Stjórnarráð Íslands
Miðvikudaginn 07. febrúar 1990


     Guðrún Helgadóttir:
    Hæstv. forseti. Ég vil aðeins skýra hér örfá atriði vegna þeirra umræðna sem hér hafa orðið eða urðu sérstaklega í upphafi fundar. Það er alveg rétt sem fram hefur komið að gert var samkomulag um þinghald hér í dag og mér dettur ekki í hug annað en það samkomulag haldi eins og annað það samkomulag sem gert hefur verið og ég vil þakka þingflokksformönnum fyrir hversu vel hefur verið staðið að slíkum samningum, fyrr og síðar, og hef enga ástæðu til að halda að svo verði ekki einnig nú.
    Vegna þess að eitthvað hefur farið öfugt ofan í menn að ég leyfði mér hér að leggja orð í belg í þessari löngu umræðu, og tók ræða mín nákvæmlega 4 1 / 2 mínútu, þá vil ég segja þetta: Það vill nú svo til að ég hef komið töluvert nálægt umhverfismálum, einkum og sér í lagi innan Norðurlandaráðs, eins og ýmis þau rit sem gefin hafa verið út þar bera með sér, þannig að mér fannst nú engin goðgá þó að ég fengi að segja um þetta mál nokkur orð. Annað eins hefur nú, að ég hygg, verið sagt hér í þingsölum eins og að umræðan væri ekki alltaf málefnaleg, en mér þykir afar leitt ef ég hef móðgað einhverja hv. þm. með þeim ummælum.
    Ég var á mælendaskrá í gær og ákvað þá að draga mig í hlé til þess að þinghald gæti farið fram með umsömdum hætti. Ég gekk til forseta --- og vil ég biðja hæstv. forseta að hlusta á það --- áður en þessi fundur hófst hér í dag og spurði hann hvort hann vissi til þess að einhver umræða yrði. Hefði svo ekki verið hefði ég sleppt því að taka til máls hér í dag. Forseti kvaðst vita um þó nokkra þm. sem mundu tala svo að ég tók ákvörðun um að segja þessi örfáu orð.
    Í þriðja lagi vil ég taka fram að ég kann því afar illa að þegar ég stend hér í hv. Nd. sem venjulegur þm. sé ég ævinlega titluð forseti Sþ. Vitaskuld er ég það og ég er hreykin af að vera það, og ég hef enga ástæðu til að halda að neinn hv. þm. skammist sín fyrir það, en hér í Nd. er ég auðvitað fyrst og fremst 13. þm. Reykv. og það hefur aldrei verið um það samið við einn eða neinn að ég sé svipt málfrelsi hér sem þm. Þetta hlýt ég að taka fram vegna þess að ég minnist ekki að þessi virðulegi titill hafi yfirleitt verið notaður þegar hv. 4. þm. Vestf. var hér forseti árum saman og vann auðvitað öll sín störf sem þm. Vestfirðinga. Ég minnist ekki að hann væri titlaður
foseti sameinaðs Alþingis þegar hann tók til máls hér í Nd. Og ég er formföst kona og vil gjarnan halda þeirri venju.
    Að öðru leyti treysti ég því auðvitað að hv. þingmenn standi við það samkomulag sem liggur skriflegt fyrir og hafi ég átt einhvern sérstakan þátt í því að erfiðleikar verði með að halda það samkomulag, þá harma ég það auðvitað, en get ekki alveg í fljótu bragði séð hverja sök ég á þar á.