Skólamáltíðir
Mánudaginn 12. febrúar 1990


     Guðrún Helgadóttir:
    Hæstv. forseti. Ég hef áður minnst á það hér í þingsölum að mér þykir alltaf afar óæskilegt þegar hv. þm. flytja mál sín að ekki sé rakin nokkur saga málsins ef hún er einhver hér í þinginu. Ég hefði nú kannski ekki hirt um að rifja upp eigin þátt í þessu máli nema af því að það hafa aðrir gert hér á undan mér. En þess vegna skal það upplýst sem augljóslega allir eru búnir að gleyma hér inni að á 106. löggjafarþingi 1983 flutti ég ásamt Svavari Gestssyni, Kolbrúnu Jónsdóttur, Karli Steinari Guðnasyni, Jóhönnu Sigurðardóttur og Sigríði Dúnu Kristmundsdóttur till. til þál. um að komið yrði á einsetningu skóla, samfelldum skólatíma og skólamáltíðum. Og það sem meira var, þessi till. var samþykkt, að vísu breytt, sem ályktun frá Alþingi og send ríkisstjórninni sem slík.
    Þetta hlýt ég að minna á, þetta gerðist 10. apríl 1984. Þannig að það nær auðvitað ekki nokkurri átt að hér komi ekki fram í þskj. það sem áður hefur verið gert í þessum málum og það sé verið að leggja fram aftur og aftur mál sama efnis. Mig furðar á að fyrrv. hæstv. menntmrh., hv. 3. þm. Reykv., skuli ekki muna eftir þessu máli, vegna þess að hinn 19. mars 1985 bar ég fram fsp. í þinginu til þáv. hæstv. menntmrh. og spyr þar hvað líði framkvæmd þál. sem samþykkt var 10. apríl 1984, um könnun á kostnaði við einsetningu skóla, samfelldan skólatíma og skólamáltíðir. Og ástæðan fyrir þessari breytingu á texta er sú að þál. hljóðaði svo á endanum, með leyfi hæstv. forseta, eftir að frá henni hafði verið gengið í nefnd:
    ,,Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta meta kostnaðarauka ríkissjóðs og sveitarfélaga sem hlytist af því að komið yrði á samfelldum skóladegi grunnskólanema. Sú kostnaðarkönnun miðist við í fyrsta lagi einsetinn skóla, í öðru lagi samfelldan skóladag, í þriðja lagi skólamáltíðir handa nemendum og starfsliði.
    Jafnframt verði kannað hvort þörf fyrir skóladagheimili og skólaathvarf minnkar með samfelldum skóladegi og hverju sá sparnaður kann að nema.
    Niðurstöður þessarar könnunar verði lagðar fyrir næsta löggjafarþing. Kostnaður greiðist af ríkissjóði.`` Þetta var samþykkt á Alþingi 10. apríl 1984.
    En í till. okkar sexmenninganna hljóðaði textinn á þá leið að Alþingi ályktaði að fela ríkisstjórninni að hlutast til um að fyrir næsta skólaár verði komið á einsetningu í grunnskólum og samfelldum skóladegi þar sem húsnæði og aðrar aðstæður leyfa.
    Þegar ég bar síðan fram þessa fsp. um hvað þessu verki liði þá sé ég nú að hæstv. ráðherra hefur óskað eftir því að fá að fresta svarinu vegna þess að gögn hefðu orðið eftir heima. Síðan, í töluverðri umræðu sem varð um þetta mál hér 26. mars 1985 telur ráðherra að unnið sé að undirbúningi einmitt í þeirri nefnd sem áður hafði verið skipuð um þessi mál og ráðherra segir þá að hún hafi skilað áfangaskýrslu í

október sl., þ.e. í október 1984, og þar segir einmitt hæstv. þáv. ráðherra, svipað og hún sagði áðan, að það þyrfti að vinna að þessum málum innan ramma þess húsnæðis sem væri fyrir hendi.
    En þetta má allt lesa á bls. 3824 í þingtíðindum 1985 og eftir stendur að málið er svo sem ekki komið miklu lengra í dag þó að þessi þál. hafi verið samþykkt. (Gripið fram í.) Könnunin að vísu hefur farið fram en þar við situr.
    En erindi mitt í þennan ræðustól er fyrst og fremst það að biðja eins og ég hef hvað eftir annað beðið hv. þm. að gera okkur öllum til glöggvunar að rekja feril mála í þinginu ef málin eiga sér einhverja forsögu, heldur en þau komi hér fram eins og það sé verið að tala um þessi mál í fyrsta skipti. Ég minnist einnig ágætrar þátttöku hæstv. forseta þessa þings og hv. 3. þm. Reykv. og ótal margra annarra sem hafa þrábeðið um aðgerðir í þessum málum, þannig að þetta þarf auðvitað að koma fram þegar fjallað er um mál af þessu tagi. Við komumst ekkert lengra með því að vera að jagast um hvert okkar hafi lagt málinu mest lið, einkum og sér í lagi þegar mest lítið hefur orðið úr framkvæmdum.