Skattskylda orkufyrirtækja
Þriðjudaginn 06. febrúar 1990


     Þorv. Garðar Kristjánsson (um þingsköp) :
    Herra forseti. Hæstv. fjmrh. kvaddi sér hér hljóðs áðan um þingsköp. Ég kvaddi mér hljóðs af því tilefni. Hæstv. fjmrh. talaði ekki um þingsköp, hann talaði um efnisatriði þriðja dagskrármálsins. En ég ætla ekki að gera mál úr því, það var annað atriði.
    Fyrir u.þ.b. einu ári kvaddi hæstv. fjmrh. sér hljóðs um þingsköp í sameinuðu Alþingi. Það kom athugasemd fram við það á þeirri forsendu að hann hefði ekki heimild til að ræða um þingsköp af því að hann væri ekki þingmaður. Hæstv. forseti sameinaðs Alþingis tók þetta mál upp í forsetastóli og kvað upp þann úrskurð að hæstv. fjmrh. hefði ekki heimild til að ræða þingsköp af því að hann væri ekki þingmaður. Og hæstv. forseti sameinaðs þings baðst afsökunar, bað þingið afsökunar á þeim mistökum sem orðið hefðu. Hér var kveðinn upp úrskurður, þýðingarmikill úrskurður um framkvæmd þingskapa. Ég skal taka það fram að ég er andvígur þessum úrskurði og tel að hann sé rangur. En úrskurður forseta stendur þar til honum er breytt.
    Þetta skeði í sameinuðu þingi. Nú hefur hæstv. fjmrh. hins vegar kvatt sér hljóðs um þingsköp í þessari hv. deild. Ég stóð upp til þess að spyrja hæstv. forseta, sem veitti hæstv. fjmrh. heimild til að tala hér um þingsköp, að því hvort í því felist að hæstv. forseti þessarar deildar ætli að fylgja annarri reglu en hæstv. forseti sameinaðs þings um þetta efni sem hér um ræðir. Þetta er formsatriði, en atriði um framkvæmd þingskapa sem skiptir ákaflega miklu máli. Mín fsp. til forseta þessarar hv. deildar er sú hvort hann telji réttan úrskurð forseta sameinaðs þings um þetta efni og ef svo er hvers vegna hann veitti þá hæstv. fjmrh. heimild til þess að tala um þingsköp eða hvort í þessu efni eigi að líta svo á að hæstv. forseti þessarar deildar sé á annarri skoðun.
    Ég vil beina þessari fsp. til hæstv. forseta. Ég tek eftir því að annar maður er nú í forsetastóli en sá sem var, aðalforseti deildarinnar, þegar
hæstv. fjmrh. var gefið orðið. En þó að ég viti að sá sem nú stýrir fundi í augnablikinu sé mjög vanur og hæfur forseti, þá þykir mér rétt að heyra álit aðalforseta um þetta efni.