Halldór Blöndal:
Hæstv. forseti. Það kemur ekki á óvart að hv. 6. þm. Norðurl. e. skuli vera andvígur því að forkönnun verði gerð á því hvar heppilegast muni vera að varaflugvöllur verði gerður hér á landi sem kostaður sé af Mannvirkjasjóði Atlantshafsbandalagsins. Fyrr í dag heyrðum við að hann var andvígur því að stóriðja rísi við Eyjafjörð og er óþarft að hafa fleiri orð um það.
Ég vil rifja upp að hinn 20. febr. á sl. ári flutti hæstv. utanrrh. ítarlega ræðu um varaflugvallarmálið í umræðum utan dagskrár þar sem hann lýsti vonbrigðum sínum yfir því að ekki hefði haldist það sama góða samkomulag milli samgrn. og utanrrn. um þetta mál og verið hefði í síðustu ríkisstjórn. Þegar flugmálaáætlun var til umræðu hér í deildinni, hæstv. forseti, óskaði ég eftir því að hæstv. utanrrh. yrði kallaður til umræðunnar svo hægt væri að ræða um þessi mál hér á þinginu þannig að báðir yrðu viðstaddir, hæstv. utanrrh. og hæstv. samgrh. En svo var litið á af hæstv. forseta að ósk mín væri ekki þingleg og þess vegna rétt að hafna henni. Nú ber þetta mál á góma hér í deildinni og hæstv. samgrh. sér ástæðu til að vera fjarverandi. Það liggur fyrir fsp. af minni hálfu um þetta mál sem væntanlega verður tekin fyrir í næstu viku. Vil ég biðja hæstv. forseta að gera ráðstafanir til þess að hæstv. samgrh. geti verið viðstaddur í fyrirspurnatíma þegar hæstv. utanrrh. svarar. Ég kysi heldur að fyrirspurnin drægist þá um eina viku eða svo ef það mætti verða til þess að hægt væri að stilla saman tíma þessara hæstv. ráðherra.
Í umræðunum hér hinn 20. febr. lagði hæstv. utanrrh. áherslu á þetta m.a. Hann sagði að ljóst væri að varaflugvöllur yrði fullkominn flugvöllur sem þjónað gæti millilandaflugi, bæði farþega- og vöruflutningaflugi. Slíkur flugvöllur gæti gerbreytt efnahagsþróun heils landsfjórðungs og yrði því hvati að nýskipan atvinnumála. Eins og þessi tilvitnun ber með sér gerir hæstv. utanrrh. sér grein fyrir mikilvægi málsins.
Hæstv. utanrrh. sagði jafnframt að flugvöllurinn mundi ekki gegna öðru hlutverki en að auka flugöryggi fyrir alla alþjóðlega flugumferð sem nú fer um Keflavíkurflugvöll og að líkur séu á að fari þar um í framtíðinni á íslenska flugumsjónarsvæðinu. Einnig þetta lýsir því að hann gerir sér grein fyrir mikilvægi þessa flugvallar. Utanrrh. hefur orð á því að þriðja spurningin sem til hans hafi verið beint við umræðurnar hafi verið efnislega á þá leið hvort utanrrh. hyggist leyfa þessa könnun og þá hvenær. Hann svarar svo, með leyfi hæstv. forseta:
,,Svarið við því er að ég mun kynna málið rækilega í ríkisstjórn og utan hennar. Að því loknu mun ég taka um það ákvörðun, en það liggur ekki á að taka þessa ákvörðun því við höfum til þess allgóðan tíma. En ef ég að lokinni mjög rækilegri umræðu um málið hef ekki sannfærst um hið gagnstæða hyggst ég heimila að könnunin fari fram.``
Og þá er spurningin: Hversu langan tíma taldi
hæstv. utanrrh. hinn 20. febr. 1989 að við Íslendingar hefðum til þess að gefa svar við því hvort forkönnun yrði leyfð? Hann svarar svo, með leyfi hæstv. forseta:
