Jón Kristjánsson:
Herra forseti. Ástæða þess að ég kveð mér hljóðs við þessa umræðu er sú að beint var til mín tilmælum við umræðuna í gær af hv. 2. þm. Norðurl. v. Tilmælin voru á þá leið hvort greitt hefði verið út af fjárlögum vegna umhverfisráðuneytis á þessu ári og hvort það stæðist lög ef gert hefði verið. Ég hef reynt að afla mér upplýsinga um þetta. Það hefur verið greidd út af sérstökum fjárlagalið 1357 þús. kr. upphæð á þessu ári sem notuð hefur verið til undirbúnings stofnunar umhverfisráðuneytis. Mér hefur ekki tekist á þessum skamma tíma að afla mér lögfræðilegrar greinargerðar um þetta mál. Ég tel vissulega á verksviði fjvn. að fylgjast með framkvæmd fjárlaga að þessu leyti og vísa málinu að öðru leyti þangað.
Framhald þeirrar umræðu sem hér hefur farið fram hefur aðallega snúist um það frv. sem enn er til meðferðar í allshn. Við höfum unnið að því af kappi eins og rakið hefur verið. Það hafa komið fjölmargir aðilar á fund nefndarinnar og því hefur verið lýst að undirtektir þeirra hafa verið neikvæðar. Það er vissulega rétt. Skoðanir hafa verið skiptar. En þess ber að geta að við höfum fram að þessu verið að lýsa ofan í þau mál sem ágreiningur er um og þá aðila sem mest hafa haft við skipan mála að athuga höfum við kallað á fund nefndarinnar.
Fyrst ég er kominn hér upp vil ég leiðrétta annan misskilning sem fram kom við 2. umr. málsins. Því er haldið fram að þetta minnisblað sem er upp á 21 síðu innihaldi athugasemdir við frv. Þetta minnisblað er vinnuplagg sem starfsmaður nefndarinnar vafði upp fyrir nefndina til hagræðingar. Starf hans hefur verið til mikillar fyrirmyndar og þetta vinnuplagg er bæði athugasemdir og afstaða hinna ýmsu aðila sem fengið hafa málið til umsagnar. Það er tíundað í meginatriðum í þessu plaggi og það inniheldur bæði athugasemdir og jákvæð viðbrögð. Þetta vildi ég að kæmi fram vegna þess að mér fannst gæta misskilnings um þetta í 2. umr. málsins og minnir að það hafi verið hv. 1. þm. Reykn. sem veifaði þessu plaggi og sagði að það innihéldi aðeins athugasemdir við málið.
Það er unnið af kappi að 129. máli og 4. máli sem fjalla um umhverfismál. Við í nefndinni höfum kappkostað að skyggnast sem best inn í þá verkaskiptingu sem ætlað er að verði í væntanlegu umhverfisráðuneyti.