Skólamáltíðir
Mánudaginn 12. febrúar 1990


     Flm. (Guðmundur G. Þórarinsson):
    Virðulegi forseti. Ég vil þakka þm. þær ágætu undirtektir sem þetta mál hefur hlotið hér og þessar ágætu umræður. Eftir að hafa hlýtt á mál þm. hér þykist ég þess fullviss að þetta mál muni fá brautargengi í þinginu.
    Í máli hv. þm. Guðrúnar Agnarsdóttur komu fram ýmsar ábendingar og hún vísaði sérstaklega til frv. sem kvennalistakonur hafa flutt um grunnskóla. Ég er alveg sannfærður um að einmitt í því frv. og í hennar máli komu fram ýmsar ábendingar sem eru gagnlegar fyrir þetta mjög svo mikilvæga mál.
    Hv. þm. Ragnhildur Helgadóttir lýsti þáltill. sem samþykkt hafði verið hér að undirlagi þeirra sjálfstæðismanna. Annað atriðið í þeirri þáltill. sem hún nefndi sérstaklega var samfelldur skóladagur. Ég hygg að hún hafi orðað það eitthvað á þann veg að tómt mál væri að tala um samfelldan skóladag nema að unnt væri að matast í skólanum og þess vegna væri hér um að ræða hliðar á sama máli.
    Ég er ekki alveg sammála þessu vegna þess að það að koma á samfelldum skóladegi og einsetningu í skólum er gríðarlega mikið mál. Getur kallað á fjárfestingu og mikla skipulagningu. Það er hins vegar mjög mikilvægt líka. En þessi þáltill. gerir í rauninni ráð fyrir því að breyta áherslunni þannig að koma máltíðunum á nú þegar þó að hitt sé ekki komið. Ég er alveg sammála málflutningi hv. þm. Ragnhildar Helgadóttur í því, að samfelldur skóladagur verði ekki nema unnt sé að matast í skólunum. Hin hlið málsins er sú hvort unnt er að koma því við að hægt sé að matast í skólunum þó að samfelldur skóladagur sé ekki kominn. Það er það áhersluatriði sem við höfum tekið fram fyrir með flutningi þessarar þáltill.
    Hv. 6. þm. Reykn. gerði að umræðuefni þau orð mín að Reykjavíkurborg hefði haft skakkar áherslur þar sem ég í minni framsöguræðu lét að því liggja að
þetta ríkasta sveitarfélag landsins hefði lagt meiri áherslu á ytri umbúnað og miklar byggingar en að sinna hinum innri málefnum og í þessu tilviki börnunum sjálfum. Hún taldi að skilningur væri mjög að aukast á því einmitt í Reykjavík að þarna þyrfti að breyta. Ég kemst ekki hjá því, vegna þessara orða þm., að vekja enn á ný athygli á því að Kópavogskaupstaður hefur af vanefnum sínum ráðist í framkvæmd þessara mála og framkvæmt mjög athyglisverð atriði á þessu sviði vegna þess hve málið er brýnt. En ríkasta sveitarfélag landsins sem ræðst í framkvæmdir sem vekja undrun allra landsmanna og hefur meiri fjárráð og meira fé til umráða en nokkurt annað sveitarfélag og mér liggur við að segja nokkur aðili þjóðfélagsins, hefur ekki séð ástæðu til að gefa gaum að þessu atriði.
    Án þess að ég geri það sérstaklega að umræðuefni hér vegna þess að til þess mun gefast tækifæri síðar, þá er þetta enn eitt dæmið um rangar áherslur borgarstjórnarmeirihlutans í Reykjavík. Á sama tíma og menn sjá ástæður til þess að byggja ráðhús og

hringekjur, sem út af fyrir sig geta verið góð mál, þá eru líklega eru fleiri börn vannærð í Reykjavík en nokkurs staðar annars staðar á landinu einmitt vegna þess að borgaryfirvöld hafa ekki á sama hátt og yfirvöld í Kópavogskaupstað séð ástæðu til þess að bregðast við þessu vandamáli. Menn hafa einmitt, svo ég noti orð hv. 6. þm. Reykn., gefið meiri gaum og lagt þyngri áherslur á ytri umbúnað heldur en að sinna hinum félagslegu málefnum og í þessu tilviki börnunum sjálfum. Kannski er þarna um að ræða grundvallarágreininginn sem uppi er um stjórn Reykjavíkurborgar í dag. Um það skulum við ekki fara fleiri orðum hér en það er þó alveg ljóst að á sama tíma og þetta gríðarlega ríka sveitarfélag hefur mikla fjármuni og ræðst í meiri framkvæmdir en landsmenn hafa séð dæmi um áður, þá eru börn hér vannærð og tannskemmdir miklar í borginni, samanber skýrslur skólatannlækna. Heilbrigði og þroski barnanna og jafnvel námsárangur falla í skuggann fyrir byggingargleði, að ég tali nú ekki um áhyggjur foreldra sem vita af þessum vandamálum og fá ekki við ráðið. Hér er þungamiðjan í stefnu og framkvæmdum Sjálfstfl. í Reykjavík beinlínis á borðinu.
    Ég vil taka undir þau orð sem menntmrh. lét falla hér. Mér fannst hann tala gott mál. Ég held að sá kostnaður sem við ræðum sé ekki stór. Ég er líka sammála honum í því að ég hygg að hér eigi að vera a.m.k. í byrjun um að ræða nokkurs konar samyrkjubúskap ríkis og sveitarfélaga meðan við erum að koma þessu máli á.
    Ég hygg að hv. þm. Karvel Pálmason hafi misskilið málið dálítið í sínum málflutningi og geri það nú ekki frekar að umræðuefni.
    Ég legg áherslu á það að ég er ekki sammála hv. 13. þm. Reykv. í því máli sem hann flutti um nauðsyn sagnfræðinnar í hverju máli. Kannski gera menn of mikið af því, einmitt hér í þingsölum, að lesa upp úr skýrslum og rekja fortíðina. Skýrslur geta verið ágætar en því miður verða þær sjaldnast að gagni nema bara fyrir þá sem ætla að semja aðrar skýrslur og lesa þær þess vegna. Það sýnir sig að þær skýrslur sem unnar voru í kjölfar þeirrar ágætu tillögu sem hv. 13. þm. Reykv. var flm. að og gerði hér að umræðuefni, að framkvæmdir í kjölfar þeirrar þáltill. hafa litlar sem engar orðið.
    Sú þáltill. sem hér liggur fyrir er afdráttarlaus, hún gerir ráð fyrir því að skólamáltíðum verði komið á næsta haust. Þetta er ekki meira mál en það að það er enginn vandi að hrinda því í framkvæmd. Um þetta þurfum við hvorki fleiri kannanir eða skýrslur. Málið liggur algjörlega ljóst fyrir, málið er grafalvarlegt og það þolir enga bið. Þess vegna fagna ég alveg sérstaklega undirtektum þm. við þessu máli og treysti því að einmitt þau orð sem þeir hafa látið falla endurspegli þá skoðun þeirra og vilja að þetta mál fái brautargengi hér í þinginu og komist til afgreiðslu.
    En, virðulegi forseti, má ég aðeins gera eina leiðréttingu: Í upphafi máls míns fór ég fram á að þessari till. væri vísað til hv. allshn. Að betur

athuguðu máli hygg ég að heppilegra sé og jafnvel réttara að vísa till. til hv. félmn. og geri það því að tillögu minni að svo verði gert.