Hagstofuráðherra (Júlíus Sólnes):
Virðulegur forseti. Mér er ljúft að svara spurningum hv. 5. þm. Vesturl. til mín um hvaða álit ég og mínir flokksbræður höfum á þessu máli. Það hefur reyndar komið mjög skýrt fram áður en við höfum lýst því yfir í okkar hugmyndum og tillögum, m.a. í viðræðum sem við áttum í í sumar þegar við vorum að mynda þá ríkisstjórn sem nú situr, að við legðum á það áherslu að hraðað yrði undirbúningi og áætlunum um fullkominn varaflugvöll á Íslandi, gjarnan með staðsetningu á Norður- eða Austurlandi. Við teljum mjög mikilvægt að komið verði á annarri útflutningshöfn sem gæti nýtt sér beina flutninga í lofti með t.d. ferskan fisk á markað í Austurlöndum fjær. Við höfum í sjálfu sér ekki verið með neina fordóma eða neina fyrirvara um það með hvaða hætti slíkur flugvöllur skyldi byggður. Við leggjum fyrst og fremst áherslu á að það skapist sterk útflutningshöfn með slíkum flugvelli jafnframt því sem við gerum okkur grein fyrir því að mjög brýna nauðsyn ber til þess að hér sé fullkominn varaflugvöllur annar en Keflavíkurflugvöllur. En við höfum sem sagt ekki haft neinar hugmyndir uppi um það hvernig slíkur varaflugvöllur skyldi byggður og höfum heldur enga fordóma eða fyrirvara í þeim efnum.