Friðjón Þórðarson:
Herra forseti. Ég vona að hæstv. ráðherra Hagstofu Íslands þurfi ekki að taka það sem neinar persónulegar árásir þó að mönnum verði tíðrætt um þetta mál. Hér er nefnilega um stórmál að ræða og eðlilegt að þm. reyni að fóta sig á þeim rökum sem færð eru fram fyrir stefnu ríkisstjórnarinnar í málinu.
Hv. 2. þm. Reykn. og 5. þm. Vesturl. röktu hér umsagnir allmargra aðila sem komið hafa á fund allshn. og skal ég ekki fara út í þá sálma nú, en það er rétt að þær eru nánast allar á einn og sama veg, að segja má. Hitt er þó verra ef stefna ríkisstjórnarinnar í þessu máli gengur þvert á þá meginstefnu sem nú ryður sér til rúms í hinum siðmenntaða heimi, sem svo vill kalla sig að því er maður hefur spurt, og er þar mikið vitnað í hina frægu skýrslu Gro Harlem Brundtland.
Það hefur hins vegar verið gert samkomulag um framgang þessa máls og skal ég því ekki lengja mál mitt að sinni. En ég bendi aðeins á að það er mikill áhugi hjá alþm. fyrir þessu máli. Og sannarlega er þetta eitt stærsta mál sem kemur fyrir þetta þing. Ég hvet því alla hv. alþm. til að kynna sér málið sem allra best.