Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson):
Virðulegi forseti. Til mín hefur verið beint fsp. á þessa leið: Hefur verið unnið að því að nýtt álver rísi á Grundartanga?
Ég ætla að fara dálítið aftur í tímann og segja frá því að á árunum 1981 og 1982 gerði staðarvalsnefnd iðnrn. athuganir á tíu stöðum þar sem hugsanlegt þótti að reisa álver. Meðal þessara staða var Grundartangi. Í áfangaskýrslu þessarar nefndar frá því í júlí 1982 sagði m.a., með leyfi hæstv. forseta:
,,Vinnumarkaður við Grundartanga er við lágmark þess sem æskilegt getur talist fyrir álver. Einnig er svo stutt síðan járnblendiverksmiðjan tók til starfa að áhrif hennar á atvinnulíf á Akranessvæðinu hafa vart komið öll fram enn. Ýmis önnur áþreifanleg landfræðileg atriði mæla hins vegar með þessum stað og stuðla að fjárhagslegri hagkvæmni verksmiðju sem þar yrði reist. Niðurstaða nefndarinnar er þó sú að Grundartangi kæmi naumast til greina fyrir álver að þessu sinni, en það gæti hæglega breyst þegar fram líða stundir.``
Á grundvelli þessarar áfangaskýrslu var svo ákveðið að athuga nánar aðstæður vegna staðarvals fyrir álver á sex stöðum á landinu, en Grundartangi var ekki meðal þeirra, þ.e. eftir það sem kalla hefði mátt forval var Grundartangi ekki lengur inni í athuguninni.
Ég tel sjálfur að þær forsendur sem staðarvalsnefnd lagði helst til grundvallar sínu mati á aðstæðum fyrir álverið á Grundartanga fyrir átta árum eigi sumar varla við lengur og Grundartangi, og reyndar fleiri staðir í Hvalfirði, séu meðal þeirra staða sem kæmu til greina sem staðir fyrir álver eða líkan rekstur í framtíðinni.
Ég vil láta þess getið að í þeim viðræðum sem fram hafa farið undanfarna mánuði við fulltrúa álfyrirtækjanna Granges og Hoogovens Aluminium um að reisa álver hér á landi hafa þeim m.a. verið kynntir þeir staðir sem til greina geta komið. Hvalfjörður/Grundartangi er einn þessara staða. Ég vil einnig taka það fram að forstjóri Hoogovens Aluminium og aðalfulltrúi hans í viðræðunum heimsóttu Íslenska járnblendifélagið þegar þeir komu til Íslands 22.--24. nóv. sl. og þeir áttu þess því kost að kynna sér aðstæður þar af eigin raun.
Ég vil líka nefna að fulltrúar fyrirtækisins Elkem Aluminium komu tvívegis hingað til lands í fyrra, m.a. til þess að kanna möguleika á að reisa hér álver. Ég býst við því að Grundartangi yrði mjög ofarlega á blaði hjá þeim vegna eignarhluta fyrirtækisins Elkem í Járnblendifélaginu og vegna hagræðis af aðstöðunni við Hvalfjörð.
Ég vil líka minna á að þær athuganir á aukinni álframleiðslu hér á landi sem hófust með sérstöku samkomulagi um mitt ár 1988 voru allar einskorðaðar við aukna álframleiðslu í Straumsvík skv. sjálfu samkomulaginu. Það er ljóst að ný skoðun aðila á staðsetningu kallar á viðbótarathuganir og hlýtur að taka nokkurn tíma. Ég vil reyndar ítreka það sem ég
hef áður sagt hér í Alþingi þegar ég svaraði fsp. um álver við Eyjafjörð frá hv. 2. þm. Norðurl. e. að mér er til efs að það sé þessu brýna hagsmunamáli allrar þjóðarinnar til framdráttar að við gerum af okkar hálfu afdráttarlausar kröfur um staðsetningu. Staðsetning iðjuvers eins og álvers er atriði sem samkomulag þarf að takast um milli Íslendinga og þeirra aðila sem ætla að reisa og reka álverið. Það er auðvitað skiljanlegt að mörg byggðarlög hafi áhuga á því að fá til sín stórfyrirtæki eins og álver. Álmálið er hins vegar miklu stærra en svo að við getum leyft okkur að hugsa um það þröngt með sérhagsmuni einstakra landshluta eða byggðarlaga að leiðarljósi. Það er, eins og ég hef áður sagt, landsmál en ekki landshlutamál.