Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson):
Virðulegi forseti. Ég vil leyfa mér að þakka hv. þm. Kvennalistans, Samtökum um Kvennalista, fyrir flutning á þessari tillögu um könnun á ofbeldi í myndmiðlum og ég er sammála flm. um það að það er nauðsynlegt að svona könnun fari fram. Ég bendi á það að könnun af þessu tagi, ef hún á að vinnast með skikkanlegum hætti, kostar talsvert af peningum. Ég er ekki að nefna það til þess að draga kjarkinn úr flm. heldur til að benda á að það gæti verið heppilegt að jafnframt því sem tillaga af þessu tagi kæmi til meðferðar í þinginu yrði á því máli sérstaklega tekið og bent á það hvaða fjármuna þyrfti að afla í þessu skyni til þess að ljóst sé fyrir löggjafann að hann verður um leið að ákveða fjárveitingar til þess að standa undir a.m.k. einhverjum hluta af þeim kostnaði sem hér um ræðir þó að hann mætti að einhverju leyti leggja á aðra.
Um málið ætlaði ég að segja það að í fyrsta lagi er ég alveg sammála hv. þm. um að þessi könnun á að fara fram. Þessi könnun á að fara fram til þess að vekja umræðu. Og þessi könnun á að fara fram til þess að unnt sé að ná sæmilegri samstöðu um það hvar á að draga markalínur því að það er flókið mál. Markalínur er ekki hægt að draga öðruvísi en um það sé tiltölulega víðtæk samstaða og allmargir geri sér grein fyrir því á hvaða forsendum þær markalínur byggjast.
Í öðru lagi vil ég tala hér í þessu samhengi aðeins um málefni Kvikmyndaeftirlitsins og segja: Þar hefur verið unnið mjög mikilvægt starf, mjög dýrmætt starf. Kvikmyndaeftirlitið starfar á grundvelli laga, m.a. laganna frá 1983 sem hv. þm. nefndi. Það er svo sérkennilegt að um leið og Alþingi samþykkir lög 1983 og þau eru í gildi æ síðan og hafa verið framlengd tvisvar eða þrisvar sinnum, 1987 og 1988 ef ég man rétt, 1989, um leið og það liggur fyrir, þá hefur aldrei fyrr en á árinu 1990 verið gert ráð fyrir
fjárveitingum til Kvikmyndaeftirlits ríkisins á fjárlögum íslenska ríkisins. Hér hefur verið um að ræða stofnun sem hefur átt að ganga sjálfala eða ég veit ekki hvernig til þess að sinna þessu mikilvæga verkefni.
Það er mjög alvarlegt umhugsunarefni fyrir löggjafann og fjárveitingavaldið í senn að það skuli gerast að hlutirnir gangi sisvona fyrir sig í um það bil hálfan áratug eða rúmlega hálfan áratug. Ég hygg að það sé sérstaklega mikilvægt umhugsunarefni með hliðsjón af því að hér er um að ræða mjög mikilvæga starfsemi þar sem er Kvikmyndaeftirlitið.
Ég veit ekki hvort menn átta sig almennt á því hvaða starfsemi þarna fer fram. Hún er mjög víðtæk og snertir allar myndir sem koma í kvikmyndahúsum og hún snertir öll myndbönd líka nú orðið. Eftir að myndböndin héldu innreið sína, þá hefur starfsemi Kvikmyndaeftirlitsins auðvitað margfaldast. Það hefur náð árangri með ágætri samvinnu við þá sem leigja út myndbönd. Ég tel að það sé mjög mikilvægt að Kvikmyndaeftirlitið geti haldið áfram virkri starfsemi.
Á fjárlögum ársins 1990 er 1 millj. kr. til Kvikmyndaeftirlits ríkisins. Af þeim ástæðum hef ég hækkað mjög verulega öll skoðunargjöld, bæði kvikmyndahúsa og myndbandaleiga, hækkaði þau núna um áramótin auk þess sem ég ákvað að lækka laun forstöðumanns Kvikmyndaeftirlits ríkisins um helming til þess að halda mig innan ramma fjárlaga og jafnframt að takmarka starfsemi skoðunarmanna nokkuð frá því sem verið hafði, einkum til þess að þeir gætu haft samráð um mál sem þeir þurfa að fjalla um á fundum en fjárveitingarnar leyfðu því miður ekki meira.
