Jóhannes Geir Sigurgeirsson:
Hæstv. forseti. Það sem ég ætla að gera hér að umræðuefni í upphafi er þáttur og þátttaka bændasamtakanna í þessum nýgerðu kjarasamningum. Ég fagna því mjög að svo hefur til tekist nú að samtök bænda hafa af fullri einurð tekið þátt í þessari samningagerð. Ég fagna því margra hluta vegna og kannski fyrst og fremst vegna þess að umræða um landbúnaðarmál nú um nokkurt skeið hefur verið á ótrúlega lágu plani. Hún hefur einkennst af þekkingarleysi og mjög svo frjálslegri meðferð á tölum og oft og tíðum hefur verið mjög áberandi sú firring sem því miður er að verða á milli þéttbýlis og dreifbýlis í þessu landi.
Ég ætla einungis að nefna eitt dæmi þar sem er úttekt sem er gerð á vegum Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands af Guðmundi Ólafssyni hagfræðingi og m.a. ráðherrar úr okkar ríkisstjórn hafa hampað á opnum fundum. Ef farið er ofan í þau plögg sem menn kalla úttekt á verðþróun matvöru miðað við annan varning hér í landi á tíu ára tímabili og litið á forsendurnar koma þar ótrúlegir hlutir í ljós. Ég ætla ekki að nefna mörg dæmi, nefni aðeins eitt. Til eru nefndar vörur sem hafi notið verðverndar af innlendri vöruframleiðslu vegna þess að þær séu í háu verði. Einu vörurnar sem þar eru nefndar til samanburðar eru kaffi, bjór og sælgæti sem hafi hækkað óeðlilega vegna verðleiðni íslenskrar landbúnaðarframleiðslu.
Ég ætla að vísu að syndga upp á náðina og nefna annað dæmi. Það er nefnt dæmi um vörur sem séu óháðar verðþróun íslenskra búvara og hafi þess vegna sýnt allt aðra verðkúrvu á þessu tímabili. Þar eru einu dæmin sem til eru tínd kaffivélar, myndbönd, vasatölvur og dömubindi. Út af þessu leggur síðan hæstv. utanrrh. á stórum fundi í Vestmannaeyjum sem mikið hefur verið hampað og segir: Niðurstaðan er sú að það megi spara 10 milljarða með því að fara í innflutning á búvörum. Þar talar arkitekt þeirrar skattastefnu sem setur mark
sitt öllu öðru fremur á þessa verðkönnun vegna þess að hún segir einungis hvað hlutirnir kosta í krónum í útsölu, arkitekt þeirrar skattastefnu sem á þessum tíma tók aðflutningsgjöld af þessum vörum sem nefnt er að hafi lækkað á tímabilinu og lagði nýja skatta á matvöru sem nefnt er að hafi hækkað.
Það er ekkert undarlegt þó að manni blöskri svona málflutningur. Þessari umræðu verður að snúa við og ég held að það samkomulag sem forusta bænda og það traust, sem ég veit og hef öruggar heimildir fyrir að nú hefur skapast milli bændaforustu og þeirra aðila sem unnu að þessum kjarasamningum, þetta samkomulag og þetta traust muni verða til þess að við getum komið þessari umræðu á nýjan grunn.
Ég veit einnig að það að svona tókst til núna mótast mikið af því að afstaða verkalýðsforingja á landsbyggðinni var allt önnur gagnvart innlendri matvælaframleiðslu en margra hér á suðvesturhorninu og það sýnir enn þá firringu sem orðin er í okkar þjóðfélagi. Þetta er mjög svo skiljanlegt vegna þess að
ef við skoðum atvinnumunstrið úti um land, ef við skoðum hverjir það eru þar sem hafa atvinnu sína af innlendri búvöruframleiðslu, eru bændur þar orðnir í miklum minni hluta. Það eru þeir sem þjónusta, þeir sem vinna vörurnar, sem þar eru orðnir meirihlutaðilinn og stærsti hagsmunaaðilinn. Það væri út af fyrir sig ósköp þægilegt fyrir okkur, þessa fáu sem enn erum í bændastétt --- við erum að vísu tveir hér inni núna --- að ganga á vit stjórnvalda og biðja um ávísunina á ráðherralaunin. Ef hlutirnir væru svo einfaldir væri það ósköp einfalt. Ég geri mér hins vegar vonir um að upp úr þessari umræðu geti skapast þjóðarsátt sem byggi á þörf okkar á innlendri matvælaframleiðslu og ekki síður á þeirri þjóðlegu menningararfleifð okkar sem byggist á því að við erjum landið og byggjum það allt.
