Hagstofuráðherra (Júlíus Sólnes):
Virðulegi forseti. Á þessum tímamótum langar mig til að fara aðeins í forsögu þessa máls þó að ég sé ekki í sjálfu sér áhugamaður um að rekja mjög stjórnmálasögu liðinna ára og karp um hvað var gert fyrir mörgum árum í hinni eða þessari ríkisstjórn. Ég hef meiri áhuga á að ræða um framtíðina. Í þessu tilviki langar mig þó til að gera aðeins undantekningu á og fara aftur til sumarsins 1988, nánar til tekið síðla sumars 1988 þegar forstjóranefndin svokallaða lauk störfum, en formaður hennar, eins og allir muna, var núverandi formaður Vinnuveitendasambands Íslands, Einar Oddur, sem kallaður hefur verið bjargvætturinn. Tillögur forstjóranefndarinnar, sem ég tel að núverandi formaður Vinnuveitendasambandsins hafi kannski verið aðalhugmyndasmiður að, gekk út á það að farin skyldi svokölluð niðurfærsluleið, þ.e. laun skyldu lækkuð og síðan yrði reynt að lækka skatta og verðlag á móti. Þessi hugmynd þótti mjög byltingarkennd og henni var síðan algjörlega hafnað af þáv. forsrh., hv. þm. Þorsteini Pálssyni, sem í raun lýsti algjöru vantrausti á niðurstöður þessarar nefndar og þar með á þeim hugmyndum sem formaður nefndarinnar hafði þar með lagt fram.
Við í okkar flokki hugleiddum mjög þessar tillögur og töldum að þarna væri lagður grundvöllur að hugmyndafræði sem væri sjálfsagt að athuga nánar. Við gátum að vísu ekki sætt okkur við að svokölluð mínusleið yrði farin heldur ræddum við þá það sem ég mundi vilja kalla núlllausnina, þ.e. við vorum sammála um það þegar við ræddum þessa tillögu í þingflokki Borgfl. á þessum tíma að það væri hægt að laga þessa tillögu lítillega til: Í stað þess að lækka laun skyldu laun standa í stað og á móti skyldu skattar og framfærslukostnaður heimilanna lækka.
Allir muna hvernig fór. Ríkisstjórn undir forustu Þorsteins Pálssonar hrökklaðist frá í kjölfarið á þessum atburðum og það með þeim hætti, sem allir
muna, að atvinnulíf landsmanna, sérstaklega þó sjávarútvegsfyrirtækin úti um allt land, var nánast í rúst.
Þegar fyrri ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar á þessu kjörtímabili var mynduð í september 1988 tengdist Borgfl. þeim stjórnarmyndunarviðræðum og fylgdist mjög náið með undirbúningi að stjórnarmynduninni. Borgfl. kom þannig á framfæri sínum sjónarmiðum og var með í því að móta þann málefnasamning sem þá var í undirbúningi. Það varð þó ekki úr því að Borgfl. tæki sæti í þeirri ríkisstjórn, eins og allir muna, og skal ég ekkert rekja þá atburði sérstaklega, en það sem kannski meira máli skiptir er það að Borgfl. var þá sammála því að óumflýjanlegt væri að fara út í víðtækar björgunaraðgerðir til að koma í veg fyrir að atvinnulíf landsmanna hryndi algjörlega í rúst eftir þá stjórnarstefnu sem Sjálfstfl. hafði beitt sér fyrir í ríkisstjórninni þar á undan. Því var það að Borgfl. tók þá ákvörðun að hann mundi stuðla að því að svokölluð bráðabirgðalög ríkisstjórnarinnar sem voru til umræðu og afgreiðslu
í þinginu um áramótin 1988--1989 skyldu ná fram að ganga, en forsrh. í þeirri stjórn, Steingrímur Hermannsson, hafði þá lýst því yfir að ef þau yrðu felld mundi sú stjórn að sjálfsögðu verða að segja af sér og þá yrði að sjálfsögðu að boða til nýrra kosninga. Fyrir þetta hlutum við miklar óvinsældir og kynti Sjálfstfl. að sjálfsögðu óspart undir þeim vegna þess að hann kennir, og gerir reyndar enn þann dag í dag, einfaldlega Borgfl. um það að hann skuli ekki vera við stjórnvölinn nú. Hins vegar spyr ég: Til hvers ætti í raun Sjálfstfl. að vera við stjórnvölinn í þessu landi? Ég hef verið að velta því fyrir mér hvað Sjálfstfl. hefur haft fram að færa í stjórnmálaumræðunni á Íslandi síðustu vikur? Það er eitt mjög merkilegt mál sem Sjálfstfl. hefur haft fram að færa í stjórnmálaumræðu á Íslandi undanfarnar vikur. Það er að fjargviðrast út af því að það skuli vera skíðabogar á þeim bíl sem hefur verið keyptur til umhverfisráðuneytisins. Annað hefur Sjálfstfl. ekki haft fram að færa í stjórnmálaumræðu á Íslandi undanfarnar vikur.
