Tilkynning frá forsætisráðherra um kjarasamninga
Þriðjudaginn 06. febrúar 1990


     Anna Ólafsdóttir Björnsson:
    Virðulegi forseti. Það er í sjálfu sér vel að kjarasamningarnir skuli nú vera til umræðu á Alþingi eins og fyrirheit voru gefin um fyrir helgi. Vissulega er brýnt að fá sem fyrst að heyra hvernig framkvæma á öll fyrirheitin í kjarasamningunum, ljós og óljós, en því miður hefur allt of fátt verið upplýst um hvað fram undan er í verðlagsmálum og hvernig leysa á úr brýnum vanda í sambandi við ríkisfjármál. En það má ekki gleyma afleiðingum kjarasamninganna í allri umræðunni um aðferðafræðina eða týna þeim í karpi um meiri háttar tímamót, minni háttar eða kannski alls engin tímamót.
    Afleiðingar þessa samnings eru fyrir marga áframhaldandi bág kjör, ekki síst fyrir konur, og sennilega er enn frekari kjaraskerðing fram undan ef ekki verður einhver breyting á. Vaxtalækkunin, sem sumir binda miklar vonir við, nýtist ekki þeim lægst launuðu. Mig langar til að vitna í viðtal við konu eina í dagblaði í dag en hún segir, með leyfi forseta:
    ,,"Mér líst ekkert sérlega vel á þessa samninga. Mér finnst að meiri kauphækkun hefði átt að vera en í samningunum,,, sagði Þuríður Valtýsdóttir fiskvinnslukona hjá Granda hf. Hún sagði að sér litist vel á að vextir og verðbólga mundu lækka en kvaðst hins vegar ekki fullviss um að treysta mætti því. ,,Ég hef ekki mjög mikla trú á að stjórnvöld standi við sitt og hefði gjarnan viljað sjá meiri kauphækkanir. Sjálf er ég með 43 þús. kr. í mánaðarlaun eftir sjö ára starf hér sem sérhæfð fiskvinnslukona. Með bónusi eru mánaðarlaunin á bilinu 60--70 þús. kr. þannig að hækkunin hefði mátt vera meiri.`` Þuríður sagði að lækkun vaxta kæmi sér ekkert sérlega til góða þar sem hún skuldaði ekkert. ,,Það kemur sér að sjálfsögðu vel þegar ég kaupi íbúð,,, sagði Þuríður.``
    Þetta finnst mér hógvært orðað. En boðskapurinn leynir sér þó ekki. Það hefðu verið tímamót ef víðtæk samstaða hefði náðst um að hækka lægstu launin, launin sem konurnar þiggja, þannig að þau nægðu til framfærslu. Þá hefði verið kominn kaupmáttur sem verðugt hefði verið að tryggja. Hvernig stendur á því að enn hefur ekki náðst órofa samstaða, þjóðarsátt eða bara einfalt samkomulag um að stíga þetta skref? Ríkið gæti t.d. gengið á undan með góðu fordæmi og samið við launafólk í þjónustu ríkisins um daglaun sem dygðu til framfærslu. En það hefur svo sannarlega ekki gerst þrátt fyrir það, meira að segja, að einn ríkisstjórnarflokkanna hafi fyrir furðu skömmu kunnað einmitt réttu leiðina til að stíga þetta mikilvæga skref. En hér er ég raunar að vísa til þáltill. Alþb. sem lögð var fram á 110. löggjafarþingi vorið 1988. Tillaga þessi nefndist till. til þál. um launajöfnun, lágmarkslaun og nýja launastefnu. En þar segir m.a., með leyfi forseta:
    ,,Alþingi ályktar að brýna nauðsyn beri til að skapa víðtæka, þjóðfélagslega samstöðu um nýja launastefnu er miði að því að draga úr hinum óhóflega launamun sem ríkir í landinu og tryggja að lægstu laun dugi fyrir nauðsynlegum framfærslukostnaði.``

    Já, það þarf að tryggja að lægstu laun dugi fyrir nauðsynlegum framfærslukostnaði og það hafa kvennalistakonur raunar þráfaldlega minnt á, m.a. með því að flytja frv. um að lögbinda þurfi lágmarkslaun.