Ég ætla síðan að koma aðeins almennt að kjarasamningunum. Menn hafa farið hér í samanburð á því sem gert var á haustdögum og sumrinu 1988 og því sem nú er að gerast. Hæstv. ráðherra Hagstofu Íslands nefndi hér áðan að Borgfl. hefði þá strax bent á að menn skyldu ekki fara niðurfærsluleiðina sem forstjóranefndin lagði til, heldur núlllausnina sem nú er uppi. En er málið svona einfalt? Hvers vegna skyldi forstjóranefndin, undir forystu Einars Odds á Flateyri, á sumrinu 1988 hafa lagt til niðurfærsluleiðina, lagt til, ef ég man rétt, allt að 10% niðurfærslu á kaupgjaldi og verðlagi? Og hvers vegna skyldu aðilar vinnumarkaðarins í dag, þar sem Einar Oddur er formaður Vinnuveitendasambandsins --- ég tek undir það að þessir kjarasamningar eru ekki eins manns verk en ég held að það sé á engan hallað þó ég segi það að Einar Oddur sé líka arkitekt að þeirri lausn sem nú er uppi --- hvers vegna skyldi hann hafa lagt til 10% niðurfærslu sumarið 1988 en núlllausnina í dag? Þar erum við einmitt komnir að kjarna málsins og því sem menn hafa eytt, að mér hefur fundist, allt of löngum tíma í í þessari umræðu í dag: Hvað hefur gerst í millitíðinni? Það sem gerðist í millitíðinni var að ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar tók mjög ákveðið á gengismálunum án þess að því fylgdi kollsteypa í efnahagslífinu, gekk í stórkostlega skuldbreytingu í grunnatvinnuvegunum og á þennan hátt skapaði þann grunn sem nú er fyrir
núlllausninni. Svona einfalt er málið.
Þetta gerir það kannski að verkum að þessi leið var ekki eins einföld sumarið 1988 og menn vildu vera láta, ég held þó að hún hafi verið fær þá ef menn hefðu hlustað á rétta ráðgjafa. En ráðgjafar Sjálfstfl. í efnahagsmálunum þá voru ekki þeir sem stríða úti á vinnumarkaðinum, það voru þeir sem skrifa um fjármál á fimmtudögum í Morgunblaðið og það voru þeir sem skrifa pistla í ritlinga verðbréfasjóðanna, því miður. Og formaður Sjálfstfl. hélt enn fram hér í umræðu í dag gagnsemi hárra raunvaxta.
Nú ætla ég ekki að fara að kenna einni sérstakri ríkisstjórn um þær ógöngur sem við höfum lent í á síðustu árum. Það eru vaxtaverkir þeirra breytinga að við hurfum frá óverðtryggðu fjármagni og yfir í verðtryggt. Og því miður, eins og okkur Íslendingum
er tamt, gengum kannski lengra þar en grundvöllur var fyrir. Það þýðir ekkert að kenna einni sérstakri ríkisstjórn þar um. Þar bera þeir flokkar sem hér eru við stjórn núna allir ábyrgð og Sjálfstfl. líka. En það verður heldur ekki tekið af ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar að hafa skapað þann grunn sem samningarnir byggja á núna. Ég vil þó sérstaklega taka undir það sem hv. þm. Karl Steinar Guðnason sagði hér í dag að þessir samningar eru ekki verk neinnar einnar ríkisstjórnar, ekki neins eins manns, heldur vegna þess að af reynslu, biturri reynslu undangenginna ára voru allir aðilar málsins tilbúnir til að taka höndum saman til lausnar.
