Ingi Björn Albertsson:
Hæstv. forseti. Ég lagði hér eina spurningu fyrir hæstv. hagstofuráðherra og vil þakka honum fyrir hans ágæta svar, en hann var bara ekki að svara spurningu minni. Hann var að svara allt öðru máli sem ég vissi alveg svarið við. Ég vil því fá að endurtaka spurningu til hæstv. hagstofuráðherra en ég sé nú hér í gegnum gættina að hann er á leiðinni í salinn, og er kominn núna.
Mín spurning varðaði ástand í atvinnumálum þjóðarinnar og að hæstv. hagstofuráðherra hefur verið falið að móta nýja atvinnustefnu og skoða þróun þeirra mála. Ég var að spyrja hæstv. ráðherra út í þá hlið mála en ekki stefnu Borgfl. varðandi varaflugvelli yfirleitt, enda þekki ég hana ágætlega. Ég fór fram á það við hæstv. ráðherra að hann upplýsti það í sinni könnun og í sinni stefnumörkun hvort varaflugvallargerð, sem er gríðarlega stór og mikil framkvæmd, kostar tugi milljarða væntanlega og skaffar tilteknum fjölda, ég hygg 100--300 manns, atvinnu og þjóðfélaginu að sjálfsögðu ómældar tekjur, hvort þessi þáttur sé inni í þeirri stefnumörkun sem ráðherrann er að vinna að. Þetta er sú spurning sem ég lagði fyrir ráðherrann, hvort þessir liðir séu inni í þeirri framtíðarsýn sem hæstv. ráðherra er að vinna að. Við þessu óska ég eftir að fá svar.