Skúli Alexandersson:
Virðulegi forseti. Umræða eða fsp. svipaðar og sú fsp. sem hér er til umfjöllunar hafa verið nokkuð tíðar á hv. Alþingi á undanförnum árum, þ.e. frá því 1983 að það varð sérstakur fjörkippur í undirbúningi að uppbyggingu álvers á Íslandi. Við höfum haft næstum daglegar fréttir af því að verið væri að undirbúa byggingu álvers í sambandi við þetta eða hitt stórfyrirtækið, ár frá ári allan þennan tíma. Í tíð núv. ríkisstjórnar koma fréttir af þessu viku eftir viku og mánuð eftir mánuð. Nefndir eru ýmsir aðilar til samstarfs. Öll þessi ár hafa hv. þm. komið og spurt: Er ekki von til þess að þetta álver sem verið er að tala um verði byggt við Eyjafjörð eða við Grundartanga? Svarið hefur verið á svipaðan máta ár frá ári: Ja, við munum láta þá sem vilja byggja álver fyrir okkur ráða því hvar það á að vera. En enn er staðan sú að ekkert liggur fyrir hvort á að byggja álver eða ekki. Og í flestum tilfellum munu nú hlutirnir vera á þann veg að undirbúningur að byggingu álvers, t.d. vistfræðilega og hagfræðilega, er mjög skammt á veg kominn, meira að segja við Straumsvík. Könnun á því hvaða áhrif bygging álvers hefði á Grundartanga liggur ekki fyrir.
Ástandið á Akranesi er þannig að núna eru líkast til yfir 100 konur á atvinnuleysisskrá. Kannski er það að sumu leyti afleiðing þess að við Akranes er stórfyrirtæki eins og járnblendiverksmiðjan. Það þarf að taka ýmislegt til greina þegar verið er að planleggja hvort á að byggja álver þarna eða þarna. Og kannski fyrst af öllu, áður en hv. þm. fara að slást fyrir sitt kjördæmi hvar þetta eða hitt álverið kemur, að einhver von sé til þess að það verði byggt álver. Jafnvel þó að hæstv. iðnrh. hafi mikla von um að það verði gert í hans ráðherratíð, þá getur farið eins og í ráðherratíðum fyrrv. hæstv. iðnrh. Friðriks Sophussonar, Alberts Guðmundssonar og Sverris Hermannssonar, að ekkert verði úr álversbyggingu eða vonum þeirra um að svo verði.