Flm. (Ásgeir Hannes Eiríksson):
Virðulegi forseti. Ég fyrirgef hæstv. fjmrh. strax að hann skuli ekki vera hér í salnum. Það er mér í sjálfu sér ekkert trúaratriði hvort hann hlustar á mitt mál eða ekki. En ég skil það hins vegar mætavel að það skuli engir veitingamenn sitja á áhorfendapöllum því þeim veitir ekki af því að vinna ef þeir ætla sér að halda rekstri sínum gangandi til vors.
Það er kannski tímanna tákn að þegar þessi þáltill. er flutt hér í þingsölum skuli vera matartími og þingheimur allur meira og minna að snæða í opinberu ríkismötuneyti hér neðar í húsinu. Og sennilega er þetta umræðuefnið í hnotskurn. Þetta er kjarni málsins. Ég sé ekki þörfina á því að ríkissjóður sé að gefa fólki að borða eða greiða verulega niður máltíðir til starfsfólks eða annarra. Ef það er mat ríkisins að fólk eigi að fá frían eða niðurgreiddan mat, þá finns mér eðlilegt að sú matarveisla fari fram á veitingastöðum landsins þar sem hægt er að koma því auðveldlega við. Ég sé t.d. ekkert því til fyrirstöðu að þingheimur labbi út á Hótel Borg til þess að fá sér að borða eða Hressingarskálann eða út á önnur veitingahús sem eru hér í miðborginni. Ég sé ekkert því til fyrirstöðu.
Einkarekstur og ríkisrekstur eru þau tvö öfl sem við verðum að fara að læra að skilja á milli í þjóðfélaginu. Hvað ríkið á að gera og hvað einstaklingar eiga að gera. Að mínu viti eiga einstaklingar að sjá um veitingareksturinn og ríkið á þar hvergi nærri að koma.
Það er þungt fyrir fæti í þjóðfélaginu í dag. Það þarf víst ekki að taka það fram eina ferðina enn. Fjöldi fyrirtækja er að loka. Fjöldi fyrirtækja í veitingarekstri skiptir um eigendur. Maður verður ekki eins var við
eigendaskiptin því þau fara oft fram í kyrrþey. Eigandinn sem lætur fyrirtæki af hendi er yfirleitt með skuldabagga, jafnvel gjaldþrota og með brostnar vonir. Veitingarekstrinum í landinu veitir ekkert af þeirri veitingasölu sem hér fer fram því að á sama tíma er hann skattlagður. Veitingamenn eru ekki bara innheimtumenn ríkissjóðs á matarskatta heldur borga þeir öll önnur gjöld og skatta og axla þær skyldur sem á atvinnurekstur eru lagðar hér í þjóðfélaginu. Á meðan alþingismenn sjá varla aðrar tekjulindir fyrir ríkissjóð en skattlagningu verður a.m.k. að gefa fólkinu sem er skattlagt tækifæri til þess að vinna fyrir sköttunum sínum. Veitingahúsin fái að selja mat, fái alla þá matarsölu sem um er að ræða til þess að geta goldið keisaranum það sem keisararans er. Það er ekki sanngjarnt að ríkið bæði leggi skatta á veitingarekstur og standi síðan í umfangsmiklum veitingarekstri sjálft. Það gengur einfaldlega ekki upp. Fólkið getur aldrei keppt við ríkið því að ríkið lýtur öðrum lögmálum. Það er alveg gjörsamlega vonlaust að þar verði nokkurn tímann jafntefli. Einstaklingurinn hlýtur alltaf að láta í minni pokann þegar hann keppir við ríkið.
Mötuneyti Alþingis og mörg önnur mötuneyti hér í miðborginni eru það nálægt alhliða matsöluhúsum að
það er auðvelt verk að láta starfsfólkið borða á matsöluhúsunum. Til þess að auðvelda það í framkvæmd væri hægt að taka upp matarmiða, svipaða og alþm. eru með hér í opinberu mötuneyti niðri á jarðhæð, sem starfsmenn gætu síðan framvísað í þeim veitingahúsum sem vildu vinna með ríkinu á þennan hátt. Það sem vinnst fyrir starfsmanninn er fyrst og fremst það að hann fær úr fleiri réttum að velja. Hann getur ef hann vill safnað sínum miðum saman, komið með bita að heiman og notað miðana til þess að gera fjölskyldunni dagamun um helgar. Ekki þarf að tíunda hvað vinnst fyrir veitingareksturinn. Þetta mundi hleypa nýju blóði í allt veitingalíf. Þetta mundi vonandi fækka gjaldþrotum, draga úr því atvinnuleysi sem er tilfinnanlega farið að segja til sín í greininni. Þetta mundi gera þjóðfélagið miklu betur í stakk búið til að taka á móti erlendum ferðamönnum vegna þess að hver einasta króna sem með þessu móti fer í gegnum veitingareksturinn auðveldar veitingamönnum að fylgjast með kröfum tímans og búa staði sína betur undir að þjóna fólki.
