Ásgeir Hannes Eiríksson:
    Virðulegi forseti. Það er engin spurning að ef íslensku þjóðinni stendur til boða að fá eitt stykki varaflugvöll, þá hljótum við að vinna að því að hér verði reistur varaflugvöllur. Í mínum huga er það engin spurning. Ef þetta er hermang, þá er ég hermangari. Ef þetta er hermang, þá er ég jafnvel stoltur hermangari eins og kollega minn frá Austfjörðum sagði áðan.
    Það er engum vafa undirorpið að bandarískur her er ekki hér til þess að vernda Íslendinga. Hann er hér sem hluti af varnarlínu Bandaríkjanna. Ísland er varðturn í Atlantshafi. Það er ekki til sá maður í Bandaríkjunum sem mundi halda því fram í dag að bandarískur her væri hér til þess að vernda okkur sérstaklega. Í besta falli njótum við góðs af verndinni ef til ófriðar dregur. Flugvöllur af því tagi sem talað er um gæti hins vegar aukið þá hugsanlegu vernd og í honum gæti verið nokkur vernd fyrir þessa þjóð. Þess vegna eigum við að sjálfsögðu ekki að slá hendinni á móti þessu tækifæri. Sama má segja um vegi. Vegir hljóta að vera hluti af vörnum. Veglaust varnarlið kemst ekki ferða sinna um landið. Það er lítið gagn að því. Svona má lengi telja. Það er eindregin skoðun mín að varaflugvöll eigum við að vinna að að fá, þó ekki væri nema til þess að lækka lendingargjöldin hjá Flying Tigers, þannig að sú merka þjónusta sem þeir hafa veitt hér á Íslandi falli ekki niður, heldur komi til með að halda áfram þannig að við getum komið vörum á erlenda markaði með flugvélum þeirra.