Landbúnaðarráðherra (Steingrímur J. Sigfússon):
Virðulegi forseti. Ég vil svara þessu síðasta sem hv. fyrirspyrjandi kom inn á. Það er því miður nokkrum erfiðleikum bundið að banna innflutning og/eða notkun á ýmiss konar rafeindabúnaði sem er fjölnota, ef svo má að orði komast, og getur nýst mönnum til ýmissa hluta, þar á meðal að leita að þráðlausum fjarskiptasendingum, nema þær og stöðvast við þær. Sama er með ýmiss konar tæki sem geta verið notuð með fullkomlega löglegum hætti til ýmiss konar annarra fjarskipta. Þau geta jafnframt nýst eða óvart hlerað farsímann. Ekki verður í fljótu bragði séð að unnt væri að banna mönnum að eiga slík tæki þegar það er sannanlegt að þau eru til margra hluta nytsamleg og menn geta haft þau undir höndum og verið að nota þau í fullkomlega löglegu skyni þó að þau hafi þennan tæknilega möguleika, að geta jafnframt leitað uppi eða hlerað þráðlaus fjarskipti, m.a. farsímans. Þess vegna hygg ég að ekki sé auðvelt mál að koma því við að banna innflutning og notkun á þessum tækjum og hér verði frekar að treysta á að menn noti þau ekki í óheiðarlegum tilgangi. Og jafnframt að vona að sem fyrst verði tæknilega mögulegt að loka þessum fjarskiptum þannig að þau séu algerlega óaðgengileg fyrir óviðkomandi.