Tilhögun þingfunda
Fimmtudaginn 08. febrúar 1990


     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Forseti hyggst halda þessum fundi áfram til kl. fjögur a.m.k. Forseta er ljóst að hér er ofurlítið farið út fyrir venjulega skipan mála en eins og hv. þm. er kunnugt hafa hlaðist upp óræddar þingsályktunartillögur og verði því ekki harðlega mótmælt hyggst forseti reyna að koma til nefndar einu til tveimur málum í viðbót.