Flm. (Guðmundur G. Þórarinsson):
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir till. til þál. á þskj. 123, um byggingu fyrir Tækniskóla Íslands. Flm. þessarar tillögu auk mín eru hv. þm. Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, Árni Gunnarsson, Ingi Björn Albertsson, Ragnar Arnalds, Friðrik Sophusson og Sigríður Lillý Baldursdóttir. Tillagan hljóðar svo, með leyfi forseta:
,,Alþingi ályktar að fela menntmrh. að láta á árinu 1990 fara fram hugmyndasamkeppni um arkitektateikningar fyrir framtíðarbyggingu Tækniskóla Íslands á þeirri lóð sem hann hefur fengið fyrirheit um á Keldnaholti.``
Það er orðið nokkuð langt síðan Tækniskóli Íslands tók til starfa. Hann hóf störf haustið 1964 og á 20 ára afmæli skólans haustið 1984 barst honum fyrirheit frá ríkisstjórn um lóð undir framtíðarstarfsemi hans að Keldnaholti. Síðan hefur ekkert miðað í byggingarmálum skólans og það væri vel við hæfi í tilefni af 25 ára afmæli skólans að efna til hugmyndasamkeppni um teikningar að framtíðarbyggingu skólans á lóð hans á Keldnaholti.
Tækniskóli Íslands var stofnaður til að annast framhaldsmenntun iðnaðarmanna. Því er staðsetning hans í framtíðinni í nágrenni við rannsóknastofnanir iðnaðarins á Keldnaholti mjög ákjósanleg. Má hugsa sér að tækja- og húsakostur rannsóknastofnana nýtist að hluta til kennslu og kennarar skólans vinni jöfnum höndum við kennslu- og rannsóknastörf í framtíðinni. Jafnframt gætu verkefni nemenda í mörgum tilvikum orðið hluti hagnýtra rannsókna sem unnið er að við stofnanir á Keldnaholti.
Það gefur auga leið að á 25 ára starfsferli skólans hafa orðið miklar breytingar á námi og kennsluháttum. Núverandi húsnæði skólans er iðnaðarhúsnæði og breidd hússins mjög mikil, módúlar stórir og henta illa framtíðarkennsluháttum. Það gefur líka auga leið að framtíðarhúsnæði væri unnt að hanna meira með þarfir skólans fyrir augum og ná fram hagkvæmari rekstri og hagkvæmari kennslu. Nemendur skólans eru nú rúmlega 400 en sveiflur í nemendafjölda einstakra námsbrauta eru verulegar. Fastráðnir kennarar Tækniskólans eru 20, en alls hafa um 100 kennarar á hendi reglubundna kennslu. Auk þess stunda um 100 aðilar óreglubundna kennslu og flytja gestafyrirlestra.
Fylgiskjöl með þessari þáltill. eru annars vegar greinargerð um hlutverk Tækniskóla Íslands eftir Bjarna Kristjánsson rektor og hins vegar skipurit um námsleiðir innan Tækniskólans. Í greinargerð rektors um hlutverk Tækniskólans segir m.a., með leyfi forseta, að Tækniskóli Íslands sé einn um það hlutverk að veita iðnaðarmönnum framhaldsmenntun. Skólinn starfar í deildum, frumgreinadeild og sérgreinadeild. Sérgreinadeildir eru byggingardeild, heilbrigðisdeild, rafmagnsdeild, rekstrardeild og véladeild. ,,Í sem stystu máli,,, segir rektor, ,,er það meginhlutverk Tækniskóla Íslands að veita menntun sem leiðir til aukinnar framleiðslu og framleiðni og framleiðslu í landinu til langframa og án þess að
missa sjónar á náttúruvernd og náttúrubót.``
Það er staðreynd að þróun skólans hefur gengið of hægt. Þörfin fyrir tæknimenntun hefur aukist örar en starfsemi menntakerfisins á því sviði, svo ör og svo margslungin sem iðnþróun er í heiminum.
Það er skoðun flm. að af ýmsum ástæðum sé mjög mikilvægt að stofna til slíkrar hugmyndasamkeppni. Henni fylgir lítill kostnaður en hún hreyfir málið og það er afar mikilvægt fyrir skólann, bæði kennara og nemendur að sjá einhverja hreyfingu þó að hægt miði.
Ég legg því til, virðulegi forseti, að að lokinni umræðu um þetta mál verði tillögunni vísað til síðari umr. og allshn.