    Ég skal láta hjá líða að fara ítarlega út í efasemdir mínar um að samningarnir haldi og loforð ríkisstjórnarinnar séu raunhæf. Það hafa aðrir gert og læt ég mér nægja að vísa til ræðu Málmfríðar Sigurðardóttur hér áðan. Því miður er aðallega verið að lofa upp í annarra ermar, m.a. með því að þykjast geta tryggt að ýmsar ríkisstofnanir skrimti á skertum fjárveitingum og þoli bann við gjaldskrárhækkunum. Í sjálfu sér gott ef heldur, en ef maður lítur með raunsæi á málið koma upp örlitlar efasemdir. Forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar mega ekki halda að menn séu svo grunnhyggnir að trúa því að fjármál opinberra stofnana séu einhver allt annar handleggur en ríkisfjármálin í heild sinni, handleggur íklæddur ermi sem þægilegt er að lofa upp í. Það er kannski haldbetra að lofa upp í hina ermina sem litið hefur verið til, til bændanna sem lýst hafa sig reiðubúna að axla ábyrgð annarra og skerða sinn hlut fyrir afurðir sínar. Fyrir suma kann það að vera auðvelt en víst eru þeir fleiri, láglaunabændurnir, meðan meðalbú ber ekki einu sinni tvö stöðugildi og í strjálbýlinu er ekki hvaða vinnu sem er að grípa upp. Konur til sveita vita það kvenna best og una því illa.
    Það er margt varðandi þessa kjarasamninga sem vert væri að ræða. Ýmis nýmæli er þar að finna, nýmæli sem hefðu getað markað tímamót í sögu vinnudeilna hérlendis hefði verið rétt á þeim tekið. Og þó að ég vilji á engan hátt kasta rýrð á hlutverk þeirra sem í raun og veru eru að semja um kaup og kjör, atvinnurekendur, sem raunar eru í sumum tilvikum ríki eða sveitarfélag, og launþega finnst mér að ábyrgð ríkisins sé mikil meðan samningum er háttað sem nú er. Ábyrgð ríkisins er ekki hvað minnst þegar kerfisbreytingar verða í samfélaginu, m.a. vegna þess að fræðsla um réttindi og skyldur á vinnumarkaði hefur brugðist. Á þeirri fræðslu ber ríkið fulla ábyrgð sem aðrir.
    Ef litið er á yfirlýsingu þá sem fjallar um starfsemi svokallaðra
gerviverktaka og fylgdi kjarasamningunum nú kemur þetta glöggt fram. Ég vil leyfa mér að lesa þá yfirlýsingu hér upp, með leyfi forseta:
    ,,Á síðustu mánuðum hefur færst í vöxt að samskipti launþega og atvinnurekenda hafi verið færð í búning verktakastarfsemi þar sem launþegi hefur talist undirverktaki vinnuveitanda. Mörg deilumál hafa risið vegna óljósra reglna um réttarstöðu aðila, ábyrgð þeirra í milli og gagnvart þriðja aðila, auk þess sem rökstuddar grunsemdir hafa vaknað um undirboð í krafti þessa. Þessi skipan dregur úr gildi félagslegra réttinda samkvæmt kjarasamningum og lögum, henni fylgja vanhöld af gjöldum og sköttum og hún veikir samkeppnisstöðu raunverulegra atvinnurekenda. Aðilar telja þessa þróun skaðlega og andstæða hagsmunum félagsmanna sinna og munu því vinna gegn henni með því að á samningstímanum verði settar skýrar reglur

og skilgreiningar á stöðu launþega annars vegar og verktaka og atvinnurekenda hins vegar.``