Hvernig hefði nú farið ef Borgfl. hefði á þessum tímapunkti þóknast vilja Sjálfstfl., sem taldi nánast að Borgfl. bæri hreinlega skylda til að hegða sér inni á Alþingi eins og Sjálfstfl. segði fyrir um, og hefði hjálpað Sjálfstfl. við það að fella ríkisstjórnina sem þá sat? Þá hefðu væntanlega orðið kosningar einhvern tíma í mars 1989 og ég geri ráð fyrir að ný stjórn, væntanlega undir forustu Sjálfstfl., hefði þá tekið við völdum einhvern tíma í maímánuði 1989. Þetta er sú atburðarás sem ég tel að hefði verið ákaflega líkleg hefði þetta farið á þann veg sem ég er hér að lýsa.
Ég er ekki í nokkrum vafa um að við stæðum þá núna og horfðum á það ástand í þjóðfélaginu að hér væri sennilega lítið sem ekkert atvinnulíf utan höfuðborgarsvæðisins. Ég geri ráð fyrir því að verðbólga væri einhvers staðar á bilinu 100--150%, eitthvað þar um bil, og ég veit eiginlega ekki hvað við værum að ræða hér á Alþingi. Ástandið væri svo skelfilegt að ég þori ekki að hugsa þá hugsun til enda. Ég held því að þjóðin eigi Borgfl. mikið að þakka, að hann tók þá ákvörðun að styðja bráðabirgðalög ríkisstjórnarinnar og koma í veg fyrir það hrun sem annars hefði orðið í atvinnulífinu ef Sjálfstfl. hefði
fengið vilja sínum framgengt á þeim tímapunkti.
Ég get út af fyrir sig rakið lauslega afskipti okkar af málum eftir að þessu var lokið, en við tókum, eins og allir muna, þátt í viðræðum við þáv. ríkisstjórnarflokka í janúar 1989 til þess að fjalla um það hvort næðist samkomulag um aðild Borgfl. að nýrri ríkisstjórn, svokallaðri fjögurra flokka ríkisstjórn, þeirra fjögurra flokka sem nú mynda ríkisstjórn. Ekki náðist samkomulag um þátttöku Borgfl. í slíkri ríkisstjórn. Það strandaði m.a. á því að þáv. stjórnarflokkar voru ekki reiðubúnir að fara þá leið sem Borgfl. lagði til í janúar 1989, en það var núlllausnin; að fara út í kjarasátt, lækka skatta og lækka framfærslukostnað heimilanna og ná þannig kjarasamningum sem hefðu engar launahækkanir í för með sér. Þá þegar lögðum við til þessa leið en um
hana varð ekki samkomulag. Við lögðum til í þessum viðræðum að kallað yrði á forustumenn launþegahreyfingarinnar í landinu og þeir hafðir með í ráðum um það að ná þessari lausn, en því miður náðist ekki samkomulag um það að fara þessa leið þá og þar af leiðandi varð ekkert frekar úr slíkum hugmyndum fyrir ári síðan. Ég tel að þá hafi verið gerðir óskynsamlegir kjarasamningar sem höfðu verulegar kauphækkanir í för með sér og leiddu aftur á móti til að verðbólga fór vaxandi og verulegur halli varð á ríkisbúskapnum.
Á þessum tíma lögðum við, og höfum reyndar alla tíð lagt, verulega áherslu á það að ná niður matvælaverðinu og framfærslukostnaði heimilanna. Það er í sjálfu sér lykillinn að því að hægt sé að ná hér skynsamlegum kjarasamningum hverju sinni. Þess vegna héldum við þeim málflutningi áfram sumarið 1989 þegar við tókum aftur upp viðræður við þáv. stjórnarflokka. Ég verð að segja að það olli mér miklum vonbrigðum hvað við fengum litlar undirtektir undir þann málflutning og okkur fannst stundum sl. sumar að við stæðum einir um þá kröfu að matvælaverð yrði lækkað, það yrði að koma matvælum í lægra skattþrep og sjá til þess að framfærslukostnaður heimilanna lækkaði með þeim hætti.