Jafnframt er ljóst að Kvikmyndaeftirlit ríkisins hefur verið kallað til í seinni tíð til þess að fara yfir nýtt verkefni sem eru svokallaðir tölvuleikir sem ganga kaupum og sölum á milli manna og er satt að segja vonlítið eða vonlaust að hafa nákvæmt eftirlit með. Ég hygg að markalínan milli eðlilegs kvikmyndaeftirlits til verndar börnum og ungmennum og ritskoðunar verði að vera alveg skýr og ég hygg að enginn sé tilbúinn til þess að ganga svo langt í þessu efni að þetta eftirlit, sem byggist á siðrænum forsendum, gagnvart börnum og ungmennum sérstaklega, gangi út í öfgar. Þetta eftirlit má auðvitað aldrei taka á sig mynd ritskoðunar af neinu tagi. Það er mikilvægt grundvallaratriði.
Ég vil í annan stað, virðulegi forseti, taka undir þá grundvallarhugsun sem er á bak við þessa tillögu og hv. 6. þm. Reykv. lýsti í ræðu sinni, þá sömu hugsun og við komum hér inn á fyrir nokkrum dögum þegar við ræddum um málræktarskýrsluna, þ.e. að við vildum búa hér til þjóðfélag sem væri gott við börn. Hv. þm. rakti tölur úr könnun landlæknis um þessi efni þar sem fram kemur að mjög stór hluti barna er á eigin vegum utan skólatíma, meginhluta dagsins. Þetta leiðir hugann að því grundvallaratriði að við erum með svo bágborið skólakerfi hér á Íslandi og höfum verið það um langt skeið að yngstu börnin fá mjög stuttan tíma í skólunum. Það liggur fyrir að það hlýtur að vera forgangsverkefni, algjört forgangsverkefni stjórnvalda og fjárveitingavaldsins að standa þannig að málum að yngstu börnin geti verið lengur í skólunum, ekki einungis til þess að sæta þar stundaskrárbundinni, hefðbundinni kennslu heldur
til þess að geta lært að lifa í leik líka með margvíslegum hætti. Markmiðið hlýtur að vera það að við eignumst samfelldan skóladag og 35 stunda skólatíma á viku fyrir öll börn, einnig þau yngstu. Kostnaðurinn við það til viðbótar við það sem er í fjárlögum ársins 1990 er 500 millj. kr. Kostnaðurinnn við grunnskólakerfið alls er um 4,5 milljarðar. 500 millj. kr. eru litlir peningar í þessu samhengi vegna þess að þetta fólk er framtíðin og það er að skemmast á götunum.
Ég hitti í gærmorgun tvo skólastjóra sem sögðu mér frá því að þeir væru nú að fá inn í skólana hjá sér í Reykjavík fyrsta árganginn sem í rauninni hefur alist upp við stöðuga myndmiðlun sjónvarps og myndbanda frá upphafi, frá því að þau fóru að tala eða skilja. Þeir sögðu mér frá því að í skólaumdæmi
Reykjavíkur væru 50--60 börn sem ættu við þannig löguð hegðunarvandamál að stríða að þessir skólastjórar höfðu aldrei kynnst neinu líku. Það væri mjög erfitt að ná sambandi við þessi börn. Þau hefðu bersýnilega alist upp á eigin vegum eða fyrir framan sjónvarps- og myndbandstæki. Þetta vekur okkur til umhugsunar um það grundvallaratriði sem ég nefni hér og tek undir með hv. 6. þm. Reykv. að er aðalatriðið. Það er í raun og veru eitt af stærstu málum þjóðarinnar, að mínu mati, að það takist að mynda þjóðarsamstöðu um að hafa hér í landinu grunnskóla og leikskóla sem kemur til móts við þann veruleika að þetta sama þjóðfélag heimtar það af foreldrum að báðir vinni utan heimilis allan daginn og hafi þess vegna ekki aðstöðu til að sinna börnum sínum eða tala við þau eða leika við þau.
Ef við gætum náð um það þjóðarsamstöðu, þennan skilning, þá dregur úr þeim vandamálum sem hv. þm. Guðrún Agnarsdóttir var að rekja hér áðan, enda þótt að sjálfsögðu sé nauðsynlegt að sú könnun fari fram sem hún gerði tillögu um.