Skúli Alexandersson:
Herra forseti. Þessi umræða sem hefur átt sér stað hér í dag er að mínu mati nokkuð sérstök og sjálfsagt tímamótaumræða eins og flest það sem um hefur verið fjallað og ekki síst það sem hefur verið tilefni til þessarar umræðu, þ.e. þeir samningar sem eru nýgerðir á milli aðila vinnumarkaðarins sem hér hafa verið nefndir tímamótasamningar næstum af hverjum ræðumanni sem hingað hefur komið. Ég hef þá tilfinningu að þessir samningar séu ekki mjög frábrugðnir ótal mörgum öðrum samningum sem gerðir hafa verið á undanförnum árum, áratugum. Þeir hafa líka oft og tíðum, eins og hér kom fram hjá einum ræðumanni, verið nefndir tímamótasamningar. Í huga minn kemur ekki nema einn samningur sem sérstaklega var undirstrikaður sem mislukkaður samningur, þ.e. samningurinn sem gerður var 1984 sem aðilar nefndu verðbólgusamning strax og þeir höfðu skrifað undir hann. Flestir aðrir samningar sem gerðir hafa verið hafa verið nefndir tímamótasamningar, sólstöðusamningarnir t.d. og margir fleiri, samningarnir sem nefndir voru hér áðan, bæði febrúarsamningarnir 1986 og ekki síður desembersamningarnir 1986 ( Gripið fram í: Þjóðarsáttarsamningar.) Já, þjóðarsáttarsamningar og með ýmsum nöfnum öðrum. En þessir samningar eru sjálfsagt tímamótasamningar að einu tilliti til og alveg sérstakir, þ.e. á þann veg að allir virðast hafa viljað hafa staðið að þeim. Það virðast allir vilja þessa Lilju kveðið hafa. Það held ég að sé alveg sérstakt í umræðu um nýgerða kjarasamninga.
Annað er kannski sérstakt í þessari umræðu og það er það að hún skuli fara fram áður en nokkur umræða sem heitið getur hefur farið fram í verkalýðsfélögunum eða launþegafélögunum eða atvinnurekendafélögunum sjálfum sem hafa gert þessa samninga. Umræðan ber þess líka merki að hv. þm. fara mjög varlega að því að ræða um samningana, nefna fyrst og fremst góðu þættina, sem ég verð að taka undir að eru sjálfsagt yfirgnæfandi í þessum samningum, en
hafa látið vera að benda á ýmsa þætti sem eru ófrágengnir og bíða næstu vikna og næstu mánaða til úrlausnar. Það er eins og ég segi að umræðan hér hefur verið þannig að menn hafa hagað sér í umræðunni á þann veg að þetta væri það brothætt, bæði á þann veg að umræðan yrði að vera mjúk og góð og á hinn veginn líka, að samningarnir sjálfir séu það brothættir að ekkert megi raunverulega ske í þjóðfélaginu til þess að þessi mikla tilraun mistakist. Menn hafa þó ekki verið að benda á neinar sérstakar hættur sem við geti blasað nema þó það helst að einhverjir hópar í þjóðfélaginu færu að krefjast hærri launa eða eitthvað þess háttar. Aðeins hefur heyrst imprað á því í umræðunni.
Því er haldið fram af ráðherrum að með þessum samningum sé komið hér á efnahagslegt jafnvægi. Hæstv. viðskrh. lét þau orð falla hér. Því miður heyrði ég ekki ræðu hæstv. fjmrh., en ég veit að hann lítur
svo á að hér hafi gerst miklir hlutir á þann veg að fram undan séu bjartari tímar og nokkuð traust efnahagsframvinda. Þessir samningar gefa að vísu tilefni til þess að vona að það geti orðið og oft hefur verið dekkra í álinn. Það má segja að það sé mikið bjartara yfir og meiri vonir til þess að hlutirnir geti verið á þann veg að hér verði efnahagslegt jafnvægi á næstu mánuðum, missirum, en það eru þó ýmsir hættupunktar sem við blasa. Og meðan ekki er búið að leysa þau vandamál, sem ég skal nefna hér á eftir, held ég að ekki sé hægt að tala um efnahagslegt jafnvægi.