Hvað er þá fram undan? Það hefur skapast jafnvægi til þess að taka á málum á nýjan hátt. En eftir stendur að eftir umrót og rask síðustu ára er tekjuskipting í þjóðfélaginu óviðunandi. Hún hefur skekkst. Það verður að vinna að því að bæta það. Við höfum það lag núna. Allir aðilar sem eru á lægri launum og lægri töxtum í þessu þjóðfélagi eru búnir að ganga til samninga. Stjórnvöld bera mikla ábyrgð og miklar skyldur gagnvart þessum aðilum, að sjá til þess að aðrir hópar sprengi það ekki upp.
Ef við lítum aðeins á stöðu þeirra efnahagsstærða sem menn helst líta á í dag þá eru gengismálin í jafnvægi, þróun vaxta er á réttri leið, þó svo þar geti verið blikur á lofti eins og ég mun koma að hér á eftir, vöruskiptajöfnuður er í lagi. Veiki punkturinn er hins vegar ríkisfjármálin.
Nú ætla ég ekki að kenna einum né neinum sérstökum fjármálaráðherra þar um og allra síst þeim sem nú situr. Þetta er þróun sem hefur verið að eiga sér stað nú um langt árabil. Við höfum verið að byggja inn halla á okkar ríkisbúskap. Hann kemur berlega í ljós núna þegar eilítið kreppir að í okkar efnahagslífi og hann kemur líka berlega í ljós núna þegar upp eru tekin þau vinnubrögð að sett séu aukafjárlög til þess að dekka þær aukafjárveitingar sem nauðsynlegar eru. Á þessu verður að taka og þetta er eitt stærsta málið í okkar pólitík á næstu missirum, hver svo sem kann að vera við stjórnvölinn.
Hvernig á að bregðast við þeim útgjaldaauka sem kemur upp núna vegna þessara kjarasamninga? Það er síðan skammtímamál sem við verðum að taka á nú þegar.
Ég hallast verulega að þeirri skoðun sem hér kom fram í dag að þau viðbótarútgjöld sem beint tengjast þessum kjarasamningum geti verið á bilinu 500--600 millj. Hvar á að skera niður? Ég held að við megum ekki falla í þá gryfju að fara í jafnan niðurskurð á rekstrarþætti fjárlaga. Við náum honum ekkert fram á þessu stigi. Ég vil að vísu nota tækifærið hér og spyrja hæstv. fjmrh. hvort þær upplýsingar sem komu í sjónvarpsfréttum í kvöld, þó svo að ekki hafi þótt tímabært hér á þingi í dag að upplýsa þm. um það, um þennan niðurskurð, hvort þær séu réttar. ( Fjmrh.: Þær eru nú ekki réttar.) Þær eru ekki réttar, en þá væri mjög æskilegt að það yrði leiðrétt hér.
Ég endurtek það aftur: Flatur niðurskurður á rekstrarþætti skilar sér ekki með þessum fyrirvara. Að
spara í rekstri ríkisins er langtímamarkmið, við náum því ekki á einu ári. Þá er ekkert eftir nema framkvæmdarliðirnir og þar hefur maður séð einstaka þætti sem hægt er að taka af. Stærsti þátturinn er vegamálin, þó ég álíti að ekki verði mikil samstaða um að skera niður þar. Einstakir stórir framkvæmdaþættir sem hægt er að fresta eru þá fyrst og fremst viðgerðin á Bessastöðum og endurnýjun á Þjóðleikhúsinu. En það kom að vísu fram í þeirri sjónvarpsfrétt sem ég vitnaði til áðan að Þjóðleikhúsið væri undanþegið öllum niðurskurði núna og með þeirri einkennilegu röksemdafærslu að það ætti að fjármagna fyrst og fremst með lánum. Maður vissi ekki betur en það væru 350 millj. á fjárlögum þessa árs sem ættu að fara í það verkefni. Er það ekki rétt, í viðhald? ( Gripið fram í: Þingmaðurinn getur séð það í fjárlögum.) Já, ég skal gera það á eftir. En ég held að þarna séu liðir þar sem við getum sparað.