,,Virðulegi forseti. Að öðru leyti var beint til mín örfáum spurningum. Í fyrsta lagi var spurt: Stendur fjárveitingin sem varið er til þessarar forkönnunar út árið 1989 og verður henni þá lokið? Svarið er já. Verði þessari spurningu ekki svarað á yfirstandandi ári fellur þessi fjárheimild niður og væntanlega leiðir það til þess að þessi forkönnun fer þá fram annars staðar hvort sem það leiðir til þeirrar niðurstöðu að umrætt mannvirki verður byggt þar, en það er mat allra tæknimanna sem ég hef rætt við að það þyki miklum annmörkum háð, það komi ekki að sömu notum á íslenska flugumsjónarsvæðinu.``
Þannig stóðu málin fyrir einu ári. Nú geri ég ráð fyrir því að hæstv. utanrrh. hafi um það einhver svör að honum hafi tekist í viðræðum við Mannvirkjasjóð Atlantshafsbandalagsins að fá þá til að draga á langinn, lengja frestinn eitthvað fram eftir þessu ári. Ég er þess fullviss að hæstv. utanrrh. muni svara eitthvað á þá leið, en ekki er það trúverðugt. Það liggur auðvitað fyrir að innan hæstv. ríkisstjórnar er ósamkomulag um þetta mál. Þetta mál, eins og mörg önnur, dregst á langinn af þeim sökum. Ef hæstv. utanrrh. hefði viljað vera öruggur um stöðu sína hefði hann að sjálfsögðu gefið svar á sl. ári fyrir árslok 1989.
Ég skal ekki, hæstv. forseti, vera með getsakir um hvernig framhaldið verður. Eftir þeim upplýsingum sem ég hef haft um þetta mál er talið að málið hafi komist í mikla óvissu úr því að svar barst ekki a.m.k. fyrir janúarlok. Í öllu falli hlýtur hæstv. utanrrh. að velta því fyrir sér, úr því sem komið er, hvernig hann geti annars vegar haldið því fram að forræði málsins sé í sínum höndum en um leið dregið á langinn að gefa svarið þegar hann telur þýðingarmikið fyrir íslenskt flugumsjónarsvæði að varaflugvöllurinn komi hér á landi og þegar hann telur einnig að það yrði mikil lyftistöng fyrir efnahagsþróun heils landsfjórðungs og hvati að nýskipan atvinnumála ef þessi flugvöllur yrði lagður þar. Ég geri ráð fyrir því að ég og hæstv. utanrrh. séum sammála um að ekki veiti af því nú að reyna með öllum ráðum að beina
nýjum straumum inn í íslenskt atvinnulíf. Ég hygg að við séum báðir sammála um að ástæðulaus dráttur nái engri átt og ég hygg að við getum verið báðir sammála um það, ef hann væri nú í stjórnarandstöðu en ég væri stuðningsmaður ríkisstjórnar, að hann mundi þá standa í sömu sporum og ég nú og spyrja mjög beinna spurninga um það hvernig á því megi standa að hæstv. utanrrh. skuli láta hæstv. samgrh. hafa þau áhrif á sig að þetta mál fái ekki eðlilegan framgang. Miðað við fyrri ummæli hæstv. utanrrh. hefur þetta mál ekki eðlilegan framgang.
Hæstv. utanrrh. minnti mig á að hæstv. samgrh. væri úr sama kjördæmi og ég og það er alveg laukrétt. Bæði hæstv. samgrh. og hv. 6. þm. Norðurl. e. eru annarrar skoðunar en ég, bæði um þetta mál og eins um stóriðjumálin. Það er enginn vafi á því að
þau sjónarmið sem þessir þm. hafa haft uppi hafa haft þegar alvarlegar afleiðingar fyrir atvinnuþróun nyrðra og má vera að svo haldi áfram enn um hríð.