Frsm. félmn. (Hjörleifur Guttormsson):
Virðulegur forseti. Félmn. Sþ. hefur fjallað um þetta mál og er álit hennar að finna á þskj. 565. Það er svohljóðandi:
,,Nefndin hefur fjallað um tillöguna og fékk á sinn fund Gylfa Kristinsson og Margréti Margeirsdóttur, deildarstjóra í félagsmálaráðuneytinu.
Nefndin mælir með samþykkt tillögunnar.
Kristinn Pétursson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.``
Undir þetta rita nefndarmenn í félmn. nema sá sem fjarverandi var.