Hvað vinnst síðan hjá ríkinu með þessu móti? Kostnaður við að gefa fólki að borða í ríkismötuneyti og kostnaður við að afhenda því matarmiða ætti fljótt á litið að vera sá sami, en það er trú mín að það sé miklu, miklu ódýrara fyrir ríkið að láta fólkið borða á veitingastöðunum. Í fyrsta lagi yrði það ódýrara vegna þess að mötuneytin taka mikið pláss í húsum ríkisstofnana. Oft er þetta verðmesta plássið í húsunum. Þá mundi losna pláss í stofnunum og fyrirtækjum sem mundi fresta a.m.k. í nokkur ár að stofnanirnar þyrftu að flytja eða byggja yfir sig nýtt húsnæði.
Í öðru lagi segir mér svo hugur um að kostnaðurinn við rekstur þessara mötuneyta sé mun meiri en nemur verði á veitingum á almennum markaðiog yrði því verulegur sparnaður fyrir ríkið. Víða er reglan sú að starfsmenn greiða sem nemur hráefninu en ríkið sér um allan annan kostnað við rekstur mötuneytisins.
Sömu sögu er að segja um veislusali ríkisins sem eru víða um borgina þar sem ríkið, ráðherrar, þingmenn og aðrir hafa aðgang til þess að halda fundi,
skemmtanir og önnur mannamót. Það er í rauninni engin ástæða til þess að halda úti veisluhúsinu í rúgbrauðsgerðinni í Borgartúninu til þess eins að þjóna undir ríkið. Ég hef aldrei fundið neitt inni í Borgartúni sem veitingamenn á frjálsum markaði geta ekki boðið upp á sjálfir. Ég hef aldrei séð það og fundið neina þjónustu þar inni sem fjöldinn allur af veitingamönnum getur ekki boðið upp á. Því finnst mér eðlilegt og sjálfsagt að allar opinberar veitingar séu á hinum frjálsa markaði en ekki séu rekin sérstök veisluhús fyrir ríkið.
Síðasta dæmið um óeðlilega viðskiptahætti er þegar Reykjavíkurborg kaupir veitingahúsið Broadway til þess að gera að unglingaskemmtistað, félagsheimili í Breiðholtshverfum. Broadway er þó í dag rekið eins og hvert annað veitingahús áfram. Þar eru um helgar
árshátíðir og aðrar skemmtanir sem einstaklingar geta haldið. Húsið er leigt út til allra þeirra sem vilja taka það á leigu. Broadway er komið í bullandi samkeppni við aðra veitingamenn og er húsið þó í eigu Reykjavíkurborgar sem reyndar er ekki beinlínis ríkisfyrirtæki í þeim skilningi en samkeppnin er áfram óheiðarleg, vegna þess að einstaklingurinn getur ekkert frekar keppt við Reykjavíkurborg en hann getur keppt við ríkið.
Fari menn inn á þessar brautir með ríkismötuneytin er auðvelt að búa svo um hnútana að það starfsfólk mötuneytanna fái vinnu í veitingahúsum landsins við sitt hæfi í gegnum samtök veitingamanna eða þá annars staðar í ríkiskerfinu ef það kýs frekar. Á sama hátt á að vera auðvelt að losna við öll þau tæki og áhöld sem ríkið á, selja þau einstaklingum á markaðsverði þannig að ríkissjóður á ekki að þurfa að sitja uppi með eitt eða neitt sem hann getur ekki notað.
Virðulegi forseti. Ég vil ljúka máli mínu með því að minna aftur á það að við verðum að gera upp við okkur og læra að skilja muninn á einkarekstri og ríkisrekstri.
Ég óska eftir að málinu verði vísað til síðari umr. og hv. félmn.