fjmrh. sé einn, það vilji enginn annar kannast við skattinn. Skilja hann eftir einan á þessu flæðiskeri. Það má vera. En þetta verður að fást upplýst. Stjórnarandstaðan hlýtur að krefjast þess að ríkisstjórnin geri grein fyrir sínu máli. Eins og fram

hefur komið þýðir þessi skattur 30% hækkun á heimilistöxtum rafmagns síðari hluta ársins og það er auðvitað óhjákvæmilegt að hæstv. forsrh. verði hér viðstaddur.
    Ég veit að hæstv. forseti skilur að beiðni mín er í fullu samræmi við þingvenjur og auðvitað mikilsverðara mál sem við erum að tala um hér nú í efri deild, nýja skattlagningu á orkufyrirtæki, en umræðuefnið í neðri deild sem er um það hvenær eigi að opna skrifstofu sem hefur engin verkefni þó svo að skrifstofan eigi að heita umhverfisráðuneyti.