Í fyrsta lagi eru hundruð og þúsundir Íslendinga atvinnulaus. Það er sagt að þessir samningar muni leysa efnahagslegan vanda á þann veg að þessir atvinnuleysingjar verði kallaðir til starfa. En það liggur ekkert fyrir um það. Ég veit um það að t.d. uppi á Akranesi eru hátt í 200 manns atvinnulausir og ég veit að það fólk telur ekki vera komið á efnahagslegt jafnvægi fyrr en búið er að leysa þau vandamál að það hafi fengið vinnu. Á sama hátt er staðan í þjóðfélaginu þannig að framfærslukostnaður í landinu er svo mismunandi eftir því hvar fólk á heima að þar er ekki hægt að tala um efnahagslegt jafnvægi. Á sama tíma og stór hluti landsbyggðarfólks þarf að greiða stórar upphæðir í hitunarkostnað, í orkukostnað, margfalt meiri en þarf að borga í öðrum landshlutum er ekki hægt að tala um efnahagslegt jafnvægi. Þessir tveir punktar sem ég nefni hér, þ.e. atvinnuleysið eða staðan í atvinnumálum og mismunur sá sem er á framfærslukostnaði í landinu, eru þeir punktar sem hlýtur að verða kallað á á næstu vikum og mánuðum að á verði breyting. Þess vegna segi ég það að sú lausn sem skrifað var undir við undirskrift kjarasamninganna getur hafa verið lausn um einhverja ákveðna bindingu á launum og launaþróun en þessi ákveðnu vandamál sem hljóta að tengjast kjörunum voru ekki leyst. Þetta er vitaskuld jafnt vandamál þeirra aðila sem skrifuðu undir samningana og ríkisstjórnar en að vissu leyti verður að undirstrika það að ríkisstjórn hlýtur að taka þarna á og hafa forustu fyrir að leysa og leiðrétta. Fyrst tekist hefur að koma á þeim samningum sem eru til umfjöllunar treysti ég hæstv. fjmrh. og ríkisstjórn til að beita sér fyrir því á næstu vikum og mánuðum að þessi vandamál verði leyst, staða þessa fólks verði bætt á þann veg að það nái efnahagslegu jafnvægi á við aðra íbúa landsins.
Einn punktur er eftir sem ég vildi nefna sem við blasir og er mjög alvarlegur. Hann snertir fyrst og fremst vinnuveitendahópinn, bjargvættinn okkar frá Flateyri. Það er lausnin á fiskverðinu, ekki er farið að ákvarða fiskverð. Í gær gerðist það í Verðlagsráði sjávarútvegsins að fundi var þar frestað á þann hátt að þar voru skil á þannig að umræða yrði ekki í nokkurn tíma, jafnvel það að þeir sæju ekki þar neina lausn á þeim vettvangi sem Verðlagsráð er. Sjómannaaðilarnir lýstu því yfir að þeir mundu neita því að taka þátt í yfirnefnd. Meðan ekki er búið að leysa það hvert skal vera fiskverð á Íslandi, þá er ekki fyrir hendi
efnahagslegt jafnvægi og þá er eftir að leysa ansi stóran þátt í peningaþróun og fjármálaþróun í landinu. Staðreyndin er nú sú eins og hv. þm. vita að víða um landið er þegar orðin breyting á fiskverði þannig að nú á sér stað mikil mismunun á milli útgerða og sjómanna eftir því hvaðan útgerðinni er haldið út. Víða er sjálfsagt orðin 20--30% hækkun frá hinu fyrra verðlagsráðsverði, búið að viðurkenna þá hækkun sem útgerðaraðilar og sjómenn fara fram á í Verðlagsráði. Á öðrum stöðum er verðið ekki langt frá því sem það var áður, ekkki langt frá verðlagsráðsverði. Þegar 20 eða 30% fiskverðshækkun kemur inn í útreikninga Þjóðhagsstofnunar breytast ýmsar þjóðhagsstærðir ef þannig fer sem sjálfsagt má gera ráð fyrir. Hvernig sem það verður er staðan þannig í dag að ekki er búið að ganga frá fiskverðsákvörðun.
