Flm. (Geir H. Haarde):
Herra forseti. Ég mæli fyrir þáltill. sem er svohljóðandi, með leyfi forseta:
,,Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að heimila Mannvirkjasjóði Atlantshafsbandalagsins án tafar að hefja forkönnun á mögulegri staðsetningu og gerð alþjóðlegs varaflugvallar á Íslandi.``
Þetta mál hefur margoft borið á góma á hv. Alþingi á undanförnum missirum. Ég vil lítillega rifja upp hvað hefur komið fram í umræðum um þetta mál til þessa. Fyrir rúmlega ári síðan bar sá sem hér stendur fram fyrirspurn um málið til utanrrh. og óskaði skriflegs svars sem útbýtt var hinn 8. des. 1988 hér á hinu háa Alþingi. Í svari ráðherra sagði m.a., með leyfi forseta:
,,Þetta mál er nú til vandlegrar athugunar í utanrrn. og liggur næst fyrir að taka þarf ákvörðun um hvort heimiluð verði forkönnun í samvinnu við Atlantshafsbandalagið með svipuðum hætti og dönsk stjórnvöld hafa heimilað að því er Grænland varðar. Sú ákvörðun verður tekin þegar niðurstöður þessara athugana liggja fyrir.``
Þetta var sem sagt hinn 8. des. 1988, fyrir rúmu ári síðan.
Tæplega ári síðar, nú hinn 9. nóv. sl. svarar utanrrh. enn fyrirspurn hér á Alþingi um þetta mál og segir m.a. svo, með leyfi forseta:
,,Forræði þessa máls er í höndum utanrrh. eins og upplýst hefur verið. Um það segi ég það eitt á þessu stigi málsins að ég mun taka mínar ákvarðanir að athuguðu máli, könnun á öllum staðreyndum og málsatvikum þegar ég tel það tímabært.``
Hins vegar kom ekkert fram í máli ráðherra um það, og hefur ekki komið fram á öðrum vettvangi mér vitanlega, hvað líði þeirri athugun sem hann gat um í svari sínu hér á hinu háa Alþingi 8. des. 1988 og sagði að þá væri hafin. Þetta mál var rætt mjög ítarlega utan dagskrár hinn 20. febr. í fyrra að frumkvæði hv. 1. þm. Reykn. Matthíasar Á. Mathiesen. Þá flutti utanrrh. ítarlega ræðu um málið sem verður að teljast mjög gott framlag til umræðu um þetta mál því að í þeirri ræðu voru miklar upplýsingar. M.a. opinberaði ráðherra í þessari ræðu bréf sem honum barst fyrir ári síðan frá framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins varðandi þetta mannvirki. Í því kemur m.a. fram að flugvöllur sá sem tillaga liggi fyrir um muni á engan hátt gegna hernaðarhlutverki á friðartímum. Flugvöllurinn yrði mannaður og starfræktur af óbreyttum borgurum og ekki talinn herflugvöllur nema á stríðstímum.
Í þessari umræðu hinn 20. febr. lét ráðherra þess einnig getið að hann teldi sér ekki aðeins heimilt að taka afstöðu til óska bandalagsins um að framkvæma forkönnun á hugsanlegum möguleikum á staðsetningu varaflugvallar hér á landi um leið og sama könnun fer fram á öðrum stöðum, þ.e. á Grænlandi og í Færeyjum, heldur væri sér skylt að taka afstöðu til þessa máls og tilkynna Atlantshafsbandalaginu svar sitt.
Síðan er liðið rúmlega ár, virðulegi forseti, en í þinglok á síðasta þingi fluttum við flm. þá tillögu sem nú er á ný komin til umræðu um að Alþingi taki af skarið í þessu máli og ákveði sjálft að heimila þessa forkönnun. Tillagan varð ekki útrædd á síðasta þingi. Hún hefur þess vegna verið endurflutt nú á þessu þingi og er til umræðu hér í dag.
Það hefur orðið mikill dráttur á því að einföld ákvörðun væri tekin í þessu máli, ákvörðun um það atriði eitt að heimila margumrædda forkönnun. Fram hefur komið ítrekað, bæði hjá hæstv. utanrrh. og öðrum aðilum, að forkönnun sem þessi, ,,feasibility study`` eins og hún heitir á ensku, sé án allra skuldbindinga um framhald málsins. Hvers vegna má þá ekki taka slíka ákvörðun og vinna þetta mál aðeins lengra áður en kemur að endanlegri ákvörðun um hvort í slíka framkvæmd yrði ráðist? En það hlyti auðvitað að vegast og metast þegar þar að kæmi, m.a. í ljósi breyttra aðstæðna í umheiminum. M.a. í ljósi hugsanlegs endurmats Atlantshafsbandalagsins á sinni varnarstefnu, í ljósi þess hvort bandalagið teldi þörf fyrir þennan varaflugvöll að breyttum aðstæðum í Evrópu. Þar kemur auðvitað einnig til sögunnar sjálfstætt mat Íslendinga á því hvort þeir telja það í þágu varna landsins og þess samstarfs sem Íslendingar eiga við aðrar þjóðir um varnir að reisa slíkt mannvirki hér á landi. En auðvitað gerist ekkert í máli sem þessu nema ákvarðanir séu teknar.
