Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson) (um þingsköp) :
Virðulegi forseti. Hér hafa orðið nokkrar umræður um það hvers eðlis það frv. sé sem hér er á dagskrá, hvort það sé stjfrv. eða ekki og með hvaða formerkjum það sé hér fram borið. Það er mála sannast að í þingsögunni eru mörg dæmi um stjfrv. sem ekki hefur ríkt um fullkomin eining innan stjórnar. ( HBl: Þar sem einn stjórnarflokkurinn hefur verið á móti, bæði ráðherrar og þingmenn og þingflokkur? Veit ráðherrann dæmi um það?) Vill hv. 2. þm. Norðurl. e. gefa ræðumanni tóm til að ljúka máli sínu? ( HBl: Sjálfsagt.) Ég bíð eftir því að hv. 2. þm. Norðurl. e. þagni. ( HBl: Er ráðherrann ... ) Hann mun gera það eins og hans er vandi. ( HBl: Ekki var það síðast þegar hann talaði um það.) Það var svo.
Staða frv. skýrist kannski best með því ef ég læsi bréf sem þingflokkur Alþfl. ritaði fjmrh. 13. des. 1989. Og með leyfi forseta ætla ég að lesa þetta bréf. Hér er líka staddur hv. 3. þm. Vesturl., formaður þingflokksins, sem getur best um málið borið. Bréfið er svona:
,,Þingflokkur Alþfl. fjallaði í dag um frv. til laga um skattskyldu orkufyrirtækja. Miklar umræður urðu um málið og í þingflokknum eru efasemdir um ágæti þess. Gerð frv., sú staðreynd að það er þrjár efnisgreinar og ákvæði til bráðabirgða fylla á þriðju síðu, sýnir afar greinilega hversu tæknilega flókið og erfitt málið er. Fram kom að málið mun þurfa vandaða og ítarlega umfjöllun í nefnd.
Það varð hins vegar niðurstaða á þingflokksfundinum að fallast á að frv. verði lagt fram á Alþingi. En skylt er þess að geta að það er með nokkrum semingi gert. Þingmenn áskilja sér rétt til að flytja og fylgja breytingartillögum þegar þar að kemur. Áréttað skal í lokin að með þessu eru þingmenn Alþfl. ekki að skjóta sér undan því að afla þeirra tekna sem þarf
vegna prósentulækkunar virðisaukaskatts en hafa hins vegar miklar efasemdir um ágæti þessarar aðferðar.
Svo mörg eru þau orð. Þetta lýsir afstöðu þingflokksins og líka afstöðu minni. Ég hafði reyndar gert rækilega grein fyrir því sem kalla má tæknilega annmarka þeirrar aðferðar sem fjmrn. hefur lagt til að farin verði í málinu með greinargerð innan ríkisstjórnarinnar dögum fyrr.
Þetta vil ég láta koma fram. En það breytir engu um það að miklu er skynsamlegra að ræða þetta mál á efnisrökum þess en í marklausri þrætulist af þeirri tegund sem hv. 2. þm. Norðurl. e. hefur hér uppi í nafni allrar stjórnarandstöðunnar. Og ég ítreka spurningu hv. 3. þm. Vesturl. til stjórnarandstöðufulltrúanna í þessari hv. þingdeild: Talar hv. 2. þm. Norðurl. e. fyrir gjörvalla stjórnarandstöðuna?