Hér hefur verið rætt um það að þessir samningar valdi ríkissjóði miklum kostnaði. Sumir segja að þetta sé kostnaður upp á 500--600 millj. Hæstv. fjmrh. nefnir 1200 millj. og ég hef heyrt í fréttum að hæstv. fjmrh. sé búinn að leggja fyrir ríkisstjórn tillögur um niðurskurð á ríkisútgjöldum eitthvað í kringum þessa upphæð, 1200--1300 millj. Á sama tíma er sagt að það hafi verið samið um að aðrir þættir í þjóðfélaginu skyldu verða óbreyttir. Getur það verið að ríkisstjórnin ein hafi tekið að sér að breyta einhverjum þjóðfélagsstærðum gagnvart einhverjum ákveðnum hópum í þjóðfélaginu? Getur það verið að ríkisstjórnin hafi tekið það að sér, eins og maður hefur heyrt fleygt, að skera niður framlög til vegamála um 100 millj., 200 millj. eða eitthvað þess háttar, það skiptir ekki máli hvað upphæðin er stór, og láta á þann veg samningana sem verið er að gera bitna á ákveðnum þegnum þjóðfélagsins út um landið. Fyrir hvern landsbyggðarmann er hver kílómetri, hver metri, af nýjum vegi tekjubót og þegar búið er að samþykkja fjárlög, búið að samþykkja vegáætlun um það að þessi eða hinn vegarspottinn skuli koma, þá er það sama eins og kaupsamningur eða kjarasamningur við ríkisstarfsmann eða launþega hjá vinnuveitendum. Það er tekjuskerðing og það er skerðing á marga vegu fyrir landsbyggðarmanninn ef á að fresta vegaframkvæmdum á hans svæði. Þess vegna er það alveg fráleitt að láta sér detta það í hug að á sama tíma og verið er að semja um einhverja núlllausn eða jafnaðarlausn í þjóðfélaginu á þessum og hinum vettvangnum sé ætlast til þess að skorið sé niður í þjónustu- og uppbyggingarþáttum úti á landsbyggðinni. Því verður mótmælt og ég vænti þess að landsbyggðarmenn taki höndum saman um að standa gegn því að sú leið verði farin að krefjast þess að ríkisframlög til framkvæmda og þjónustu vítt og breitt um landið verði skorin niður vegna þessara kjarasamninga. Það er er algjört ranglæti og getur ekki staðist sem einhver lausn á sama tíma og sagt er að verið sé að ganga frá einhverri núlllausn annars staðar í þjóðfélaginu.
Ég ætlaði reyndar að fjalla um ýmsa fleiri hluti en það er orðið áliðið kvölds og ég skal nú stytta mál mitt. Aðeins um vextina: Það er einn þáttur þessa
samnings að nafnvextir séu lækkaðir. Eins og hv. þm. hafa náttúrlega tekið eftir og taka í munn sér er þó nokkuð síðan hætt var að tala um vexti heldur var búið að skipta þessari leið til ávöxtunar peninga í tvennt og kallað nafnvextir og raunvextir. Nú er talað um það að nafnvextir skuli lækkaðir og jafnvel gert mikið úr að bankakerfið í landinu hafi, á sama tíma og launþegar og atvinnurekendur hafa samið um stöðvun verðbólgu, gert grundvallarsamning á þann veg að þeir skuli ekki taka þátt í verðbólgudansinum áfram, að bankarnir sýni þá þjónustu að þeir skuli taka tillit til þess að þessir samningar hafa verið gerðir. Og það er miklast yfir því að það skuli vera lækkaðir vextir í tengslum við þá verðbólgubindingu sem gerð hefur verið með samningunum. Yfir ýmsum hlutum má býsnast. En að bankarnir taki þátt í því að lækka raunverulegan fjármagnskostnað í landinu, það er ekki upp á það boðið, og meira að segja hillir undir það að ef eitthvað misferst í þessum brothættu samningum verði peningastofnanir í landinu um leið tilbúnar að vera fyrstar á vettvang til þess að ýta undir nýja verðbólguöldu. Það er ekkert sem heftir það. Þannig er gengið frá þessum þætti.
Ég sagði að þessir samningar væru tímamótasamningar fyrst og fremst á þann veg að allir vildu að þeim hafa staðið og allir teldu sig hafa verið þeir aðilar sem hafa stuðlað að því að þessir samningar urðu að raunveruleika. Það eru sjálfsagt ekki margir sem hafa þá skoðun að þetta hafi ekki verið og sé ekki rétt spor. En það eru, eins og ég hef nefnt hér, ýmsir þættir sem verður að taka tillit til jöfnum höndum og við fögnum þeim samningum sem hér hafa verið gerðir. Og fyrst og fremst vil ég undirstrika þetta sem ég nefndi áðan,
þ.e. að ríkisstjórninni og aðilum vinnumarkaðarins ber skylda til þess á næstu vikum og missirum að leiðrétta þá atvinnulegu stöðu sem er í þjóðfélaginu, það atvinnuleysi sem er í þjóðfélaginu, og á annan veg að leiðrétta þann mikla mismun sem er á framfærslukostnaði eftir búsetu á landinu.