Utanrrh. lýsti því yfir í blöðum í haust, m.a. í DV hinn 20. nóv., að hann ætlaði sér að heimila margumrædda forkönnun. Hann svarar spurningu blaðamanns DV skýrt og skorinort, en sá spyr, með leyfi forseta: ,,Munt þú eftir sem áður standa fast á ákvörðun þinni um að láta forkönnun fara fram?`` Og svarið er einfaldlega ,,já`` frá hæstv. ráðherra. Þannig að ráðherra hefur hvað eftir annað sagst mundu heimila margumrædda forkönnun, en hann hefur bara ekki gert það enn þá. Tíminn hleypur auðvitað frá okkur í þessu efni. Það hefur tekið ráðherrann lengri tíma að taka þessa einföldu ákvörðun um að heimila forkönnun en það tók að gera alla forkönnunina á Grænlandi.
Í ummælum ráðherra, sem ég vitnaði til áðan, í umræðunum 20. febr. í fyrra, segir hann að forkönnunin ætti helst að fara fram um leið og sambærileg könnun vegna Grænlands. Hann er þegar orðinn allt að því ári á eftir. Könnunin á
Grænlandi mun hafa hafist um þetta leyti í fyrra, e.t.v. nokkru síðar, og lauk í ágústmánuði að því er fram kom í máli ráðherra hér fyrr í haust.
Hvað veldur því að þessi ákvörðun er ekki tekin þrátt fyrir að ráðherra gefi hvað eftir annað skýrar og ótvíræðar yfirlýsingar um að hann ætli að gera þetta? Hvað veldur þessum töfum á lítilli, óskuldbindandi ákvörðun eins og þessari? Ég hygg að þeir sem fylgjast hér með stjórnmálum geri sér grein fyrir því hvert svarið er við þessu. Svarið við þessu er auðvitað það að búið er að afhenda, að mér virðist, einum stjórnarflokkanna hálfgert neitunarvald um þetta mál þó að þessi málaflokkur heyri ekki undir þann
stjórnmálaflokk. Ég er hér að tala um Alþb., virðulegi forseti.
Í ályktun landsfundar Alþb. um utanríkismál sem birt er í Þjóðviljanum 29. nóv. sl. segir svo, með leyfi forseta: ,,Alþýðubandalagið mun ekki sitja undir því í ríkisstjórn að neinn undirbúningur að hernaðarframkvæmdum fari fram, svo sem forkönnun að nýjum herflugvelli á Íslandi, hvaða nafni sem hann nefnist.``
Ætli það sé ekki þessi hótun, sem hangir yfir hausamótunum á hæstv. utanrrh. og öðrum ráðherrum í ríkisstjórninni, sem veldur því að ekki er tekin jafneinföld ákvörðun og hér um ræðir? Skyldi það ekki vera skýringin? Hvernig væri að hætta tvískinnungnum í þessu máli og segja það hreint út að miðað við aðstæður í ríkisstjórn Íslands treysti viðkomandi ráðherra sér ekki til að taka þessa ákvörðun í andstöðu við sína samstarfsmenn? Það held ég að menn mundu út af fyrir sig skilja. En hæstv. utanrrh. heldur því fram að hann muni heimila margumrædda forkönnun. Flm. þessarar tillögu eru orðnir leiðir á að bíða eftir þessari ákvörðun. Þeir hafa þess vegna flutt þessa þáltill. um að Alþingi sjálft taki af skarið og feli ráðherranum og ríkisstjórninni að taka þessa ákvörðun. Það mun þá koma í ljós í atkvæðagreiðslu á Alþingi hvort meiri hluti er fyrir því að taka þá óskuldbindandi ákvörðun að hefja þessa forkönnun. Ég hef ástæðu til að ætla að það sé meiri hluti fyrir því á Alþingi að sú ákvörðun verði tekin. Mér finnst mest um vert, úr því sem komið er, að úr því fáist einfaldlega skorið í atkvæðagreiðslu hér í sameinuðu Alþingi hvort sá meiri hluti er fyrir hendi eða ekki.