    Þarna er enn og aftur verið að tæpa á máli sem ég held að sé að verða eitt af hinum alvarlegri sem við stöndum frammi fyrir á vinnumarkaðinum um þessar mundir. Í besta falli munu afleiðingar þessarar þróunar þýða erfiðleika, réttleysi og jafnvel neyð fyrir fáa eina. Í versta falli riðar þetta kerfi sem við búum nú við með stéttarfélögum og vinnuveitendum til falls. Þó oft sé fyllsta ástæða til að gagnrýna það kerfi sem við búum við, a.m.k. meðan enn er verið að greiða smánarlaun eftir töxtum þessa kerfis, er það sem við tekur, óvissa, réttleysi og kröpp kjör fjölda fólks, enn þá verra. Því miður er tæpt á þessu mikilvæga máli á sérlega veiklulegan hátt. Skýrar reglur og skilgreiningar eru til lítils ef menn íhuga ekki á hvern hátt menn hyggjast nota reglurnar, upplýsingarnar. Það er nefnilega staðreynd að stór hluti þess fólks sem er nú úti á vinnumarkaðinum upp á býti þessara svokölluðu verktaka hefur hvorki þekkingu né áhuga á að kynna sér reglur eða skilgreiningar um stöðu sína. Það er bara anað út í að vinna og fá peninga. Það er ekki hirt um réttindi eða réttleysi. Menn treysta því að verða ekki veikir, missa ekki vinnuna, lenda ekki illa í eigin fáfræði og hirðuleysi og einnig kemur það til að menn leita hvaða leiða sem er til þess að hækka launin sín. Það þýðir ekki að loka augunum fyrir því að fræðslu vantar sárlega og það er skylda yfirvalda að sjá til þess að sú fræðsla nái til þeirra sem þurfa á henni að halda, fólks utan stéttarfélaga.
    En skyldi það vera tilviljun ein sem ræður því að menn eru í æ ríkara mæli að láta hafa sig út í það að vinna utan stéttarfélaga og þeirra réttinda sem þeim þó fylgja? Eða getur það verið að menn séu búnir að gefast upp á því að fá sómsasamleg kjör samkvæmt taxta og séu reiðubúnir að gera eitthvað, bara eitthvað, til að geta skrimt næstu vikuna eða tvær án þess að þurfa að þiggja bætur? Það er ekki bara fáfræði og hirðuleysi sem rekur menn til að fara í strætó fyrir orlofspeningana sína, til og frá vinnu reyndar en ekki í orlof út í lönd eins og margur hyggur að allir Íslendingar geti leyft sér, eða að borða fyrir peningana sem eiga að tryggja mönnum rétt til veikindadaga. Menn verða jú veikir ef þeir borða ekki, svo að það er kannski von að þeir velji að borða fyrir þessar fáeinu krónur sem þeir selja rétt sinn til veikindadaga á.
    Því miður stöndum við nú frammi fyrir þeirri smánarlegu staðreynd að greidd eru laun hér á landi sem ekki er mögulegt að lifa á og meira að segja heimtur skattur af tekjum undir framfærslumörkum til að kóróna skömmina. Og því miður duga láglaunabæturnar, sem verið var að semja um í þessum makalausu tímamótasamningum, alls ekki til að breyta þeirri staðreynd.
    Nú er ljóst hverjar niðurstöður samninganna eru og það er sama þótt ýtrustu bjartsýni sé beitt og búist við að allt haldi. Sú bjartsýni ríkir að vísu alls ekki, en jafnvel þótt svo væri duga þessir samningar alls ekki fyrir þá tekjulægstu. Ég spyr því: Er ekki tími til

kominn að stjórnvöld viðurkenni þessar staðreyndir og grípi til nothæfra ráðstafana fyrst menn eru nú að tala um tímamót? --- [Fundarhlé.]