Halldór Blöndal :
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. forsrh. fyrir hans svar. Eins og svarið ber með sér er allt í lausu lofti um það hjá ríkisstjórninni hvað verður um þetta frv. og það er greinilegt að frv. hefur á sínum tíma verið lagt fyrir Alþingi óunnið. Það er jafnframt greinilegt að sú fullyrðing hæstv. forsrh. sem hann setti fram í vantraustsumræðunum 30. nóv. sl. var röng, að ríkisstjórnin hefði þá þegar komið sér saman um þau fjáröflunarfrv. og þær fjáröflunarleiðir sem efnt yrði til á þessu ári.