Hæstv. utanrrh. lætur hafa eftir sér í Alþýðublaðinu í gær að hann sjái enga ástæðu til þess að hafa á móti því að þingið lýsi vilja sínum með þeim hætti sem þessi þáltill. gerir ráð fyrir. Ég vil taka það fram að hér er ekki um það að ræða í þessari tillögu að Alþingi lýsi einvörðungu vilja sínum. Þessi tillaga gerir ráð fyrir því að Alþingi feli framkvæmdarvaldinu að taka ákvörðun um að heimila þessa forkönnun. Þannig að tillagan gengur lengra en ráðherrann gefur í skyn í viðtali sínu í Alþýðublaðinu í gær. En hann bætir við, með leyfi forseta, og ég vil vekja athygli á því í þessari umræðu:
,,Sumir hafa haldið fram þeim falsrökum að heimild fyrir þessari forkönnun brjóti í bága við stefnuyfirlýsingu núv. ríkisstjórnar. Það er einfaldlega ekki rétt. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er ákvæði sem segir að á stjórnartímanum skuli ekki efnt til meiri háttar nýrra hernaðarframkvæmda. Forkönnun vegna varaflugvallar er algerlega aðskilin frá því að byrja framkvæmdir. Bæði er að forkönnunin sjálf tekur talsverðan tíma og þar við bætist að skv. framkvæmdaáætlun Mannvirkjasjóðs Atlantshafsbandalagsins eru núverandi áform þau að hefja framkvæmdir við byggingu varaflugvallar í fyrsta lagi árið 1994, þ.e. í fyrsta lagi þremur árum eftir að kjörtímabili þessarar ríkisstjórnar er lokið.``
Síðan koma nokkrar útskýringar á þeim töfum sem
orðið hafa í þessu máli. Það er greinilegt að hæstv. ráðherra er að reyna að skapa sér stöðu til þess að komast hjá því að taka þessa ákvörðun í ljósi hinna pólitísku aðstæðna í ríkisstjórninni og ber við að endurskoðun sé yfirvofandi á varnarstefnu Atlantshafsbandalagsins. Það er vissulega rétt og nauðsynlegt, en er eigi að síður annað mál að því leyti til að forkönnun sem slík hefur engin áhrif varðandi mat á því síðar meir hvort hefja beri framkvæmdir eða heimila þær af hálfu íslenskra stjórnvalda. Það er að því leyti til sjálfstætt mál. Ég tek undir það sem fram kemur í viðtalinu við ráðherrann í Alþýðublaðinu í gær að það er sjálfsagt og eðlilegt í ljósi aðstæðna í Evrópu að kanna hvort bandalagið hefur sömu þörf fyrir þennan varaflugvöll og áður var gert ráð fyrir.
Ég leyfi mér hins vegar að lesa út úr þessu viðtali í Alþýðublaðinu í gær að það sé enn ásetningur ráðherrans að heimila þessa forkönnun þó að hann vilji draga það eitthvað til viðbótar þeim töfum sem þegar hafa orðið. Ég leyfi mér að lesa það út úr þessum ummælum sem ég sé ekki ástæðu til að lesa öll. Ég vænti þess því að hæstv. utanrrh. greiði þeirri tillögu atkvæði sem hér er til meðferðar þegar utanrmn. hefur lokið sinni umfjöllun um hana. Ég tel að það séu engar efnislegar forsendur fyrir því að bíða með þessa ákvörðun lengur. Þessar tafir eru einvörðungu til komnar vegna pólitískra aðstæðna og vegna þess að Alþb. hefur uppi hótanir um stjórnarslit vegna þessa máls. En Alþb. hefur nú látið ýmislegt yfir sig ganga eins og allir vita og ég sé enga ástæðu til að halda annað en að það muni líka sætta sig við ákvörðun um óskuldbindandi forkönnun eins og hér er verið að tala um þó að annað sé látið
í veðri vaka.
Ég legg sem sagt áherslu á það, virðulegi forseti, að Alþingi taki nú af skarið í málinu, að hæstv. utanrmn. fjalli vel og ítarlega um málið og afgreiði það síðan til baka til síðari umr. hér í Sþ. þannig að atkvæði megi falla um málið.
Ég skal síðan ekki lengja þessar umræður, virðulegi forseti. Ég vísa til þess að í þingskjölum eru nú þegar mjög miklar upplýsingar fyrirliggjandi um þetta mál, m.a. í þeim umræðum sem ég gat um frá 20. febr. í fyrra og frá 9. nóv. sl. Þar hafa menn þær upplýsingar sem þeir þurfa til þess að átta sig á málinu.
Ég ætla síðan ekki lengja þetta frekar, virðulegi forseti, en vil leyfa mér að leggja til að að lokinni fyrri umr. verði máli þessu vísað til síðari umr. og hv. utanrmn.