Ef við lítum síðan á langtímamarkmiðin í ríkisfjármálunum er ekki nokkur vafi í mínum huga að við verðum að velta verkefnum í miklum mæli af ríkissjóði og yfir á aðila sem standa nær fólkinu. Yfir á sveitarfélögin og samtök þeirra þar sem þau hafa ekki ein og sér bolmagn til að taka við auknum verkefnum. Vissulega þurfa þau að fá nýja tekjustofna með. Fyrir þessu eru margar röksemdafærslur og kannski ein sú helsta að ríkið er og verður alltaf þessi stóri fjarræni aðili sem allir eru tilbúnir til að gera kröfur til en óskaplega fáum þykir vænt um. Þeir eru ekki margir í landinu sem þykir vænt um
ríkiskassann. Sjónarmiðið er orðið allt annað þegar kemur að sveitarfélögum og landshlutasamtökum og menn finna fyrir því virkilega þegar þarf að taka á.
Ég ætla ekki að hafa þessi orð hér öllu fleiri. Ég sé þó að ég sleppti einum þætti, veigamiklum þætti sem ég ætlaði að taka upp og snertir það hvernig þessir samningar sem bændasamtökin undirrituðu samhliða þessu koma við bændur. Það hefur verið nefnt hér að ef litið er á verðlagsgrundvöll búvara einan og sér getur það þýtt allt að 6% skerðingu á launalið í grundvelli í kúabúskap og sauðfjárbúskap. Málið er að vísu ekki svona einfalt. Það væri eins og að færa upp ársreikning þar sem eingöngu væru færð gjöldin en tekjunum sleppt. Við hljótum að spyrja að því, við sem berum hag bændastéttarinnar fyrir brjósti: Hvað kemur á móti? Þar ætla ég fyrst og fremst að nefna tvennt:
Vaxtalækkun og þá tala ég um nafnvaxtalækkun. Reyndar er ég með sjálfum mér hættur að gera greinarmun á verðtryggingu og nafnvöxtum vegna þess að því miður hefur það verið í allt of mörgum tilfellum að verðtryggingin hefur ekki verið neitt annað en raunvextir, þegar menn hafa ekki komið hækkununum út í verðlagið. Lækkun nafnvaxta og vonandi lækkun raunvaxta í kjölfarið kemur bændum til góða og fyrst og fremst sauðfjárbændum, bændum í aukabúgreinum og skuldugri hluta bænda. Um það gæti ég sýnt útreikninga en geri það ekki hér. Og við getum alveg séð það í hendi okkar hvaða máli það skiptir fyrir loðdýrabónda sem ætlar að halda áfram í
dag og veit að hann fær ekki meira fyrir sína framleiðslu á næsta ári, spár á loðdýramarkaðinum segja það, hvaða máli það skiptir fyrir hann hvort nafnvextir á næsta ári verða 30% eða 10%. Það eru beinharðir peningar í vasann.
Í öðru lagi hefur verðlagning búvara í hinum hefðbundnu búgreinum verið þannig uppbyggð, að leiðrétting hefur alltaf komið eftir á. Menn hafa alltaf á þriggja mánaða fresti verið að ná núllinu aftur, verðhækkanirnar hafa komið jafnt og þétt og þetta hefur þýtt það að í raun, þegar verðbólgan hefur verið mest, hefur skort á svo prósentum skiptir að launaliðurinn hafi skilað sér til fulls.
Þetta er það sem ég vildi koma á framfæri hér í þessari umræðu.