Haustið 1989 náðist svo loksins samkomulag um stjórnarþátttöku Borgfl. í nýrri stjórn sem var mynduð 10. sept. sl. og hafði einmitt það að leiðarljósi að lækka matvælaverðið og taka upp nýtt lægra skattþrep í væntanlegum virðisaukaskatti, þ.e. þannig að hefðbundin matvæli færu í lægra skattþrep á svokölluðu framleiðslustigi sem þýðir varanlega lækkun á hefðbundnum matvælum sem er óháð niðurgreiðslum hverju sinni. Þó að ég hafi alls ekki verið ánægður með þennan árangur og hefði viljað ná miklu lengra var þetta þó skref í rétta átt og ég hef oft vikið að því áður að þarna náðu þó 5 þingmenn Borgfl. meiri og betri árangri en 18 þm. Sjálfstfl. höfðu náð áður.
Í stjórnarsáttmálanum sem þá var gerður var sömuleiðis samið um breyttar áherslur í efnahagsmálum sem nú hafa verið að ganga fram og leiða m.a. af sér að ástand hér, bæði í atvinnumálum og í efnahagsmálum almennt, er nú annað og betra en var áður. Því miður kom launþegahreyfingin of seint með sínar kröfur og hugmyndir um tvö skattþrep í virðisaukaskatti því að það var ekki fyrr en að þessari stjórnarmyndun lokinni að upphófst mikill söngur launþegahreyfingarinnar í landinu og reyndar bændasamtakanna um að nú bæri að taka upp tvö þrep í virðisaukaskatti, en það kom of seint vegna þess að það var búið að ganga frá stjórnarsáttmálanum. Hefðum við fengið þær undirtektir fyrr sem síðar urðu er ég ekki í nokkrum vafa um að þá hefði náðst samkomulag um tvö þrep í virðisaukaskatti með enn þá meiri lækkun á matvælum en varð. En við fáum að sjálfsögðu tækifæri til þess að ræða þá hluti síðar.
Með þessari afstöðu Borgfl. veturinn 1988--1989
hefur skapast þetta tækifæri sem nú blasir við í þjóðmálum okkar Íslendinga, að ná hér varanlegum árangri í efnahagsstjórn og í atvinnumálum yfirleitt og því ber að fagna. Ég vil taka undir með þeim ræðumönnum sem hér hafa talað á undan mér að nú ríður á að samvinna allra þeirra aðila sem standa að þessu samkomulagi verði sem best. Við verðum öll að hjálpast að við að tryggja það að þessir samningar geti haldið. Ríkisstjórn, vinnuveitendur, launþegar, bændur, fulltrúar banka, og öll þjóðin verður að standa vörð um þessa samninga og tryggja það að markmið þeirra nái fram að ganga. Að því loknu getum við hafið það mikla og stóra verkefni sem hlýtur að vera fram undan hjá þessari þjóð, en það er að endurskoða allan ríkisbúskapinn og einfalda ríkiskerfið, stokka það allt saman upp, ná útgjaldalækkun ríkissjóðs með þeim hætti, skera niður óþarfleg útgjöld og reyna, eins og ég segi, að einfalda ríkiskerfið og ná sparnaði með þeim hætti. Það var ekki, þrátt fyrir það sem margir halda fram, æskilegt né raunverulega mögulegt að hækka skatta frá því sem þeir eru nú hér á Íslandi, þó svo að sumir telji að skattstig á Íslandi sé verulega lægra en það er kannski í nágrannalöndunum. En ég get ekki fallist á þá skoðun og lýsi því yfir og hef margoft lýst því yfir að við, fulltrúar Borgfl., viljum fara niðurskurðarleiðina og fara í þá endurskoðun á ríkisbúskapnum sem er nauðsynleg til þess að ná einhverjum árangri.
Ég ætla ekki að lengja mál mitt hér frekar. Ég fagna þessum áfanga sem hefur náðst og ég ítreka að lokum að það er Borgfl. að þakka með þeirri afstöðu sem hann tók hér á þingi fyrir ári síðan að þetta er mögulegt.